Fréttablaðið - 15.04.2011, Side 24
15. apríl 2011 FÖSTUDAGUR24
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát
og útför
Guðmundar Sveinssonar
frá Gröf í Þorskafirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Barmahlíðar fyrir
frábæra umönnun.
Halldóra Guðjónsdóttir
og fjölskylda
Af hug og hjarta þakkar fjölskyldan
öll innilega fyrir hlýhug, samúð
og nærgætni sem okkur var sýnd í
veikindum og við andlát okkar ástkæru
sambýliskonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu
Þórdísar Ingibjargar
Sverrisdóttur
frá Dúki.
Innilegar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Sauðárkróki, Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri og Landspítala Háskólasjúkrahúss fyrir
góða umönnun, ástúð og hlýju.
Einar Jakobsson
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir minn, mágur og frændi
Sigurður Júlíus Larsen
frá Hjalteyri,
lést mánudaginn 4. apríl síðastliðinn. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Starfsfólki
dvalar heimilanna Kjarnalundar og Hlíðar er þökkuð
umönnun og alúð og Karlakór Akureyrar – Geysir og
Kirkjukór Möðruvallaklausturskirkju þakkaður
auðsýndur sómi.
Kristján og Brynhild Larsen, börn og fjölskyldur.
Anna Kristine Magnúsdóttir blaða-
kona er nýr formaður Kattavinafélags
Íslands. Hún tekur við af Sigríði Heið-
berg sem lést fyrr á þessu ári, en hún
hafði gegnt formennsku félagsins í yfir
tuttugu ár. Anna segir að erfitt verði
að feta í fótspor Sigríðar en þær voru
góðar vinkonur. Hún hlakkar þó jafn-
framt til að takast á við verkefni félags-
ins enda hafi hún ákveðnar skoðanir
þegar kemur að málefnum dýra.
„Það er mikill heiður að vera mál-
svari málleysingja, einkum þar sem mér
finnst almennt illa talað um gæludýr hér
á landi,“ segir Anna og bendir á að dag-
lega séu kettir skildir eftir í reiðileysi á
tröppum Kattholts.
„Þó að ég sé formaður Kattavina-
félagsins ætla ég að beita mér fyrir
vernd allra dýra og hef þegar óskað
eftir fundi með umhverfisráðherra til
að ræða ný dýraverndunarlög sem eru
í smíðum. Eins langar mig til að vinna í
því að ekki sé alls staðar bannað að vera
með gæludýr, eins og í fjölbýlishúsum,
því rannsóknir sýna að fólki sem á gælu-
dýr líður almennt betur.“
Sjálf er Anna mikil kattakona og
hefur verið félagi í Kattavinafélag-
inu um árabil. Hún hefur þó ekki alltaf
verið hrifin af köttum og forðaðist þá
meira að segja í lengstu lög.
„Ég var dauðhrædd við ketti og hljóp
yfir götu frekar en að mæta þeim,“ segir
hún hlæjandi. „Dóttir mín var aftur á
móti kattasjúk og ég gat ekki sagt nei
þegar henni bauðst að eignast kettling
sem annars hefði átt að svæfa. Ég sat
svo með kettlinginn í fjórar vikur og gaf
honum heita mjólk úr pela. Upp frá því
hef ég elskað ketti og þessi læða varð
allra kellinga elst, 19 ára. Síðustu fjög-
ur ár hef ég svo verið „ráðskona“ hjá
hefðar ketti meðan eigendur hans eru í
vinnu erlendis. Ég er miklu verri en ef
ég væri með ungbarn heima og lít stans-
laust á klukkuna ef ég fer út á kvöldin,“
segir hún og hlær.
Anna bætir þó við að að öllu gamni
slepptu þá fylgi mikil ábyrgð því að eiga
gæludýr sem fólk hugsi oft ekki til enda.
„Það er ekki bara gaman að eiga dýr
og fólk áttar sig ekki á þessu þegar
börnin biðja um gæludýr í jólagjöf.
Þeim fylgir kostnaður og læknisheim-
sóknir og þau þarf að annast á hverjum
einasta degi,“ segir Anna og bendir á
heimasíðu Kattholts, kattholt.is Þar sé
að finna gagnlegar upplýsingar fyrir
fólk að kynna sér áður en dýr kemur
inn á heimilið.
„Ég mæli með að fólk skoði málið
áður en það fær sér dýr en á morgun
milli klukkan 11 og 16 verður einmitt
ættleiðingardagur og basar í Kattholti.
Sjálf gæti ég ekki hugsað mér að koma
heim nema það biði mín fjórfættur ein-
staklingur. Dýr elska mann skilyrðis-
laust.“ heida@frettabladid.is
ANNA KRISTINE MAGNÚSDÓTTIR: NÝR FORMAÐUR KATTAVINAFÉLAGSINS
VAR DAUÐHRÆDD VIÐ KETTI
KOMST YFIR HRÆÐSLUNA Anna Kristine Magnúsdóttir er nýr formaður Kattavinafélags Íslands. Hún var dauðhrædd við ketti á árum áður þar til
lítill kettlingur bræddi hjarta hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Peter Austin, prófessor við University of London, held-
ur opinn fyrirlestur um hin sjö þúsund tungumál jarð-
ar í Hátíðarsal Háskóla
Íslands klukkan 12.15.
Fyrirlesturinn er fluttur
á ensku og heitir „7,000
Languages: Linguistic
and cultural diversity
from global and local per-
spectives“.
Peter Austin er einn af
fremstu málvísindamönn-
um sinnar tíðar og jafn-
framt einn af ráðgjöfum
Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur um alþjóð-
lega tungumálamiðstöð.
Hann er líka ritstjóri
bókarinnar „Eitt þúsund
tungumál“ sem kom út í
íslenskri þýðingu Baldurs
Ragnarssonar fyrir jól,
hjá Bókaútgáfunni Opnu.
Áður en fyrirlesturinn
hefst mun Vigdís Finnbogadóttir, formaður Styrktarsjóðs
Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, tilkynna um fyrstu
úthlutun úr sjóðnum og afhenda styrki til fimm verkefna
sem öll tengjast rannsóknum á tungumálum og menningu.
Fyrirlestur um sjö
þúsund mál jarðar Skálholtsskóli var lagður niður samkvæmt konungsúrskurði þennan dag árið 1785. Þá hafði
verið rekinn þar skóli frá seinni hluta 11. aldar og
til 1785. En líklega þó ekki óslitið nema frá árinu
1552. Skálholtsskóli og Hólaskóli voru helstu
menntastofnanir þjóðarinnar en hlutverk þeirra
var að mennta menn til prests en einnig undir-
búningur undir framhaldsnám erlendis.
Árið 1775 var orðið þröngt í búi og ástand
húsa bágborið. Hallæri var í landinu og í Suður-
landsskjálftanum árið 1784 hrundu öll hús nema
dómkirkjan í Skálholti. Þá féll niður allt skólahald
um veturinn og ekki var ráðist í endurbætur um
sumarið. Skólinn og biskupsstóllinn voru því fluttir
til Reykjavíkur.
Gísli Thorlacius Þórðarson, sonarsonur Þórðar
Þorlákssonar biskups, var skólameistari Skálholts-
skóla þegar hann var lagður niður en Gísli var
skipaður haustið 1784. Hann varð skólameistari
Hólavallarskóla, sem tók við starfsemi skólans
haustið 1785.
Heimild: wikipedia.org
ÞETTA GERÐIST: 15. APRÍL ÁRIÐ 1785
Skálholtsskóli lagður niður
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR fyrrverandi forseti er 81 árs.
„Að vera Íslendingur er meðal annars að gleyma
aldrei uppruna sínum.“
ÞÚSUND TUNGUMÁL Peter Austin
heldur fyrirlestur um hin sjö þúsund
tungumál jarðar.
81
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Elsa
Halldórsdóttir
Álftamýri 30, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 13. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Halldór Olgeirsson Svava Magnúsdóttir
Guðrún Olgeirsdóttir Jens Arnljótsson
Þórunn Olgeirsdóttir Haraldur Pálsson
Smári Olgeirsson Sigríður Benediktsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
90 ára afmæli
Þakkir
Innilegar þakkir til allra ætting ja og
vina sem glöddu mig með nærveru
sinni, blómum og g jöfum á 90 ára
afmælisdegi mínum þann 9. apríl og
gerðu mér daginn eftirminnilegan.
Kærar kveðjur og þakkir,
Ottó Gíslason