Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 2

Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 2
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR2 Margeir, verður Jefferson Airplane á lagalistanum? „Nei. Við fljúgum hærra með sam- nefndu lagi Grýlanna.“ Plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson hefur verið ráðinn til að velja tónlistina sem leikin verður í vélum Icelandair. BASSINN PLOKKAÐUR Dean Ferrell, bassaleikari í Sinfóníunni, kunni vel við sig í nýjum heimkynnum eins og aðrir meðlimir hljómsveitarinnar. Óhætt er að segja að Eldborgarsalurinn sé öllu tilkomumeiri en stóri salur Háskólabíós. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MENNING Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt sína fyrstu æfingu í nýjum heimkynnum í gær. Hálfrar aldar dvöl hennar í Háskólabíói er þar með lokið en framvegis verður Harpa aðsetur hljómsveitarinnar. Á fimmtíu árum í Háskólabíói hélt hljómsveitin rúmlega 1.400 tónleika en margir helstu lista- manna tuttugustu aldarinnar hafa spilað með sveitinni á tímabilinu. „Þetta var alveg meiriháttar. Ég þori að fullyrða að þetta er betra en nokkurt okkar þorði að vona. Ég held svei mér þá að þetta sé með betri sölum í heiminum,“ segir Sigrún Eðvaldsdóttir, fyrsti kons- ertmeistari Sinfóníunnar, um Eld- borgarsal Hörpu. Hún segir marga hljómsveitarmeðlimi hafa kvatt Háskólabíó með trega en hann hafi alveg horfið í gær, hljómsveitin hafi ekki viljað hætta að spila. Á sjötta hundrað starfsmenn vinna nú hörðum höndum að því að ljúka framkvæmdum við Hörpu. Áætluð verklok eru í næsta mán- uði og eru framkvæmdir á áætlun. Sinfónían undir stjórn Vladim- írs Ashkenazy heldur sína fyrstu tónleika í Hörpu 4. maí og endur- tekur svo leikinn 5. og 6. maí næst- komandi. magnusl@frettabladid.is Eldborg einhver besti salur í heimi Sinfóníuhljómsveitin æfði í fyrsta skipti í Eldborgarsal Hörpu í gær. Að sögn konsertmeistara kunni sveitin svo vel við sig að enginn vildi hætta að spila. HEILBRIGÐISMÁL Samningar hafa tekist milli Sjúkratrygginga Íslands og Læknavaktarinnar ehf. um móttökuvakt og vitjana- þjónustu. Samið var við heim- ilislækna utan dagvinnutíma heilsugæslustöðva í Reykjavík og nágrenni. Áætlaður kostnaður ríkissjóðs er um 275 milljónir króna á árs- grundvelli. Samningarnir gilda til ársloka 2012 og er áætlað að Læknavaktin annist um 63.000 móttökur sjúklinga á ári og sinni um 4.000 vitjunum í heimahús. - sv Samið við Læknavaktina: Kostar ríkið um 275 milljónir VIÐSKIPTI Fjórir nýir veitinga- staðir í fínni kantinum eru að bætast við þá sem fyrir eru í 101 Reykjavík: Sjávargrillið, Kola- brautin, Munnharpan og Grill- markaðurinn. Svipað á sér stað á Akureyri. Þar hafa Goya og Rub23 nýlega verið opnaðir. Þetta þýðir fjölgun sæta um að minnsta kosti 500, að mati Hafliða Halldórssonar, forseta Klúbbs matreiðslumeistara. Hafliði telur horfur á stóraukn- um fjölda ferðamanna til lands- ins ástæðu þessarar þróunar. - gun / sjá Allt í miðju blaðsins Meiri matur í miðbænum: Fínum veitinga- stöðum fjölgar ÓVISSA Lögreglan á Fjóni hefur engar haldbærar vísbendingar. NORDICPHOTOS/AFP DANMÖRK Enn hefur enginn verið handtekinn fyrir morðið á mið- aldra hjónum í Óðinsvéum. Hjón- in voru skotin til bana er þau voru á göngu í skóglendi við borg- ina á miðvikudagskvöld. Málið er allt hið dularfyllsta þar sem engin haldbær ástæða virðist vera fyrir ódæðinu. Þó hefur lögregla útilokað að annað þeirra hafi orðið hinu að bana og svipt sig svo lífi. „Við göngum út frá því að það hafi verið tilviljun að þau voru myrt,“ sagði talsmaður lögregl- unnar í gær. - þj Dularfullt morð við Óðinsvé: Lögreglumenn standa á gati SLYS Rétt tæplega tvítugur karlmaður lést þegar bíll valt á Landeyjavegi í Vestur-Land- eyjum suðvestur af Hvolsvelli á fimmta tímanum síðdegis í gær. Maðurinn var einn í bíln- um en ekki er hægt að gefa upp nafn hans að svo stöddu. Vegurinn þar sem slysið varð er malbikaður og var hálkulaus þegar slysið varð. Ekki fengust frekari upplýs- ingar hjá lögreglu en málið er til rannsóknar. - mþl Banaslys á Landeyjavegi: Ungur karl- maður lést LÖGREGLUMÁL Lögreglan fann eftir líkingu skotvopns við hús- leit í Reykjanesbæ í fyrradag. Tveir karlmenn, annar á fertugs- aldri en hinn tvítugur, voru hand- teknir í þágu rannsóknarinnar en skotvopnið fannst á heimili ann- ars þeirra. Þessir tveir karlmenn tengjast báðir vélhjólaklúbbi í Reykjanesbæ, MC Suðurnes, sem er stuðningsklúbbur íslensku Vítis englanna. Húsleit var einnig framkvæmd í félagsheimili MC Suðurnesja í Reykjanesbæ í tengslum við þetta mál, þar sem meðal annars var lagt hald á barefli, hafna- boltakylfur og fleira í þeim dúr, og peningaskáp. Lögregla opnaði peningaskápinn í gær og rann- sakaði innihald hans, en þar reyndist ekkert saknæmt á ferð- inni. Upphaf þessa máls má rekja til þess að annar mannanna sást með hið ætlaða skotvopn í eftir- litsmyndavél í miðborg Reykja- víkur. Að aðgerðinni stóðu lögreglu- liðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum auk lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra. Lögregla lagði hald á eftirlíkingu af skotvopni, barefli og peningaskáp: Leit hjá stuðningsklúbbi Vítisengla LÖGREGLUSTÖÐIN Í REYKJAVÍK Málið var á forræði lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið býður lesendum sínum í tíu ára afmælis veislu í Perlunni í dag milli klukkan 13 og 16. Blaðið fagnar því um þessar mundir að 23. apríl eru tíu ára liðin frá útgáfu fyrsta tölublaðsins. Af þessu tilefni verður efnt til stærstu páska- eggjaleitar Íslandssögunnar í Öskjuhlíðinni. Verður persónum úr þekktum ævintýrum komið fyrir á víð og dreif í nágrenni Perlunnar og eru heil fimm þús- und páskaegg í boði fyrir fundvísa. Utandyra verða einnig ýmis leiktæki og þrautabrautir. Inni í Perlunni verður boðið upp á þriggja tíma skemmtidagskrá en fram koma Páll Óskar, Friðrik Dór, Skoppa og Skrítla, Vinir Sjonna, Pollapönk og leikhópurinn Lotta. Herlegheitin kynnir Fransína mús. Starfsmenn blaðsins munu svo bjóða gestum upp á tíu metra langa afmælisköku, vöfflur, kaffi, heitt kakó, safa og súkkulaði. Þá hefur í Perlunni verið sett upp sýning á minnis verðum ljósmyndum og forsíðum úr sögu Fréttablaðsins. Að lokinni afmælishátíðinni mun sýningin flytjast í Kringluna, þar sem hún mun standa í tvær vikur. - mþl Stærsta páskaeggjaleit Íslandssögunnar í tíu ára afmælisveislu Fréttablaðsins: Fimm þúsund páskaegg við Perluna AFMÆLISVEISLAN UNDIRBÚIN Forsíður og fréttamyndir sem birst hafa í Fréttablaðinu prýða veggi Perlunnar í dag. Lesendum blaðsins er boðið til afmælisveislu í dag þar sem boðið verður upp á ýmsa skemmtun og veitingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ATVINNUMÁL Velferðarráðuneyt- ið og Vinnumálastofnun auglýsa níu hundruð sumarstörf um allt land í átaki til að fjölga störfum á vegum ríkisins og sveitarfélaga. Störfin er ætluð námsmönnum og atvinnuleitendum og verða kynnt í sérstöku auglýsingablaði um helgina. Einnig er hægt að sjá störfin á heimasíðu Vinnumála- stofnunar. Dæmi um störfin er rannsókn- arvinna til að kanna áhrif sjóst- angaveiðiferðamennsku á Vest- fjörðum, starf við viðhorfskönnun á Hornafirði um nýsköpunar- setur og vinna við rannsóknir á sumarexemi í hestum. Til átaks- ins renna 250 milljónir króna úr Atvinnuleysistryggingasjóði og 106 milljónir úr ríkissjóði. Umsóknarfrestur er til 8. maí. - gar Átak í atvinnumálum kynnt: Bjóða 900 störf Nagladekkin af Nagladekk eru bönnuð á götum Reykjavíkur frá og með deginum í dag. Umhverfis- og samgöngusvið borgarinnar hefur sent tilkynningu þessa efnis. Þar segir að nagladekk spæni upp malbik og þau séu áhrifa- mikill valdur að svifryki í borginni. Ökumenn eru hvattir til að skipta um dekk. UMHVERFISMÁL SPURNING DAGSINS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.