Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 26

Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 26
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR26 S ólin skein í Reykja- vík að morgni mánu- dagsins 12. apríl 2010 þegar rannsóknar- nefnd Alþingis kom úr Skeifunni, þar sem hún hafðist við í lúinni skrifstofubygg- ingu í rúmt ár, til fundar við sam- félagið. Spennan í loftinu fannst vel. Fátt hafði spurst um innihald skýrslunnar og fólk vissi ekki almennilega á hverju það mætti eiga von. Það eitt var víst að nefndin myndi bera sannleikann á borð líkt og Alþingi hafði falið henni að gera. Spurningin var hver þessi sannleikur væri. Eftir stutta athöfn í Alþingis- húsinu hélt nefndin fund með blaðamönnum í Iðnó. Líklega hafa ekki fleiri blaðamenn verið saman komnir á einum fundi á Íslandi, nema kannski á aðalfundi Blaða- mannafélagsins. Kaflaskil Skýrslunni var almennt mjög vel tekið. Efnt var til umræðna um hana í þinginu, fáum klukkustund- um eftir útkomu og þar sparaði fólk ekki stóru orðin. „Birting skýrslunnar boðar kaflaskil,“ sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra. „Hún er þungur áfellisdómur yfir stjórn- kerfi, stjórnmálum, eftirlits aðilum og fjármálastofnunum en um leið áskorun um heiðarlegt uppgjör, breyttar leikreglur í stjórnmálum og nýja og skýrari starfshætti í stjórnkerfinu.“ Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, lagði áherslu á að þingmenn hefðu sig upp úr skotgröfum stjórnmálanna og ynnu saman að því að draga sameiginlegan lærdóm af efni skýrslunnar, nýttu niðurstöðurn- ar á uppbyggilegan hátt með það að markmiði að endurreisa sam- félagið og tryggðu að hrunið end- urtæki sig ekki. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknarflokks- ins, sagði skýrsluna ekki hafna yfir gagnrýni en ekki ætti að ein- blína á það heldur nýta tækifærið og læra af reynslunni. Sársaukafullt uppgjör Birgitta Jónsdóttir Hreyfing- unni reri á önnur mið: „Þær upp- lýsingar sem koma fram í dag eru áfellis dómur fyrir þingið og stjórnsýslu landsins. Tengsl- in á milli viðskiptalífs og þing- heims eru svo þéttofin að skömm er að. Það kemur því miður fram í skýrslunni að enginn vill axla ábyrgð, fólk bendir hvert á annað og virðist fyrirmunað að sjá þátt sinn í hrunadansinum sem hefur leitt mikla og óbærilega ógæfu yfir þjóðina. Það hlýtur að vera þeim fjölmörgu þingmönnum sem sjá nöfn sín samofin skýrslunni hvatning til að axla ábyrgð.“ Eft i r að h a fa þa k k að rannsóknar nefndinni og siðfræði- hópi hennar fyrir vel unnin störf sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra þetta: „Nú hefst annar kafli og hann er ekki síður mikilvægur, að vinna úr þessum miklu gögnum og gera allt það sem gera þarf og gera verður til að uppgjörið verði heiðarlegt, málefnalegt, yfirvegað – en þó eins vægðar laust og sársaukafullt og það því miður sýnist þurfa að verða til að standa undir nafni.“ Allir benda á aðra En hver er niðurstaðan? Hver er sannleikurinn? Nefndin dregur margt fram. Margt klikkaði á árunum fyrir hrun. Það má eigin- lega segja að allt hafi verið í rúst áður en bankarnir hrundu. Á næstu síðu er hlaupið yfir nokkrar af helstu niðurstöðum nefndarinnar. Það var náttúrlega ekki eitthvað eitt sem felldi bank- ana heldur samverkandi þættir. Og eins og Einar Már Guðmunds- son rithöfundur rifjar upp er stað- fest í skýrslunni að stjórnmála- mennirnir bentu á bankamennina og bankamennirnir á stjórnmála- mennina. Þannig er það enn. Fáir hafa gengist við ábyrgð. Hins vegar er ljóst að einhverjir munu þurfa að svara til saka fyrir gjörð- ir sínar í aðdraganda hrunsins. Sérstakur saksóknari er með þau mál á sinni könnu. Og þó Einn er þó sá maður sem hefur gengist við ábyrgð á sínum þætti hrunsins. Björgólfur Thor Björgólfs- son fagnaði útkomu skýrslunnar, gekkst við því sem hann nefndi augljós mistök sín og baðst afsök- unar. „Ég undirritaður, Björgólfur Thor Björgólfsson, bið alla Íslend- inga afsökunar á mínum þætti í eigna- og skuldabólunni sem leiddi til hruns íslenska bankakerfisins. Ég bið ykkur afsökunar á andvara- leysi gagnvart þeim hættumerkj- um sem hrönnuðust upp. Ég biðst afsökunar á að hafa ekki auðnast að fylgja hugboði mínu þegar ég þó kom auga á hættuna. Ég bið ykkur afsökunar,“ skrifaði Björg- ólfur tveimur dögum eftir útkomu skýrslunnar. Um leið gerði hann þó fyrirvara við ýmislegt sem kemur fram í henni og nú, ári síðar, er hann byrjaður að leiðrétta það sem hann segir augljósar villur, rang- ar ályktanir og hreinan uppspuna. Engin áhrif til góðs Líkt og viðskiptin tekur Björgólf- ur skýrsluna föstum tökum. „Ég, eins og flestir aðrir, batt vonir við að skýrslan myndi marka nýtt upp- haf og veita þjóðinni nauðsynlega viðspyrnu … Því miður hefur mér ekki orðið að ósk minni. Skýrslan hefur enn engin áhrif haft til góðs á íslenskt samfélag,“ skrifar hann og kveðst mjög ósáttur við vinnu- brögð rannsóknarnefndarinnar. Þótt hans sé víða getið hafi hann ekki verið kallaður fyrir nefndina. Hyggst hann hrekja margt í skýrslunni á vef sínum btb.is á næstunni. Annar ósáttur er Davíð Odds- son. Hann varð ber að vanrækslu í starfi sínu í Seðlabankanum, að mati nefndarinnar, en sjálfur vísar hann því á bug. Sendi hann nefndinni langa greinargerð sér til varnar og hrekur í henni flest- ar staðhæfingar nefndarinnar. Hér verður ekki gerð tilraun til að sannreyna hvor aðilinn hafi rétt fyrir sér, Davíð eða rannsóknar- nefndin, en á það má benda að settur ríkissaksóknari í málum er varða bankahrunið komst að þeirri niðurstöðu snemmsumars í fyrra að ekki væri tilefni til að efna til sakamálarannsóknar á hendur Davíð, starfsbræðrum hans tveim- ur í Seðlabankanum og forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Landsdómur Í framhaldi af útkomu skýrslunnar setti Alþingi á fót nefnd til að fjalla um hana og móta tillögur að við- brögðum þingsins við niðurstöð- unum. Atli Gíslason valdist til for- mennsku og var nefndin jafn- an nefnd Atla-nefndin. Hún lauk störfum í september og niður- stöðurnar komu mörgum á óvart. Meirihluti nefndarinnar lagði til að fjórir ráðherrar yrðu dregnir fyrir landsdóm. Landsdómur hefur verið til sam- kvæmt lögum í meira en hundrað ár en aldrei hafði komið til þess að máli væri vísað til hans. Alþingi greiddi atkvæði um til- lögur um landsdóms-ákærur í lok september og samþykkti að ákæra bæri Geir H. Haarde. Tillögur um ákærur á hendur Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, Árna M. Mathie- sen og Björgvin G. Sigurðsson voru felldar. Atli Gíslason sagði nýverið í við- tali við Fréttablaðið að landsdóms- hlið nefndarstarfsins hafi farið út í pólitísk hrossakaup. „Það voru undirmál í gangi, eitthvað sem ég hef aldrei náð utan um. Ég vann málið mjög faglega, eingöngu lög- fræðilega, og spurði mig oft hvort ég væri í pólitískri vegferð en gat alltaf svarað því neitandi,“ sagði hann. Upplýsti Atli jafnframt að hann hefði hugsað aðra leið en ákærur fyrir landsdóm. „Að sam- þykkja vítur á þinginu með þings- ályktun var ein leiðin.“ Sjálfstæð- ismennirnir í nefndinni hafi hins vegar ekki viljað leggja dóm á van- rækslusyndir ráðherranna fyrr- verandi og leiðin því lokast. Áfellisdómur Atla-nefndin lagði ekki einasta til ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum heldur næstum fjögur hundruð blaðsíðna skýrslu og ítur- vaxna þingsályktunartillögu. Hún FRAMHALD Á SÍÐU 28 Nýtt upphaf eða bara orð? Ár er liðið frá útkomu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Margir biðu skýrslunnar með eftirvæntingu enda stóðu vonir til að hún myndi varpa ljósi á sannleikann um hrunið og marka upphaf nýs Íslands. Ekki voru til fordæmi af innlendum vettvangi um verkefnið enda atburðirnir sem fjallað var um algjörlega einstakir. Björn Þór Sigbjörnsson pælir í áhrifum skýrslunnar þykku. Á LEIÐ TIL FUNDAR VIÐ ÞJÓÐINA Rannsóknarnefnd Alþingis gekk ákveðnum skrefum frá þinghúsinu í Iðnó þar sem hún, á fundi með blaðamönnum, opinberaði skýrslu sína um aðdraganda og orsakir falls bankanna. Nefndina skipuðu Páll Hreinsson, Tryggvi Gunnarsson og Sigríður Benediktsdóttir. Tveir starfsmenn Alþingis urðu þeim samferða. Skýrslan er mikil að vöxtum; síðurnar 2.000 í níu bindum vega tíu kíló. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.