Fréttablaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 105
LAUGARDAGUR 16. apríl 2011 65
Ballhljómsveitin Playmo
ætlar að sér stóra hluti
í sumar. Vinskapur við
hljómsveitirnar Mars og
Dalton varð til þess að
Playmo var stofnuð.
„Við ætlum okkur stóra hluti í
sumar,“ segir Baldvin Árnason,
eða Baddi, gítarleikari reykvísku
ballhljómsveitarinnar Playmo.
Sveitin byrjaði að spila opinber-
lega fyrir einu ári og ætlar að
vera dugleg við spilamennsku í
sumar. Á efnisskránni eru dans-
væn lög eftir vinsælar hljóm-
sveitir enda er stefna Playmo að
halda fólki úti á dansgólfinu eins
lengi og mögulegt er. „Það er ekk-
ert skemmtilegra en að standa
uppi á sviði og sjá fólk dansa sig
sveitt. Það veitir okkur mestu
ánægjuna. Við ætlum að spila
mikið í sumar og gera Playmo að
þekktu nafni á meðal ballhljóm-
sveita,“ segir Baddi og útilok-
ar ekki að einn góðan veðurdag
verði Playmo stærri en Skímó.
Hann horfir mjög upp til Sálar-
innar hans Jóns míns, sem trón-
aði á toppi ballbransans í mörg
ár. „Það er erfitt að komast með
tærnar þar sem þeir hafa hælana.
Það vantar í dag fleiri hljómsveit-
ir á þessum skala eins og Sálina
og SSSól og við viljum taka þátt
í að endurvekja þessa ballmenn-
ingu. Þetta er lítill markaður eins
og stendur og það mættu alveg
vera fleiri staðir í bænum sem
eru með svona live-tónlist.“
En hvers vegna ákváðuð þið
að hella ykkur út í þennan erfiða
ballbransa? „Okkar vinahópur
er dálítið í þessu. Við þekktum
strákana í Mars og Dalton og
höfum stundað böllin mikið með
þeim. Við ákváðum einn daginn
að stefna á svipað ról og þeir,“
segir Baddi, sem telur Dalton
vera bestu ballhljómsveit lands-
ins. Til marks um vináttuna við
Dalton tók Playmo nýverið upp
nýtt lag sem nefnist „Já sæll, já
fínt“ í hljóðveri Bödda, söngvara
Dalton. Í laginu eru hinir ýmsu
frasar úr Vaktaþáttunum tekn-
ir og þeir hnoðaðir saman í eitt
lag. „Þetta er ekta lag sem gríp-
ur mann og festist í hausnum á
manni.“
Meðlimir Playmo eiga mismun-
andi bakgrunn og eru allir yfir
þrítugt, nema trommu leikarinn
Hanna Rut. Baddi og Þórarinn
Jónsson gítarleikari eru báðir
flugvirkjar, söngvarinn Ólafur
Gunnar Jónsson er skrifstofu-
maður, Björgvin Hörður Arnar-
son bassaleikari er smiður og
Hanna Rut er í námi. „Það eru
eiginlega allir fjölskyldumenn
nema ég,“ segir Baddi og viður-
kennir að það hafi verið erfitt að
koma Playmo af stað þegar hljóm-
sveitin var að æfa prógrammið
sitt. „Það þurfti svo gríðarlegan
tíma í æfingar og það er ennþá
erfitt að blanda þessu saman en
við eigum mjög góðar fjölskyld-
ur.“
Fram undan hjá Playmo
er páskaball í Vík í Mýrdal á
skemmtistaðnum Ströndinni.
Þar verður nýja lagið „Já sæll, já
fínt“ vafalítið spilað auk þess sem
Svartur afgan með Bubba í rokk-
aðri útgáfu Playmo hefur lengi
verið funheitt á dansgólfinu.
freyr@frettabladid.is
PLAYMO TRYLLIR
LÝÐINN Í SUMAR
PLAYMO Frá vinstri: Þórarinn Jónasson, Baldvin Gunnar Árnason, Ólafur Gunnar
Jónsson, Björgvin Hörður Arnarson og trommarinn Hanna Rut. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Söngkonan Jessica Simpson er
orðin þreytt á því að hafa unnusta
sinn, íþróttamanninn fyrrverandi
Eric Johnson, alltaf í kringum
sig. Johnson hefur verið atvinnu-
laus frá árinu 2008 og eyðir því
öllum sínum stundum með Simp-
son.
„Jessica sagði Eric að láta sig
í friði í nokkra daga. Þau eyddu
öllum sínum tíma saman og
Jessica fékk loks nóg. Hún bað
hann um að gefa sér smá frí svo
hún gæti hugsað aðeins um sjálfa
sig,“ var haft eftir innanbúðar-
manni.
Samkvæmt heimildarmönnum
tímaritsins In Touch Weekly er
Simpson einnig þreytt á að þurfa
að halda hinum atvinnulausa
unnusta sínum uppi og sjá honum
fyrir vasapeningum. „Jessica
keypti bíl handa Eric fyrir ekki
svo löngu. Hún keypti sér líka
nýjan BMW en hún hefur komið
Eric í skilning um að það sé henn-
ar bíll og leyfir honum alls ekki
að keyra hann.“
Vill fá frí frá unnustanum
FÆR FRÍ Jessica Simpson bað unnusta
sinn, Eric Johnson, um að gefa sér smá
frí.
NORDICPHOTOS/GETTY
Laugardagur til lista
Í dag milli kl. 12.00 – 17.00 eru verk eftir Hörð Ágústsson,
listmálara og fræðimann til sýnis í höfuðstöðvum Arion
banka, Borgartúni 19. Upptökur af fyrirlestrum Péturs
Ármannssonar og Ólafs Gíslasonar um listamanninn
verða sýndar í ráðstefnusal bankans.
Sýningin er einnig opin alla virka daga í apríl
milli kl. 11.00 – 15.30.
Verið velkomin.