Fréttablaðið - 16.04.2011, Side 53
LAUGARDAGUR 16. apríl 2011 5
ÓSKUM EFTIR VÖNUM TRÉSMIÐ
Óskum eftir vönum trésmið á trésmíðaverkstæði
okkar á höfuðborgarsvæðinu. Þarf að vera vanur
vinnu á Rover A3 tölvufræsara.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið
tsh@centrum.is
Hjúkrunarfræðingar óskast
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á kvöld- og
helgarvaktir. Um er að ræða 60% starfshlutfall.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri:
Jónbjörg Sigurjónsdóttir í síma 510-2101
jonbjorg@skogar.is
Árskógum 2, Breiðholti / Mjódd
Sölufulltrúa vantar
Vogue í Mörkinni 4, Reykjavík, leitar eftir sam-
viskusömum sölufulltrúa til starfa sem fyrst. Til
greina kemur bæði fullt starf eða hlutastarf.
Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri,
hafi reynslu af verslunarstarfi eða saumaskap og
áhuga á fata og gardínuefnum.
Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur:
Mannleg samskipti
Söluhæfileika
Áhuga á tískustraumum í fata og gardínuefnum.
Tölvukunnáttu: word, excel og outlook og hæfileika
til að læra á tölvukerfi verslunarinnar.
Aðstoða við að panta og bóka vörur.
Taka á móti pöntunum
Saumakunnátta (æskileg en ekki nauðsynleg)
Vinsamlegast sendið ferilskrá með mynd fyrir 27
apríl nk. á netfang: vogue@vogue.is eða
sveinndal@vogue.is
Nánari upplýsingar gefur Sveinn Dal Sigmarsson í
síma: 8921170.
Vogue
Mörkinni 4 104 Reykjavík s. 533 3500
FJÁRVAKUR – FJÁRMÁLAÞJÓNUSTA EHF.
REYKJAVÍKURFLUGVELLI I 101 REYKJAVÍK
SÍMI 50 50 250 I FAX 50 50 259
FJARVAKUR@FJARVAKUR.IS
WWW.FJARVAKUR.IS
SÉRFRÆÐINGAR Í
FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU
VIÐSKIPTAFRÆÐINGAR
TÖLVUNAR- OG/EÐA KERFISFRÆÐINGAR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
S
5
46
08
0
4.
20
11
ÞJÓNUSTUSTJÓRI
/ AÐALBÓKARI Í FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU
STARFSSVIÐ
II Yfirumsjón með bókhaldi ákveðinna
viðskiptavina
II Afstemmingar og lokafrágangur
í mánaðar- og árshlutauppgjörum.
II Skil á bókhaldi til endurskoðunar
II Úrvinnsla tölulegra upplýsinga fyrir stjórnendur
II Þátttaka í ýmsum umbótaverkefnum
MENNTUNAR- OG HÆFNIKRÖFUR
Viðskipafræðimenntun af endurskoðunar- eða
fjármálasviði. Mikil reynsla á sviði bókhalds, af
afstemmingum og uppgjörum skilyrði. Mjög góð
Excel þekking. Mikil þjónustulund og skipulögð
vinnubrögð. Reynsla af endurskoðunarskrifstofu
er æskileg. Unnið er náið með stjórnendum
viðskiptavina við þjónustu og upplýsingagjöf.
VERKEFNASTJÓRI
Í UPPLÝSINGATÆKNIDEILD
STARFSSVIÐ
II Dagleg notendaþjónustua og bilanavakt
fjárhagsupplýsingakerfa félagsins
II Uppsetningar og þróun fyrirliggjandi
fjárhagskerfa
II Þróun nýrra lausna
II Verkefnastjórn í innleiðingu nýrra lausna
II Önnur tilfallandi verkefni innan
upplýsingatæknideildar
MENNTUNAR- OG HÆFNIKRÖFUR
Háskólapróf í tölvunar- og/eða kerfisfræði.
Þekking á .NET, XML, SQL, Reporting Services,
Axapta og vefstöðlum. Mikil þjónustulund og
skipulögð vinnubrögð. Á upplýsingatæknideild
félagsins starfa 3 starfsmenn en hýsingu fjárhags-
kerfanna er úthýst. Notendur eru rúmlega 400 út
um allan heim.
Fjárvakur-fjármálaþjónusta ehf. er dótturfélag
Icelandair Group. Félagið sérhæfir sig í umsjón
verkferla sem tilheyra fjármálasviði fyrirtækja og
býður fyrirtækjum allt frá heildarlausnum til
afmarkaðra verkefna á því sviði. Helstu verkferlar
eru umsjón bókhalds, fjárhagsuppgjör, innheimta,
greiðsla reikninga, kostnaðareftirlit, fjármála-
stjórn, launavinnsla og önnur starfsmanna-
þjónusta.
Hjá fyrirtækinu á Íslandi starfa um 60 manns sem
búa yfir áralangri reynslu í rekstri fjárhagskerfa og
framleiðslu fjárhagsupplýsinga sem uppfylla
ströngustu kröfur stjórnenda. Mikil áhersla er lögð
á að veita viðskiptavinum ávallt framúrskarandi
þjónustu.
Viðskiptavinir okkar eru stór alþjóðleg fyrirtæki og
stofnanir með samanlagða veltu vel yfir 100
milljarða króna og með rúmlega 4 þúsund starfs-
menn. Aðsetur félagsins er í Icelandairhúsinu við
Reykjavíkurflugvöll. Nánari upplýsingar er að finna
á www.fjarvakur.is.
Fjárvakur leitar eftir metnaðarfullum,
áhugasömum og duglegum einstaklingum í
spennandi og krefjandi störf. Boðið er upp á
gott starfsumhverfi og þægilega starfs-
aðstöðu, auk tækifæris til þróunar í starfi.
Lögð er áhersla á að viðkomandi hafi mikla
þjónustulund, metnað og geti unnið
sjálfstætt.
Umsóknir óskast fylltar út á vef félagsins,
www.fjarvakur.is eigi síðar en 27. apríl.
Nánari upplýsingar um störfin veitir
Magnús Kr. Ingason,
framkvæmdastjóri félagsins.