Fréttablaðið - 15.04.2011, Side 62
15. apríl 2011 FÖSTUDAGUR46
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Þetta er frábær áskorun,“ segir
plötusnúðurinn Margeir Ingólfs-
son, sem er orðinn nokkurs konar
tónlistarstjóri í flugvélum Ice-
landair.
Margeir sér um að velja tónlist-
ina sem hægt er að hlusta á í vélun-
um og sérstök áhersla verður lögð
á allt það ferskasta sem hann telur
vera í gangi hverju sinni í tónlistar-
heiminum. Íslenskri tónlist og tón-
list sem tengist Iceland Airwaves-
hátíðinni verður sömuleiðis gerð
góð skil.
„Maður hefur flogið töluvert og
yfirleitt er þetta ansi skrautleg
lyftutónlist sem heyrist almennt
í flugvélum,“ segir Margeir.
„Stundum, ef menn ætla að gera
öllum til geðs, hef ég það á tilfinn-
ingunni að það virki ekki fyrir
neinn. Ég held að fólk sé komið með
nóg af lyftutónlist,“ segir hann.
„Það er góð pæling að geta sest upp
í vélina, sett á sig heyrnartólin og
látið músíkina koma sér á óvart. Ég
mun aldrei geta gert öllum til hæfis
en maður gerir sitt besta.“
Ein nýjunganna sem Margeir
býður upp á er að leyfa farþegum
að hlusta á plötur sem eiga enn
eftir að koma út. Sú fyrsta í röðinni
er nýjasta plata GusGus, Arabian
Horse, sem er væntanleg í búðir
eftir rúman mánuð. Engin áhætta
fylgir þessari nýbreytni því ekki er
hægt að stela tónlist úr flugvélum,
líkt og hægt er á netinu. „Við vitum
ekki af neinu flugfélagi sem hefur
gert þetta,“ segir Margeir.
Biggi Veira í GusGus er ánægður
með tilraunina. „Ég ferðast mikið
sjálfur og fór að hugsa að ef það
væru nýjar og spennandi plötur að
hlusta á í vélinni væri þetta áhuga-
verður kostur fyrir mig,“ segir
hann. „Mér fannst sniðugt að opna
á þennan möguleika.“ - fb
Margeir velur tónlistina í háloftunum
TÓNLISTARSTJÓRI Margeir ásamt syni
sínum Krumma Arnari. Plötusnúðurinn
er orðinn nokkurs konar tónlistarstjóri í
flugvélum Icelandair.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hinn árlegi plötubúðadagur verður haldinn hátíð-
legur víða um heim á laugardaginn, þar á meðal
hér á landi. Í sumum löndum verða fáanlegar plötur
sem ekki eru fáanlegar annars staðar auk þess sem
ýmsar uppákomur verða haldnar í tengslum við
daginn.
Í vínyl-búðinni Lucky Records á Hverfisgötu
verða tvær fyrstu tíu tommur hljómsveitarinnar
Sagtmóðigs til sölu í tilefni dagsins. „Þær eru mjög
sjaldgæfar og verða á góðu verði á þessum degi,“
segir Ingvar Geirsson hjá Lucky Records. Plata
rapparans Sesars A, Stormurinn á undan logninu,
sem kom út 2001 verður einnig til sölu. Hún er
fyrsta rappplatan sem var eingöngu sungin á
íslensku og eru eintök af henni ekki á hverju strái.
Tónleikadagskrá verður einnig í Lucky Records
þar sem Sesar A og Kristján B. Heiðarsson verða á
meðal gesta.
Aðspurður segir Ingvar plötubúðamenninguna í
Reykjavík ágæta þó svo að ávallt megi gera betur.
„Það eru fjórar plötubúðir í bænum, sem er kannski
ekki svo slæmt. Ég hef verið að fá fólk frá bæjum í
Bretlandi í heimsókn og þar sem engar plötubúðir
eru eftir. Ég var líka í Ósló og þar var bara ein búð
með notaðan vínyl,“ segir hann og hvetur fólk til að
kíkja í heimsókn í tilefni dagsins. - fb
Heldur upp á plötubúðadaginn
PLÖTUBÚÐADAGUR Ingvar Geirsson hjá Lucky Records heldur
upp á hinn árlega plötubúðadag á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það er Heroes með Bowie.
Þetta er flott lag, vel pródúserað,
með nóg af stuði og dramatík.
Það er allt við lagið sem kemur
mér í stuð.“
Guðmundur Óskar Guðmundsson úr
hljómsveitinni Hjaltalín.
„Ísland er stór hluti af lífi mínu,“
segir Heather Kolker, nýráðinn
umboðsmaður hljómsveitarinnar
Of Monsters and Men, sigurhljóm-
sveitar Músíktilrauna í fyrra.
Heather Kolker er gift flug-
umferðarstjóranum Bjarka Þór
Haraldssyni og eignuðust þau sitt
fyrsta barn í byrjun árs. Það vakti
nokkra athygli í síðustu viku þegar
tilkynnt var að Kolker væri orðin
umboðsmaður Of Monsters and
Men, en hún starfar hjá umboðs-
skrifstofunni Paradigm Agency í
New York. Þar sér hún hún meðal
annars um tónleikabókanir fyrir
hljómsveitir á borð við MGMT og
Edward Sharpe & The Magnetic
Zeros. Of Monsters and Men er
fyrsta hljómsveitin sem hún tekur
að sér umboðsmennsku fyrir.
„Þetta er ný upplifun fyrir
mig,“ segir hún. „Ég var að leita
að hljómsveit lengi, en vildi ekki
gera vera umboðsmaður nema ég
myndi finna mjög sérstaka hljóm-
sveit sem ég elska á allan hátt.
Ég vildi ekki bara dá tónlistina,
heldur líka sjá möguleika á því að
hljómsveitin yrði farsæl. Þá vildi
ég elska fólk-
ið í hljómsveit-
inni, en slíkt er
ekki auðvelt að
finna í þessum
bransa.“
Tónl ist er
stór hluti af
lífi hjónanna
Heather Kol-
ker og Bjarka
Þórs að hennar
sögn, en hann kynnti hana fyrir
tónlist Of Monsters and Men eftir
að hljómsveitin vann Músíktil-
raunir. Hún sá svo hljómsveitina
koma fram í Reykjavík og heillað-
ist strax. „Ég sá svo betur og betur
að þetta var hljómsveitin sem ég
hafði leitað að,“ segir Kolker.
Heather Kolker segir að næsta
skref Of Monsters and Men sé að
koma fram í New York og sjá til
þess að rétta fólkið úr tónlistar-
bransanum verði þar til að hlusta.
Hún telur að vinsældir bresku
hljómsveitarinnar Mumford and
Sons í Bandaríkjunum opni dyrnar
að þessum stóra og erfiða markaði
fyrir Of Monsters and Men, enda
tónlistarstefnurnar svipaðar.
Hún hyggst vinna að því að
koma tónlist hljómsveitarinnar
með smekklegum hætti í sjón-
varpsþætti, kvikmyndir og aug-
lýsingar. Þaðan liggur löng og
ströng leið í útvarp. „Mér sýnist
fólk vera opið fyrir hljómsveitum
sem eru ekki of mikið popp,“ segir
Kolker. „Ég bind miklar vonir við
Of Monsters and Men og er mjög
bjartsýn.“ atlifannar@frettabladid.is
HEATHER KOLKER: ÉG BIND MIKLAR VONIR VIÐ OF MONSTERS AND MEN
FANN BÆÐI EIGINMANN
OG HLJÓMSVEIT Á ÍSLANDI
NÝR UMBOÐSMAÐUR Heather Kolker elskar bæði tónlist Of Monsters and Men og fólkið í hljómsveitinni. Hún er nýráðinn
umboðsmaður hljómsveitarinnar og vinnur nú að því að koma henni á framfæri á erlendri grundu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEATHER KOLKER
Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali
Laugavegi 170, 2. hæð • Opið virka daga kl. 9:00-17:00
Sími 552 1400 • Fax 552 1405 • www.fold.is • fold@fold.is
Opið hús
Langabrekka 1- opið hús
Opið hús laugardag milli 14 og 15
Fallegt ca. 192 fm. einbýlishús við Löngubrekku í Kópavogi.
Hagstæð langtímalán áhvílandi og lág útborgun.. Þægileg kaup.
Lág greiðslubyrði. Verð 39,9 millj. Opið hús á morgun laugardag
milli klukkan 14 og 15. Sergey og Daria taka vel á móti ykkur.
Sun 17.4. Kl. 15:00 Sun 1.5. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Brák (Kúlan)
Fös 15.4. Kl. 20:00 síð.sýn U
Lau 16.4. Kl. 20:00
Sun 17.4. Kl. 20:00
Lau 30.4. Kl. 20:00
Sun 1.5. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
Ö Ö
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Mið 27.4. Kl. 20:00
Lau 30.4. Kl. 20:00
Mið 4.5. Kl. 20:00
Fim 5.5. Kl. 20:00
Mið 11.5. Kl. 20:00
Fim 12.5. Kl. 20:00
Mið 18.5. Kl. 20:00Ö
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Sun 1.5. Kl. 14:00
Sun 1.5. Kl. 17:00
Sun 8.5. Kl. 14:00
Sun 8.5. Kl. 17:00
Sun 15.5. Kl. 14:00
Sun 22.5. Kl. 14:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 15.4. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 16.4. Kl. 20:00 4. sýn
Fim 28.4. Kl. 20:00 5. sýn
Fös 29.4. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 6.5. Kl. 20:00 7. sýn
Lau 7.5. Kl. 20:00 8. sýn
Fös 13.5. Kl. 20:00
Lau 14.5. Kl. 16:00 br.sýn
Fim 19.5. Kl. 20:00
Fös 3.6. Kl. 20:00
Lau 4.6. Kl. 20:00
Fim 9.6. Kl. 20:00
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U Ö
U
Ö U
U
Ö
Ö
U
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki