Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 38
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR38
1
5
2
6
3
7
4
9
8
1. FJÖLMENNING Í FELLUNUM
Kannaðu nýtt hverfi
Breiðholtið er heimur sem er mörgum ókunnur
og fyrir þann hóp er tilvalið að halda í könnun-
arleiðangur í Fellahverfið. Þar er margt að sjá
fyrir áhugafólk um borgarmenningu, lengsta
fjölbýlishús landsins, við Iðufell, Gyðufell og
Fannarfell og þau fjölmennustu í Æsu- og Asp-
arfelli. Í Gerðubergi eru ætíð listasýningar og
sunnudagar eru barnadagar í útbúi Borgar-
bókabókasafnsins þar. Fella- og Hólakirkja er
leynd perla og útsýnið þaðan er óvænt.
2. HELLAFERÐ Í HEIÐMÖRK
Ekki gleyma vasaljósinu
Maríuhellar eru vestast í Heiðmörk, skammt
frá Vífilsstaðavatni. Inngangurinn lætur ekki
mikið yfir sér en ævintýraheimur blasir við
þegar niður er komið. Ferðin niður er hin
mesta upplifun fyrir unga sem aldna, en ráð-
legt er að vera með hjálm og vissulega vasa-
ljós.
3. KEFLAVÍK ER ENGRI LÍK
Ólsen Ólsen er ekki bara nafn á spili
Ýmsir skemmtilegir möguleikar eru í stöðunni
þegar skipuleggja á dagsferð til Keflavíkur.
Poppminjar heilla nörda, sundlaugin fjölskyldu-
fólk og Ólsen Ólsen skorar hátt á lista skyndi-
bitaunnenda. Þá svíkur bíltúr um miðbæinn
engan.
4. FLOTTASTA SUNDLAUG
LANDSINS
Nostalgískur bíltúr fyrir fullorðna
Ein flottasta sundlaug landsins er sundlaugin í
Laugaskarði í Hveragerði, byggð á fjórða ára-
tugnum, hönnuð af húsameistara ríksins. Eftir
sundsprett í henni er hægt að rölta sem leið
liggur að Listasafni Árnesinga og skoða meðal
annars ljósmyndir úr fórum Hvergerðinga. Svo
má rúnta og fá sér ís bæjarins, Kjörís.
5. ÞAÐ ER FALLEGT Á
STOKKSEYRARBAKKA
Nýtt sjónarhorn á Suðurland
Gömul hús og gott kaffi eru tveir
hlutir sem finna má á Eyrar-
bakka. Þar er líka falleg
fjara sem er skemmtileg
til göngutúra. Fjallasýnin
í Flóanum er svo ægifögur
þegar ekið er sem leið ligg-
ur í austurátt. Stokkseyri
er skemmtilegur viðkomu-
staður, einkum fyrir hum-
arsvanga og svo má auðvitað
líta við á Selfossi áður en lagt
er af stað heim.
6. EKKI BRATT, BARA MISMUN-
ANDI FLATT
Esjan er 914 m á hæð yfir sjávarmáli
Göngutúr upp í hlíðar Esju
er fæstum ofraun og útsýn-
ið yfir höfuðborgina svík-
ur engan, því hærra, því
betra. Á þessum árstíma
er hins vegar ekki
hægt að stóla á að
viðri til fjalla-
ferða og því
hægt að hafa
Úlfarsfell í
Mosfellssveit
sem varaplan í
fjallagöngu páskanna.
7. FISK Á DISK
Rennt fyrir fiski í Reynisvatni
Stangveiði er fyrirtaks fjölskyldusport og til-
valið að leyfa litlum krökkum að stíga sín fyrstu
skref í veiði í vötnum, til dæmis Reynisvatni.
Ef áhuginn dvínar má alltaf fara í göngutúr og
skoða náttúru í næsta nágrenni borgarinnar.
8. KRÆKLINGAFERÐ Í FJÖRU
Eldað úti í náttúrunni.
Kræklingur eru gæðafæða sem hægt er að
tína víða um landið, til að mynda í Hvalfirði.
Í kræklingaferð er nauðsynlegt að muna eftir
potti og prímusi svo hægt sé að sjóða nýtíndan
kræklinginn strax. Eftir fjöruferð í Hvalfirði
er tilvalið að kíkja í Kjósina og ná úr sér hroll-
inum á Kaffi Kjós sem opnar um páskana eftir
vetrarlokun.
9. UPP UNDIR EIRÍKS-
JÖKLI
Reykholt og Húsafell
Páskabíltúr í Húsafell getur haf-
ist með heimsókn á söguslóðir
Snorra Sturlusonar í Reykholti.
Eftir nestisstopp við Barnafossa
í Hvítá liggur leiðin í Húsafell.
Í fallegu umhverfi er margt að
skoða. Sundlaugin í Húsafelli er
opin um páskana fyrir þá sem kjósa
afslöppun frekar en hreyfingu.
Skemmtilegir skreppitúrar
Páskarnir eru handan við hornið og þeim fylgja langir og ljúfir frídagar. Þeir sem ekki hyggja á langferð fá hér nokkrar
hugmyndir að skemmtilegum dagsferðum sem hefjast á höfuðborgarsvæðinu.
Veðrið hefur ekki beinlínis leikið
við landsmenn undanfarið en
þá er að vona að það viti á gott
fyrir páskaveðrið. Ýmislegt er
um að vera um páskana eins
og venja er. Óhætt er að mæla
með þessu.
■ Aldrei fór ég suður á Ísafirði
Hin einstaka tónlistarhátíð á
Ísafirði fer fram um páska-
helgina eins og undanfarin ár.
■ Páskafjör í Fjarðabyggð
Skíðasvæðið í Oddskarði er
með því betra á landinu og
Austfirðingar lofa snjó um
páskana og skemmtilegri dag-
skrá í bæjarfélögunum.
■ Alltaf gaman á Akureyri
Skráning er hafin í Páskaskíðaskóla barnanna á Akureyri því Norðlendingar treysta á sól og
snjó þó að komið sé fram yfir miðjan apríl. Ýmislegt fleira er við að vera fyrir norðan um
páskana og örugglega margir sem fara þangað í ár sem endranær.
■ SÓL OG SNJÓR
ROKK OG RÓL Aldrei fór ég suður stendur alltaf fyrir
sínu.