Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 18

Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 18
18 16. apríl 2011 LAUGARDAGUR Fjölsóttur fyrirlestur Laurence C. Smith fyrir nokkru um „The New North“ vakti verðskuldaða athygli. Smith, sem er prófessor við Kaliforníuháskóla í Los Ange- les, hefur stundað umfangsmiklar rannsóknir á loftlagsbreytingum og afleiðingum þeirra á norður- slóðum. Bók hans, The New North – The World in 2050, er nýkomin út í breskri útgáfu . Smith beinir athygli að áhrifum hlýnunar jarðar á afkomu NORC- landahópsins (Northern Rim Countries) en það eru þau átta ríki sem eigna sér mest allt land og haf fyrir norðan 45°: Rússland, Bandaríkin, Kanada, Danmörk- Grænland, Ísland, Noregur, Finn- land og Svíþjóð. Hlýnunin hefur margvísleg áhrif, en það sem öllu máli skiptir er bráðnun íshell- unnar miklu. Þar með yrði sam- göngum kollvarpað og auðlindir hafsins og hafsbotnsins gerðar aðgengilegar. Bandaríska land- fræðistofnunin telur að á þessu norðursvæði séu um 30% af allri ónýttri gasorku heimsins og 13% allrar olíu sem eftir er. En hverjir eiga þessi auðæfi? Í ágúst 2007 fóru Rússar sjó- leiðis á Norðurpólinn og þaðan í tveim smákafbátum niður á 4.300 metra dýpi með þjóðfánann úr titanium og komu honum fyrir á Norður pólnum. Leiðangurs- stjórinn lýsti því yfir fyrir hönd Rússa að „Norðurheimskautið er okkar!“. Ekki féll það í góðan jarð- veg hjá vestrænum fjölmiðlum og stjórnmálamönnum sem töldu að um væri að ræða ódulbúið kapp- hlaup um gæði jarðar. Viðræð- ur um þessi mál fara friðsam- lega fram í Norðurskautsráðinu – Arctic Council – og á þeim vett- vangi hefur Hafréttarsáttmáli Sameinuðu þjóðanna, Íslending- um að góðu kunnur, fengið nýtt vægi. Þrengri fimmlanda hópur, Bandaríkin, Rússland, Kanada, Noregur og Danmörk–Græn- land stóðu að sk. Iluissat yfirlýs- ingu til að tryggja þjóðréttarlega stöðu 200 mílna efnahagslögsögu og henni tengd ákvæði Hafréttar- sáttmálans á Norðurskautssvæð- inu. Michael Rocard, sérlegur fulltrúi Frakklandsforseta í heim- skautsmálum, heimsótti Ísland í fyrra og lýsti yfir efasemdum um fyrir komulag, sem í raun legði allt Norðurheimskautið undir þessi fáu lönd, gagnstætt því sem væri um Suðurheimskautið. Það kemur fleira til, svo sem Smith prófessor segir söguna. Við lok kalda stríðsins höfðu stór- veldin misst allan áhuga á norður- slóðum sem ekki var svo lítill fyr- irferðar áður. Prófessorinn sér merki nýrrar hervæðingar hefj- ast um 2009 þegar þau mál höfðu legið í láginni í nær tvo áratug. Mestur viðsnúningur í þessum efnum sé hjá Rússum. Hafin sé endurreisn norðurflota þeirra með nýrri gerð árásarkafbáta o.fl. og eftirlitsflugi með langdrægum sprengjuflugvélum. Kanada og Noregur koma einnig við sögu og þá stefni Norðurlöndin til aukins samstarfs í öryggismálum. Ekki hafi þó Bandaríkjamenn aðhafst um aukna hernaðargetu á þessu svæði en haldi fyrri herafla í Alaska. Þá sé stefnumörkun, sem gerð var á síðustu dögum valda- tíma Bush forseta í janúar 2009, í fullu gildi eftir að Obama varð forseti. Þessi forseta tilskipun setti norðurslóðir í sömu for- gangsröð og verið hafði í kalda stríðinu. Þessi áhugaverðu atriði eru aðeins lítill hluti bókarinnar. Hún fjallar um spádóma um þróunina á fjölmörgum sviðum. Forsendur eru að tækniframfarir verði hæg- fara, að þriðja heimsstyrjöldin brjótist ekki út, engin stórvá eins og óstöðvandi drepsóttir skelli á og að spádómslíkönin bregðist ekki. Þá verður alþjóða samfélag það sem skipaðist eftir seinni heimsstyrjöldina orðið óþekkjan- legt. Leiðandi efnahagsveldi nú eru Bandaríkin, Japan og Þýska- land en 2050 verði það Kína með þjóðarframleiðsluna $ 44,4 trillj- ónir, Bandaríkin 35,1 trillj. og Indland 27,8 trillj. En mergurinn málsins varðandi 2050 er að norð- lægi fjórðungur hnattkringlunnar muni hafa gjörbreyst. Á þessari öld verði þar fyrirsjáanlega mjög aukin umsvif; strategísk þýðing svæðisins aukist stórum sem og þess efnahagslega vægi. Hlýnun Norðurskautsins mun ekki breyta miklu um hitastigið á Íslandi. Því ráða sjávarstraum- arnir, segir þessi spámaður. En hann fór því miður út af sporinu alveg í lokin þegar hann fór að fabúlera um að Ísland ætti ekki að ganga í Evrópusambandið. Þetta átti víst að vera vegna þess, að þá mundi ESB einhvern veginn komast til áhrifa á norðursvæðinu fyrir okkar tilstilli. En ætti það þá ekki öllu heldur þá þegar að vera hlutverk ESB-landanna Dan- merkur, Svíþjóðar og Finnlands? Nýtt Norður Norðurslóðir Einar Benediktsson fv. sendiherra Fátækt er oftast tilkomin vegna þjóðfélagslegs vanda, atvinnu- leysis, láglaunastarfa eða of lágra bótagreiðslna. Það vill stundum gleymast í dagsins önn að ein- stæðir foreldrar með börn hafa einungis einar ráðstöfunartekjur. Þær tekjur eru misjafnar, allt frá því að teljast góðar tekjur til mjög lágra tekna, sem eru mun lægri en nýleg lágmarksframfærsluviðmið. Þeir foreldrar sem leita sér ráð- gjafar hjá Félagi einstæðra for- eldra hafa sumir hverjir ágætis fjárhag og búa við öryggi. Það eru samt sem áður mun fleiri sem eru að basla í lífsins ólgusjó, með börn á öllum aldursskeiðum, með tekjur sem duga skammt fram á veginn. Þeir hinir sömu tóku ekki þátt í lífsgæðakapphlaupinu, þegar þenslan fór um samfélagið á ógnarhraða. Þeir sem eru verst settir eru ungir einstæðir foreldra með eitt barn eða fleiri, sem hafa ekki aflað sér menntunar og lifa af einföldum verkamannalaunum, atvinnuleysisbótum eða annars konar bótagreiðslum. Fjöldi einstæðra foreldra á Íslandi í dag og eignir þeirra miðað við aðra. Um helmingur einstæðra for- eldra á Íslandi býr í leiguhúsnæði en 20% annarra fjölskyldna eru á leigumarkaði. Einstæðir foreldrar á Íslandi árið 2010 eru 10.702 (samkv. tölum frá Hafstofu Íslands). Börn sem skráð eru á heimil- um einstæðra foreldra 2010 eru 14.401. Fjöldi einstæðra foreldra í leiguhúsnæði er 5.122 á móti 5.580 sem búa í eigin húsnæði. Önnur heimili í eigin húsnæði eru 88.430 og 22.598 í leiguhús- næði. Þarna er vísbending um að eignarstaða einstæðra foreldra sé rýr miðað við aðra. Einnig er vitað að einstæðir foreldrar með börn sem leigja á frjálsum mark- aði búa ekki við sama öryggi og fjölskyldur sem búa í eigin hús- næði eða leiguhúsnæði á vegum sveitarfélaga. Foreldar af báðum kynjum sem misstu atvinnu – viðbrögð þeirra Neyðin hefur breitt hratt úr sér eftir hrun og hitt marga fyrir á ferð sinni. Til að nefna dæmi segi ég hér á eftir frá ólíkum einstaklingum, einstæðum föður og einstæðri móður. Þau áttu það sameiginlegt að búa ein með börn sín og að hafa misst atvinnu eftir nokkurra ára starf. Það reyndist báðum foreldr- unum mikið áfall og breytti miklu bæði fjárhagslega og heilsufars- lega. Höfnunin reyndist nístings- sár. Áhyggjurnar og óvissan sem var fram undan tóku sér fljótlega bólfestu í huga foreldranna. Hinir daglega skorðuðu lífshættir hurfu eins og dögg fyrir sólu. Foreldrarnir brugðust við breytt- um aðstæðum á mismunandi hátt. Annað foreldrið sagði upp leigu- húsnæði sínu eftir þriggja mánaða atvinnuleysi og flutti með barnið sitt í eitt leiguherbergi, þar sem ekki voru lengur peningar fyrir íbúðinni. Hitt foreldrið ákvað að spara í matarinnkaupum og skera nánast allt mögulegt burtu til þess að geta haldið húsnæðinu. Sameiginlegt hjá báðum var að þau leituðu allra leiða til að komast aftur út á vinnumark- aðinn og nýttu sér það sem í boði var hjá Rauða krossi Íslands, Vinnu- málastofnun og annars staðar. Það var ekki auðvelt, því atvinnuleysið olli streitu og andlegri vanlíðan. Höfnunin var einna verst meðan á atvinnuleitinni stóð, því ýmist barst ekki svar eða þetta klassíska „þakka þér fyrir að sýna áhuga en því miður hefur staðan verið veitt öðrum“. Allt gekk upp að lokum, því bæði einstæða móðirin og einstæði faðir- inn fengu störf á ný. Lægri laun en áður, en atvinna var það samt. Þeim óx styrkur og kraftur við að komst aftur út á vinnumarkaðinn og voru staðráðin í því að leita áfram upp- byggilegra sóknarfæra. Það sitja ekki öll börn við sama borð Einstæðar mæður eiga rétt á sex mánaða fæðingarorlofi, meðan sambúðarforeldrar fá níu mánuði samanlagt. Ekki virðist gert ráð fyrir að börn einstæðra mæðra þurfi jafn mikla samveru við foreldri og önnur börn á mikilvægasta mót- unarskeiði bernskunnar. Þrátt fyrir að lög um fæðingar- orlof heimili föður sem ekki er í sambúð með móður að taka þriggja mánaða fæðingarorlof er það háð samþykki móður og vilja föður. Ekki hafa all ir foreldar nýfæddra barna samband sín á milli. Ýmsar ástæður liggja að baki, þar á meðal landfræðileg fjarlægð. Við slíkar aðstæður þarf að koma aukinn réttur fæðingar- orlofs móðurinnar sem annast ein barnið sitt. Hér þarf að vera heim- ild í lögum til að móðir geti nýtt sér ónýttan rétt föður. Þennan galla á annars mjög góðum lögum þarf að leiðrétta, án þess þó að skemma jafnréttissjón- armið þeirra. Er fátækt á meðal einstæðra foreldra á Íslandi í dag? Fátækt Oktavía Guðmundsdóttir Félagsráðgjafi hjá Félagi einstæðra foreldra Ekki virðist gert ráð fyrir að börn einstæðra mæðra þurfi jafn mikla samveru við foreldri og önnur börn á mikilvægasta mótunar- skeiði bernskunnar. Breyttar aðstæður á heimsmarkaði hafa leitt til nýrra viðskiptatækifæra í orkugeiranum. Á Íslandi eru markaðstækifærin fjölbreyttari en áður. Landsvirkjun hefur unnið að greiningu tækifæra í ljósi breyttra aðstæðna á heimsmörkuðum og leggur nú áherslu á að vera markaðs- og rekstrardrifið fyrirtæki. Hver eru tækifærin og hvað þýða þau fyrir viðskiptaumhverfið á Íslandi? Á fundinum mun Dr. Hörður Arnarsson forstjóri og Magnús Bjarnason framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs kynna og ræða framtíðarsýn félagsins með sérstaka áherslu á breytt vinnubrögð í markaðsmálum. Dagskrá: Dr. Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar. Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar. Fundarstjóri: Dr. Þórhallur Örn Guðlaugsson, dósent við Viðskiptafræðideild og formaður Viðskiptafræðistofnunar. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis Orkan, Landsvirkjun og framtíðin - fjölbreytt markaðstækifæri í orkuiðnaði Þriðjudaginn 19. apríl kl. 12:00 -13:15. Háskólatorgi 105 VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.