Fréttablaðið - 15.04.2011, Page 16
15. apríl 2011 FÖSTUDAGUR16
A
ukin eftirspurn í
alþjóðlegu hagkerfi,
hræðsla við nýtingu
kjarnorku eftir jarð-
skjálftann í Japan
og áhersla á endur-
nýtanlega orkugjafa skapa gríðar-
leg tækifæri fyrir Landsvirkjun á
næstu fimmtán árum.
Fyrirtækið bregst við því með
hugmyndum um virkjanafram-
kvæmdir upp á þrjú hundruð millj-
ónir dala, jafnvirði
tæpra fjörutíu millj-
arða króna á núvirði, að
jafnaði á hverju ári allt
tímabilið sem mun leiða
til hagvaxtar og skapa
í kringum tíu þúsund
störf.
Hörður Arnarson, for-
stjóri Landsvirkjunar,
segir fyrirtækið leggja
fram langtímaáætlun
um áframhaldandi upp-
byggingu raforkiðnaðar
á forsendum markaðs-
drifinnar stefnu sem
leiði af sér fimmtán ára
hagvaxtarskeið sem
ljúki árið 2025.
„Við sjáum fyrir
okkur að tímabilið verði
hagvöxtur meðal ann-
ars knúinn áfram af
uppbyggingu iðnaðar
og orkumannvirkja og
hér hafi byggst upp fjöl-
breyttur iðnaður ásamt
öflugri þekkingarupp-
byggingu í tengslum við
orkuvinnslu. Við sjáum
fyrir okkur að raforku-
vinnsla hafi verið um
það bil tvöfölduð frá því
sem hún er í dag og að
raforkuverð til iðnaðar hafi hækkað
í takt við verðþróun í Evrópu. Arð-
greiðslur og skattgreiðslur Lands-
virkjunar verði á bilinu fjögur til
átta prósent af landsframleiðslu,
að sjálfsögðu er það háð því hvern-
ig þróast í nágrannalöndum okkar,“
segir Hörður. Miðað við landsfram-
leiðslu í dag gæti arður ríkisins af
Landsvirkjun numið sextíu til um
120 milljörðum króna á ári.
Hugmyndir þessar verða kynnt-
ar á ársfundi Landsvirkjunar í dag,
virkjanakostir nefndir og farið yfir
þau tækifæri sem liggja til grund-
vallar langtímaspá fyrirtækisins.
Hörður segir nauðsynlegt að áður
en lengra sé haldið sé mikilvægt að
ræða þessar hugmyndir opinskátt til
þess að stuðla að umræðu og sátt um
möguleikana.
Aukin arðsemi virkjana
Tímamót urðu hjá Landsvirkjun í
fyrra. Hörður, sem tók
við forstjórastarfinu af
Friðriki Sophussyni í
nóvember 2009, kynnti
þá breytta stefnu sem
stuðla á að betri sátt um
starfsemi Landsvirkj-
unar.
Hörður sagði á opnum
fundum þar sem ný
framtíðarsýn var kynnt
að orkuauðlindir lands-
ins væru takmarkaðri
en löngum hafi verið
haldið fram, virkjað
verði í sátt við þjóðina
og stefnan sett á að auka
arðsemi virkjana í meiri
mæli en áður.
Hörður játar að arð-
semin hafi ekki verið í
fyrsta sæti á árum áður.
Það átti sér eðlilegar og
sögulegar skýringar, að
hans sögn:
„Það er rétt að arð-
semi orkufyrirtækja á
Íslandi hefur verið lág.
En raforkuverð hefur
almennt verið lágt. Það
mótaðist af því hvern-
ig raforkuverð var í
heiminum. Menn gátu
farið til margra landa
og fundið staði með tiltölulega lágu
raforkuverði. Það var eðlilegt á þeim
tíma,“ segir hann og bendir á að
samningsaðstaða raforkuframleið-
enda áður fyrr hafi verið veik. Nú
horfi öðruvísi við.
Fleiri vilja græna orku
Á fundi Landsvirkjunar í fyrra var
horfið frá framkvæmdadrifinni
stefnu og horft til þess hvert selja
megi orkuna á samkeppnishæfu
markaðsverði. Með öðrum orðum
var markaðsdrifin stefna tekin upp.
„Eftirspurn hefur aukist í Asíu,
sérstaklega á Indlandi og í Kína og
raforkuverð hækkað síðastliðin tíu
ár. Eftirspurn eftir orku í heimin-
um mun aukast og verðið hækka. Á
sama tíma hefur samkeppnisaðstaða
okkar styrkst mikið, meðal annars
vegna óróaleika í Miðausturlöndum.
Lönd þar kepptu við okkur um fyrir-
tæki enda þar mikið af ódýru jarð-
gasi sem laðaði til sín álfyrirtæki.
Óróleikinn hefur hins vegar dregið
mjög úr áhuga fyrirtækja á að fara
þangað. Við höfum líka séð áhrifin
af kjarnorkuslysinu í Japan. Slysið
mun hafa veruleg áhrif, sérstaklega
í Evrópu og gerir það að verkum að
krafa innan aðildarríkja Evrópu-
sambandsins (ESB) um notkun end-
urnýjanlegra orkugjafa mun aukast
frekar. Vissulega verða byggð kjarn-
orkuver í framtíðinni en menn munu
leita annarra og dýrari orkukosta.
Það gefur okkur samkeppnisfor-
skot,“ segir Hörður og bætir við að
í samræmi við breytta stefnu muni
Landsvirkjun framvegis miða við á
hvað önnur fyrirtæki selji raforku.
Þessu til viðbótar horfir Lands-
virkjun til þess að auka tekjur sínar
verulega með sölu á svokölluðum
grænum vottorðum. Þetta er sölu-
vara innan ESB sem ætlað er að
örva notkun endurnýtanlegra orku-
gjafa. Landsvirkjun hefur selt vott-
orðin á frjálsum markaði innan ESB
fyrir nokkra tugi milljóna króna á
ári hverju.
Hörður segir gert ráð fyrir
umtalsvert meiri hagnaði, jafn-
vel nokkrum milljörðum króna, af
sölu vottorðanna á næstu árum enda
hafi ESB sett sér það markmið að ná
ákveðnum hlutföllum af endurnýjan-
legum orkugjöfum árið 2020. Það
felur í sér að einstök ríki sem ekki
hafa aðgang að slíkum orkugjöfum
þurfa að kaupa vottorð til að ná upp
í kvótann.
Stóra planið
Samkvæmt því framtíðarplani sem
liggur á borði Landsvirkjunar nú
mun raforkuframleiðsla tvöfaldast
á næstu fimmtán árum, fara úr í
kringum átján TWst á ári í 30 til 35.
„Við teljum að það megi tvöfalda
núverandi framleiðslu með jöfnum
hætti. En við verðum að fara var-
lega, þetta er mjög dýrmæt auð-
lind og alls ekki óþrjótandi,“ segir
Hörður og bendir á að hugmynd-
ir um einstaka virkjanakosti séu
til umræðu innan Rammaáætlun-
ar. Að sjálfsögu sé ekki sé stefnan
að virkja á Torfajökulssvæðinu,
Jökulsá á Fjöllum, við Langasjó og
á öðrum umdeildum svæðum. „Það
er að okkar mati ólíklegt að sátt
náist hjá þjóðinni að fara inn á þau
svæði.“
Hörður segir hugmyndina felast í
samfelldri uppbygging u orkukosta
yfir langt tímabil, þar sem ákveð-
inn sveigjanleiki sé hafður að leiðar-
ljósi. fyrirhugaðar framkvæmdir
með því mesta sem Landsvirkjun
hafi farið út í, eða eina Búðarháls-
Vatnsfellsvirkjun á ári í fimmtán ár.
Þótt framkvæmdastigið geti orðið
hátt ákveðin árverði hátt verður það
ekkert í líkingu við byggingu Kára-
hnjúka þegar hagkerfið var keyrt í
botn.
„Framkvæmdirnar munu vissu-
lega hafa jákvæð hagvaxtaráhrif.
En hvenær sem er getum við hægt
á okkur, svo sem ef hagkerfið
ofhitnar á tímabili eða eftirspurnin
minnkar vegna kreppu úti í heimi.
Það verður hægt að stilla þessu upp
þannig að uppbyggingin verður
jöfn og hentar líka íslenskum verk-
tökum mjög vel. Þeim líkar ekki við
að hafa toppa og dali,“ segir Hörð-
ur og bendir á að stefnan sé í sam-
ræmi við hlutverk Landsvirkjunar
og felur í sér að hámarka arðsemina
af þeim auðlindum sem fyrirtækinu
er trúað fyrir. Það sé drifkrafturinn
nú, jákvæð afleiðing er hagvöxtur
og sköpun starfa.
„Í gegnum tíðina hefur áhersla
Landsvirkjunar verið á hagvaxtar-
nálgun. Þessi nýja stefna landsvirkj-
un beinist að því að leggja aukna
áherslu á arðsemi. Það dregur ekki
úr hagvexti og fjölgun starfa held-
ur eykur hann, að okkar mati. Það
gerir það að verkum að við eigum
auðveldara með að fá fjármagn. Það
er lykilatriði,“ segir Hörður.
Olíuskipi snúið við
Hörður segir að þótt Landsvirkjun
geri ráð fyrir hægfara hagvaxtar-
skeiði fram til 2025 sé mikilvægt
að vera þolinmóður og grípa ekki
til skammtímalausna.
„Það er freistandi að horfa aðeins
á hagvöxt í atvinnuleysi og gera
allt til að skapa störf. En við þurf-
um að vera þolinmóð. Þetta er eins
og olíuskip sem þarf að snúa. Ef við
gerum það rétt gætu áhrifin orðið
sambærileg og áhrifin af olíuiðnað-
inum í Noregi,“ segir Hörður.
Föstudagsviðtaliðföstuda
gur Hörður Arnarson sér mikil tækifæri í íslenskum orkugeira
Það er
freistandi að
horfa aðeins
á hagvöxt í
atvinnuleysi
og gera allt
til að skapa
störf. En við
þurfum að
vera þolin-
móð.
Orkan er olíu-
sjóður Íslands
Gangi áætlanir eftir mun arðsemi Landsvirkjunar
aukast verulega á næstu fimmtán árum. For-
stjórinn Hörður Arnarson segir í samtali við
Jón Aðalstein Bergsveinsson að breytt stefna fyrir-
tækisins geti skilað því að arðgreiðslur nemi allt
að 120 milljörðum króna á ári.
MÁLSVARI BREYTTRAR ÁHERSLU LANDSVIRKJUNAR Það er freistandi að horfa á hagvöxt í atvinnuleysi og gera allt til að skapa
störf. Hagurinn af því að vera þolinmóður er hins vegar mun meiri, að sögn Harðar Arnarsonar forstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Landsvirkjun verður að hækka raforkuverð í kjölfar þess að Icesave-
samningurinn var felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardag. Hörður segir
ástæðuna þá að fjármögnunarkostnaður ríkissjóðs og fyrirtækja hér muni
hækka í kjölfarið.
„Fjármagnsmarkaðir verða tregir næstu misserin og við munum bíða með
að draga á lán frá Evrópska fjárfestingarbankanum vegna framkvæmda við
Búðarhálsvirkjun á meðan Icesave-deilan er óleyst. Við teljum hins vegar
að margt í rekstri Landsvirkjunar muni hjálpa okkur að fá lán,“ segir Hörður.
Landsvirkjun bjargaði sér fyrir horn í vikunni með sölu á skuldabréfi til
Landsbankans. Það ber hærri vexti en lánið frá Evrópska fjárfestingarbank-
anum.
„Með láninu frá Landsbankanum, Norræna fjárfestingarbankanum og
öðrum aðgangi að fjármagni sem við höfum teljum við að fjármögnun
Búðarhálsvirkjunar sé lokið. En við þurfum að hafa mikið fyrir fjármögnun
núna. Eftir því sem verkefnin verða arðbærari þeim mun auðveldara verður
fyrir okkur að fá fjármagn. En það er ljóst að raforkuverð þarf að vera hærra
en það var. Við höfum engin ákvæði til að hækka verðið á núverandi
samningum nema við endurskoðun þeirra,“ segir Hörður.
Raforkuverð mun hækka