Fréttablaðið - 16.04.2011, Síða 24

Fréttablaðið - 16.04.2011, Síða 24
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR24 Ég var stundum óánægð með hvað þjóðfélagið lagði á börnin. Mér fannst svo mikið fara fyrir því að eign- ast verald- leg auðævi, börnin biðu hnekki við það. M ér hefur alltaf geng- ið hálf illa að taka á móti verðlaunum, þá fer ég að hugsa um það sem miður fer. En auðvitað hef ég glaðst, og ég gladdist yfir verðlaun- unum ykkar,“ segir Jenna Jensdóttir þegar hún tekur á móti blaðamanni Fréttablaðsins. Jenna, sem er 92 ára gömul, skrif- aði fjölmargar bækur á löngum rithöfundar ferli. Samhliða sinnti hún kennslustörfum og fyrir ævistarf sitt er hún heiðursverðlaunahafi Sam- félagsverðlauna Fréttablaðsins í ár. Hún segist þakklát fyrir að vera enn ern. „Ég er voðalega hamingjusöm að hafa vitundina, ef maður hefur vitund- ina þá er maður maður, þó að fæturnir séu farnir að bila,“ segir Jenna, sem lætur sig ekki muna um að hella upp á fyrirtaks kaffi fyrir gestkomandi. Jenna er fædd á bænum Læk í Dýra- firði og þar segist hún hafa verið farin að segja sögur á unga aldri. „Mér er sagt að þegar ég var fimm ára hafi ég farið út í fjós með mér eldra fólki og alltaf verið að segja sögur. Þegar ég var sextán ára höfðu nokkrar þeirra birst í Unga Íslandi, það var vinur foreldra minna Gunnar M. Magnús sem tók þær suður fyrir mig,“ segir Jenna og rifjar upp eina sögu sem vinir hennar á handritadeild Þjóðar- bókhlöðunnar færðu henni til lestrar fyrir skömmu. „Hún hét Ranglæti, og á ég að segja þér hvert það var? Þann- ig var að við systurnar vorum að þrífa litla torfbæinn heima, við vorum tólf ára, þá kemur bróðir minn sem var ári eldri og fékk að fara á skónum inn, og er ekki ávítaður. Hitt var það að það var byrjað að selja hesta til útlanda á þessum tíma og pabbi lætur tvo hesta. Það hafði óskapleg áhrif á mig og ég velti því fyrir mér í sögunni hvort fólk verði hamingjusamt að fá pening fyrir hest,“ segir Jenna og hlær þegar hún rifjar upp þessar hugleiðingar ung- lingsstúlku um ranglæti. Amma hvatti mig til dáða Spurð hvort hún hafi verið hvött til skrifta segir Jenna að amma henn- ar og alnafna hafi alltaf hvatt hana til dáða. „Amma mín sem ég elskaði mjög mikið hafði mikil áhrif á mig. Hún studdi mig óskaplega mikið til skrifta. Hún sagði mennt er máttur og sagði mér að ef ég kæmist í það ætti ég að fara út í heiminn. Og ég fór niður að sjónum og horfði á hafið og víðáttuna og hugsaði með mér að ég yrði að kom- ast að því hvað væri að finna í heim- inum. Amma tók í nefið og hún sagði eitt sinn við mig: Sjáðu ég get ekki hætt þessu og hún ráðlagði mér að láta aldrei neitt ráða svona yfir mér. Ég er ekki fanatísk á áfengi en ég hef varla bragðað það. Ég hef nefnilega alltaf hugsað um vitund mína,“ segir Jenna. Þegar Jenna var sextán ára knúði sorgin dyra á heimili hennar þegar móðir hennar veiktist af krabba- meini. „Þá var ekki lengur pláss fyrir okkur öll á heimilinu. Tvíburasyst- ir mín, Áslaug, var farin að líta hýru auga til sonar óðalsbóndans á Núpi og hana langaði ekki að heiman, en ég fór bara.“ Fyrsti áfangastaður Jennu var Stykkishólmur. „Fyrst var ég vinnu- kona í Stykkishólmi og svo fór ég til Reykjavíkur. Ég átti ekki mikið en ég hef alltaf verið með góðu fólki. Ég var alltaf að skrifa, ég var alltaf að hugsa og ég var alltaf hamingjusöm. Ég hef alltaf vitað að andlega þjáning er meiri en líkamleg en reynt að vinna úr henni með því að finna það góða í veröldinni og gleðjast,“ segir Jenna. Vann á daginn og las á nóttunni Komin til Reykjavíkur kepptist Jenna við til að komast inn í Kennaraskól- ann. „Ég leigði mér herbergi en vann fyrir mér með þrifum. Og einmitt dagana sem prófið var þá var verið að gera hreint, svo ég vann allan dag- inn og las á nóttinni. Ég var neðst á prófinu, en ég komst inn. En svo hætti ég í Kennaraskólanum því maðurinn minn var einu ári á undan mér og hann fór til Akureyrar og stofnaði það sem kallað var smábarnaskóli fyrir fjög- urra, fimm og sex ára börn. Ég fór með honum þó að ég ætti eitt ár eftir. Sjáðu hvað tímarnir hafa breyst, mér þótti svo sjálfsagt að fara með honum þó að ég væri búin að þræla fyrir þessu námi. En prófið tók ég mörgum árum seinna,” segir Jenna sem vegna anna við kennslu kom sér upp ákveðnu vinnulagi við skriftir. „Þegar við fluttum norður þá töluð- um við um að ég héldi áfram að skrifa og fengi til þess tíma. En annirnar kalla og ég fór að kenna og í fram- haldinu fór ég að skrifa milli fimm og hálfátta á morgnana, og nú bý ég að því. Ég fer alltaf á fætur um sex og skrifa. Ég er mjög léttsvæf og ef að liggur eitthvað í huga mér þá verð ég að leyfa því að koma út. Sérstaklega ef að ljóðin koma til mín,“ segir Jenna sem er þekktust fyrir barnabókaskrif sín. Öddu-bækurnar eru hennar þekkt- ustu verk en Jenna sem var skrif- uð fyrir þeim ásamt manni sínum Hreiðari Stefánssyni. Hún segir þau þó alltaf hafa skrifað í sitthvoru lagi. „Ég skrifaði Öddu bækurnar fyrstar, handskrifaði þær og fjölritaði í 30 ein- tökum. Svo létum við krakkana í skól- anum fá þetta til að lesa. Svo ákváð- um við og það var með fullri vitund minni og gleði að setja á bækurnar þegar þær voru gefnar út bæði nöfn- in. Við hugsuðum sem svo að skólinn yrði kynntari við það. En við skrifuð- um alltaf út af fyrir okkur þó að nöfn okkar beggja væru á öllum bókum. Ég get nefnt til dæmis að bókina Sumar í sveit skrifaði maðurinn minn einn.“ Andleg auðlegð nauðsynleg Jenna og Hreiðar fluttu suður árið 1963. „Við fórum bæði að kenna í Langholtsskóla, þar var ég í 21 ár. Ég kunni best við mig hjá fjórtán, fimm- tán og sextán ára börnum en ég kenndi á öllum stigum. Mér féll þessi aldur best því að þessi börn eru að vakna til þess að verða fullorðin. Ég verð að nefna að ég var stundum óánægð með hvað þjóðfélagið lagði á börnin. Mér fannst svo mikið fara fyrir því að eignast veraldleg auðævi, börnin biðu hnekki við það. Ég fann líka hið góða í Hef alltaf verið með góðu fólki Mér finnst ég vera ótrúlega hamingjusöm, segir Jenna Jensdóttir, heiðursverðlaunahafi Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins. Jenna vann sem kennari um áratugaskeið og er þjóðkunn fyrir barnabækur sínar. Sigríður Björg Tómasdóttir ræddi við Jennu um upp- vöxtinn í Dýrafirði, þörfina til að skrifa og áratuga starf við kennslu barna og unglinga á Akureyri og í Reykjavík. JENNA JENSDÓTTIR „Ég var alltaf að skrifa, ég var alltaf að hugsa og ég var alltaf hamingjusöm,” segir Jenna Jensdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Öddu-bækurnar eru vinsælustu bækur Jennu og þær hafa margsinni verið endur- útgefnar síðan þær komu fyrst út árið 1946. Í þeim segir frá Öddu sem er munaðar- laus en er tekin í fóstur af góðu fólki í fyrstu bókinni. Bækurnar eru sjö talsins og í þeim fylgjumst við með Öddu eldast og þroskast en á þeirri leið lendir hún í ýmsum ævintýrum og uppákomum. Árið 2009 hóf Bókafélagið Ugla endurútgáfu bókanna og eru nú þrjár fyrstu komnar út, Adda, Adda og litli bróðir og Adda lærir að synda. Bækurnar eru gefnar út í upprunalegri mynd með teikningum Halldórs Péturssonar. Að sögn Jakobs F. Ásgeirssonar útgefanda hefur bókunum verið vel tekið af nýjum lesendum. „Þær standa alveg fyrir sínu þessar bækur enda umfjöllunarefnið sígilt,“ segir Jakob. Sígildar Öddubækur manneskjunum og hef aldrei hitt for- eldri sem ekki vildi barninu sínu það besta, en fólk réði ekki við þjóðfélagið. Það er ríkt í okkur Íslendingum það sama og er ríkt í litla bróður þegar hann sér stóra bróður, ég veit að þú skilur hvað ég á við,” segir Jenna og brosir. Andleg verðmæti skipta hana meiru en veraldleg og þau telur hún gagnast börnum best. „Að alast upp á heimili þar sem er andleg auðlegð, ég held að það sé nauðsynlegast öllu.“ Sjálf á Jenna tvo syni, Stefán og Ástráð. „Þeir sögðu synir mínir að þeir vissu ekki hvernig þeir ólust upp. Maður ávítaði þá ekki en reyndi að kenna þeim. Það er óskaplega kært á milli okkar, þeir bjóða mér góða nótt á hverjum degi og vaka yfir mér. Ekki bara þeir heldur barnabörnin og barna- barnabörnin. Ástráður á fimm börn og Stefán þrjú. Þetta er allt svo nálægt mér og gott við mig. Þegar við tölum saman þá tölum við um mannlífið og þjóðlífið. Mér finnst ég vera ótrúlega hamingjusöm. Amma mín sagði við mig; Sofnaðu sátt að kvöld og þegar þú vaknar hugsaðu þá: Til hvers hlakka ég í dag? Mér hefur tekist að gera þetta. Ég hef ekki orðið reið þó að þjáningu hafi borið að höndum heldur hugsað að við verðum að gleðjast yfir því sem hægt er,“ segir Jenna sem segir rétt- sýni, kærleika og heilindi það mikil- vægasta í lífinu. „Ég man að ég skrökv- aði einu sinni að ömmu minni, hún varð hrygg og sagði að þegar maður hefði skrökvað einu sinni þá væri hætta á því að maður gerði það aftur. „Og það á eftir að valda þér svo miklum vand- ræðum en ef þú segir sannleikann þá veldur hann þér ekki vandræðum því hann rekur sig sjálfur,“ sagði hún við mig,“ rifjar Jenna upp. Og bætir við að markmið allra hljóti að verða vandaður maður. „Ef maður er vandaður maður á jörðinni þá er það það besta,“ segir Jenna að lokum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.