Fréttablaðið - 15.04.2011, Side 46
15. apríl 2011 FÖSTUDAGUR30 30
menning@frettabladid.is
Jöklar nefnist nýtt íslenskt
netleikrit sem frumsýnt
verður í kvöld. Verkið er
sett upp á fjórum mismun-
andi stöðum á landinu en
heildarmyndina má nálgast
á netinu.
Netleikhúsið 408 herbergi frum-
sýnir leikritið Jökla eftir Hrafn-
hildi Hagalín og Steinunni Knúts-
dóttur í kvöld í Reykjavík, á
Ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði og
á netinu. Verkið fjallar um Ófeig,
53 ára fyrrverandi dansara í hjóla-
stól, sem lifir lífi sínu að mestu á
netinu og býður þar upp á sjálfs-
hjálparmeðferð í gegnum síðuna
Glacierworld.net. Til hans leita
þrjár persónur sem búa sín í hverj-
um landshlutanum og eiga allar
við getuleysi af einhverju tagi að
stríða. eru félagslega einangraðar
og hafa búið til hliðarsjálf á ver-
aldarvefnum. Þegar fimmta pers-
ónan blandast í leikinn verða hins
vegar óvænt endaskipti á hlutun-
um.
„Við segjum söguna með þeim
miðli sem hún gerist í og notum
þannig veraldarvefinn sem bæði
yrkisefni og leikrými,“ segir
Steinunn Knútsdóttir, sem jafn-
framt leikstýrir verkinu. Á hverj-
um sýningarstað geta áhorfendur
fylgst með verkinu frá sjónarhorni
viðkomandi persónu en á netinu
er hægt að sjá heildarsýn yfir
atburðarásina.
Steinunn líkir ritun verksins
við flókinn vefnað. „Við Hrafn-
hildur höfum unnið að því undan-
farið ár að láta fléttuna ganga upp
og hvern þátt styðja hver annan.“
Enn fremur reyni mikið á leikar-
ana í þessu verki. „Áhorfendur
eru nánast eins og fluga á vegg
hjá þeim og það skiptir því miklu
máli að þeir séu öruggir í sínu.“
Steinunn segir helsta kost netsins
sem leikhússvettvangs að það geri
fjarlægðir að engu, auk þess sem
það verði til öðruvísi nánd milli
leikara og áhorfanda en í hefð-
bundnu leikhúsi. Hrafnhildur og
Steinunn fengu í fyrra tilnefn-
ingu til Evrópsku útvarpsverð-
launanna í flokki nýmiðla, fyrir
netverkið Herbergi 408.
Leikarar í sýningunni eru
Aðalbjörg Árnadóttir, Árni Pétur
Guðjónsson, Ársæll Níelsson,
Halldóra Malín Pétursdóttir og
Hellen Gould.
Hægt verður að fylgjast með
sýningunum á síðunni her-
bergi408.is. Þá verða allar sýn-
ingarnar sýndar í einni sýningu
í Bíóparadís 21. og 23. apríl næst-
komandi.
bergsteinn@frettabladid.is
JÖKLANETLEIKHÚSIÐ
AÐSTANDENDUR JÖKLA Hrafnhildur Hagalín, leikskáld og dramatúrg, Árni Pétur Guð-
jónsson leikari og Steinunn Knútsdóttir, leikskáld og leikstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Arfleifðin í farteskinu nefnist mynd
um pílagrímsgöngu Thors Vil-
hjálmssonar til Spánar, sem verð-
ur frumsýnd í Bíó Paradís í kvöld.
Þetta er annar hlutinn í fimm hluta
kvikmyndabálki Erlendar Sveins-
sonar um göngu Thors til Santiago
de Compostela á Norðvestur-Spáni
en yfirheiti myndanna er Draumur-
inn um veginn.
Menningararfleiðin er meginstef
þessa hluta og nauðsyn þess að varð-
veita hana og nærast af henni. Thor
heldur áfram göngu sinni um Rioja-
héraðið á Spáni og sem leið liggur
inn í Kastilíu. Þar verður höfuðborg-
in Burgos skáldinu áhrifamikill við-
komustaður. Eftir Burgos skiptast
á fjölbreytileg þorp og kornakrar
spænsku hásléttunnar (Mezeta)
en Arfleifðinni í farteskinu lýkur í
bænum Fromista í Palenciu-héraði.
Um 345 km eru þá að baki af þeim
800 km sem Thor hefur einsett sér
að ganga á Jakobsveginum.
Myndin verður sýnd í Bíó Paradís
til 25. apríl. Í tilefni af þessu verð-
ur fyrsti hluti bálksins, Inngangan,
endursýndur í Bíó Paradís 15. og 17.
apríl.
Aðalkvikmyndatökumaður er
Sigurður Sverrir Pálsson, hljóð-
upptökur á Spáni annaðist Sigurð-
ur Hr. Sigurðsson, Bogi Reynis-
son sá um hljóðhönnun, þulur er
Egill Ólafsson, Atli Heimir Sveins-
son tónskáld er í hlutverki vinar-
ins sem fylgist með göngu Thors úr
fjarlægð en handrit, kvikmyndataka
að hluta til, klipping, tónlistarval,
framleiðsla og stjórn er í höndum
Erlends Sveinssonar.
Pílagrímsganga
Thors heldur áfram
THOR VILHJÁLMSSON Arfleifðin í farteskinu er annar hluti af fimm í kvikmyndabálki
Erlendar Sveinssonar um pílagrímsgöngu Thors Vilhjálmssonar til Spánar.
Allar LEVI’S gallabuxur fyrir dömur, kr. 7.995
Allar LEVI’S gallabuxur fyrir herra, kr. 9.995
KORPUOUTLET, KORPUTORGI • Opið mánudag til laugardags frá 11 til 18 • Sunnudaga frá 12 til 18 • S. 578 9400
Girnilegasti lagermarkaður landsins!
NÝTT FRÁ LEVI’S
R
áð
an
d
i -
a
ug
lý
si
ng
as
to
fa
e
hf
.
VORTÓNLEIKAR Í SALNUM Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzosópran boðar vorkomuna með ljóðasöngstónleikum í Salnum klukkan
17 á morgun. Með henni leika Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari. Á efnisskrá eru meðal annars
söngflokkurinn Ást og ævi konu eftir Schumann, tvö sönglög eftir Brahms ásamt útsetningum á nokkrum íslenskum þjóðlögum fyrir selló,
rödd og píanó eftir Margréti Sigurðardóttur.