Fréttablaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 81
LAUGARDAGUR 16. apríl 2011 41
Chicago Bulls
Indiana Pacers
Boston Celtics
New York Nicks
Orlando Magic
Atlanta Hawks
Miami Heat
Philadelphia 76ers
Oklahoma City Thunder
Denver Nuggets
San Antonio Spurs
Memphis Grizzlies
Dallas Mavericks
Portland Trail Blazers
Los Angeles Lakers
New Orleans Hornets
AUSTURDEILDIN VESTURDEILDIN
ÞESSI LIÐ MÆTAST Í FYRSTU UMFERÐ ÚRSLITAKEPPNINNAR
NBA
New Orleans Hornets í fyrstu
umferðinni og komast á skrið sem
erfitt reynist að stöðva, enda virð-
ist úrslitakeppnin eiga betur við
þá Englaborgarbúa en flesta aðra.
Oklahoma City Thunder stóð
sig vel alla leiktíðina og lauk leik
í fjórða sæti vesturdeildar. Þeir
hafa enda innanborðs stigakóng
deildarinnar, Kevin Durant, og
leikstjórnandann frábæra Rus-
sell Westbrook. Báðir eru 22 ára,
svo framtíðin er björt fyrir þetta
unga lið. Þeir mæta Denver Nug-
gets í fyrstu umferðinni, liði sem
hefur með aðdáunarverðum hætti
tekist að halda sjó eftir að hafa
misst sínar skærustu stjörnur til
New York í febrúar.
Ný gullöld í vændum í Chicago?
Og þá er aðeins eftir að víkja orðum
að besta liði deildarinnar, liðinu
sem öllum að óvörum vann flesta
leiki allra liða, sigraði í austurdeild-
inni eftir að hafa með naumindum
komist í úrslitakeppnina í fyrra,
og hélt stöðugum dampi alla mán-
uðina sex þrátt fyrir meiðsli. Þetta
lið heitir Chicago Bulls og hefur
ekki átt jafngóðu gengi að fagna
síðan Michael nokkur Jordan fór
mikinn með því fyrir rúmum ára-
tug. Mestan heiður af þessu afreki á
leikstjórnandinn Derrick Rose, sem
fjallað er um nánar hér að neðan,
en þjálfarinn Tom Thibodeau á auð-
vitað skilinn sinn skerf af hrósi.
Sigur á Indiana Pacers í fyrstu
umferð ætti að vera formsatriði.
Vonbrigðin og allt hitt
En fleira bar til tíðinda á tíma-
bilinu. Kraftframherjinn Kevin
Love hjá Minnesota Timberwol-
ves, lélegasta liði deildarinnar,
átti frábært tímabil og varð frá-
kastakóngur. Leikur hans gegn
New York í nóvember, þar sem
hann skoraði 31 stig og tók 31 frá-
kast verður lengi í minnum hafð-
ur, enda hafði þá engum tekist að
leika slíkan 30-30-leik í 29 ár. Þótt
Steve Nash hafi orðið stoðsend-
ingakóngur mistókst Phoenix Suns
að komast í úrslitakeppnina og
eins léku Milwaukee-menn nokk-
uð undir væntingum. Einn dáðasti
þjálfari síðari tíma, Jerry Sloan,
lét af störfum hjá Utah Jazz eftir
ágreining við skærustu stjörnu
liðsins, leikstjórnandann Deron
Williams. Williams var stuttu
síðar skipt til New Jersey Nets og
Utah komst ekki í úrslitakeppnina.
Og það er úrslitakeppnin sem öllu
máli skiptir. Hún fer nú í hönd og
það er varla ofmælt að sjaldan hafi
verið eins erfitt að lesa í það hvaða
lið koma til með að kljást undir það
síðasta. Hvort innistæða hafi verið
fyrir stórkarlalegum yfirlýsingum
LeBrons James og félaga í Miami
Heat. Hvort Chicago og San Anton-
io geta sett punktinn yfir i-ið. Eða
hvort Lakers tekur þetta bara eins
og síðustu ár.