Fréttablaðið - 23.04.2011, Page 6
23. apríl 2011 LAUGARDAGUR6
DÝRAHALD Félagasamtökin Velbú
telja að dýr í íslenskum loð-
dýrabúum séu haldin í allt of
litlum búrum og gagnrýna jafn-
framt að dýrin séu aflífuð með
útblæstri frá vélum, sem er við-
tekin venja. Forsvarsmaður loð-
dýrabænda vísar gagnrýninni á
bug og telur hana lýsa þekkingar-
leysi á iðnaðinum.
Sif Traustadóttir dýralæknir
er í forsvari fyrir Velbú sem eru
frjáls félagasamtök um bætta
velferð og lífsskilyrði búfjár á
Íslandi. Sif gagnrýnir að frétta-
flutningur af loðdýrarækt hér á
landi hverfist eingöngu um bætt
rekstrarskilyrði loðdýrabúanna
og enginn spyrji nauðsynlegra
spurninga um siðferði ræktun-
arinnar. Hún bendir á að það sé
ekki að ástæðulausu að loðdýra-
rækt hafi dregist saman í mörg-
um löndum Evrópu, og hafi verið
bönnuð í Bretlandi árið 1998 af
siðferðilegum ástæðum.
„Við teljum að aðbúnaður dýr-
anna sé óviðunandi. Reglur um
stærðir á búrum eru gamaldags
og dýrin alast upp í plássleysi.
Það eina sem þau hafa við að vera
er að hlaupa í hringi. Minkar
eru dýr sem eðlislægt vilja hafa
mikið rými; þeir veiða og marka
sér óðul og hafa þörf fyrir mikla
hreyfingu. Þar sem strangar regl-
ur hafa verið settar á, til dæmis á
Ítalíu, hefur loðdýrarækt lagst af
og flyst þá til annarra landa, til
dæmis hingað.“
Sif segir aflífun dýranna
ómannúðlega. „Algengasta aðferð-
in er að aflífa dýrin með útblæstri
frá vélum. Ég sem dýralæknir get
fullyrt að það er ekki skjótur og
sársaukalaus dauðdagi, eins og
kveðið er á um í dýraverndunar-
lögum. Þetta er ekki leyft í Dan-
mörku sem dæmi, en þar verð-
ur að nota hreint gas til að aflífa
dýrin sem er mun mannúðlegra.“
Sif segir að iðnaðurinn sé ekki
eftirlitsskyldur sem hljóti að telj-
ast sérstakt.
Björn Halldórsson, formað-
ur Sambands íslenskra loðdýra-
bænda, vísar gagnrýninni á bug.
Hann segir að samtökin Velbú
hafi ekki haft fyrir því að skoða
aðbúnað dýranna og ekkert sam-
band hafi verið haft við loðdýra-
bændur. Reglugerðin um loð-
dýraræktina sé frá 2007 og sé
að langmestu leyti samhljóða
ströngustu reglugerðum í heim-
inum, til dæmis frá Danmörku.
„Við erum með strangari ákvæði
í reglum en í öðrum löndum Evr-
ópu. Það er auðvelt að slá fram
fullyrðingum en þær eru ekki
byggðar á vitneskju um greinina.
Þeir sem hafa heimsótt íslensk
bú furða sig á því hvað dýrunum
líður vel.“
Björn segir að fullyrðingar um
smæð búranna standist ekki skoð-
un. Stærð búranna sé samkvæmt
reglugerð. „Útblástur frá vélum
eða kolmonoxíð úr flöskum eru
einu aðferðirnar til að aflífa dýrin
sem eru viðurkennd af dýravernd-
unarsamtökum í heiminum. Það
fara allir eftir þessu enda er ein-
faldlega bannað að aflífa dýrin
öðruvísi,“ segir Björn.
Hvað siðferði loðdýraræktar
áhræri segir Björn að það verði
hver og einn að meta fyrir sjálfan
sig. Loðdýrabændur fari í stóru
sem smáu eftir þeim reglum sem
fyrir liggja og, eins og með aðra
starfsemi, sé ekki hægt að fara
fram á meira. svavar@frettabladid.is
Þar sem strangar
reglur hafa verið
settar á, til dæmis á Ítalíu,
hefur loðdýrarækt lagst af.
SIF TRAUSTADÓTTIR
DÝRALÆKNIR
UPPLIFUN SEM
ALDREI GLEYMIST
Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gætirðu
tryggt barninu þínu ógleymanlega upplifun. Nafn eins
barns á aldrinum 7–9 ára verður dregið út og fer ásamt
fylgdarmanni á UEFA Champions League úrslitaleikinn
á Wembley 2011 og fær að leiða leikmenn inn á völlinn
í boði MasterCard, aðalstyrktaraðila UEFA Champions
League. Til að taka þátt þarf að nota MasterCard
kortið a.m.k. 10 sinnum frá 14. apríl–15. maí 2011.
Barnið þitt gæti fengið að leiða leikmann inn á völlinn í
UEFA Champions League úrslitaleiknum á Wembley 28. maí
2011 í London
Dregið vikulega um skemmtilega aukavinninga
Skráðu þig til leiks á www.kreditkort.is
HÚSNÆÐISMÁL Samráðshópur vel-
ferðarráðuneytisins um húsnæð-
isstefnu hefur skilað tillögum um
aðgerðir á sviði húsnæðismála.
Meðal annars er lagt til að tekn-
ar verði upp húsnæðisbætur í
stað vaxta- og húsaleigubóta til
að stuðla að jafnari húsnæðis-
stuðningi hins opinbera óháð
búsetuformi. Samráðshópurinn
var skipaður í nóvember 2011.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir er
formaður hópsins.
Hópurinn leggur áherslu á að
húsnæðisstefna skuli hafa það
meginmarkmið að tryggja hús-
næðisöryggi
heimila í land-
inu og stuðla
að félagslegri
samheldni.
Stórbætt grein-
ing á húsnæðis-
markaðinum sé
forsenda fyrir
árangursríkri
húsnæðisstefnu
og er lagt til að
slík greining fari fram fyrir lok
árs.
„Lagt er til að ríkisstjórnir
hverju sinni innleiði húsnæðis-
stefnu sína með gerð húsnæð-
isáætlunar. Húsnæðisáætlun
verði hluti af landsskipulags-
stefnu sem sveitarfélög taki mið
af við gerð skipulagsáætlana eða
breytinga á þeim,“ segir í til-
kynningu frá hópnum.
Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra segir augljóst að
stjórnvöld þurfi að eiga sér skýra
langtímastefnu í húsnæðismál-
um. Hann mun meta tillögurnar
á næstu vikum og tekur þá við
forgangsröðun, nánari útfærsla
þeirra og framkvæmd.
- sv
Starfshópur velferðarráðuneytis leggur fram nýjar tillögur að húsnæðisstefnu:
Teknar verði upp húsnæðisbætur
GUÐBJARTUR
HANNESSON
LEIGUMARKAÐUR Í REYKJAVÍK Starfs-
hópurinn telur bætta greiningu á hús-
næðismarkaðinum vera forsendu fyrir
árangursríkri húsnæðisstefnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN Þrátt fyrir þverr-
andi vinsældir er Barack Obama
Bandaríkjaforseti enn sigur-
stranglegastur meðal líklegra
frambjóðenda í forsetakosning-
um næsta árs. Helgast það fyrst
og fremst af óánægju repúblikana
með þá valkosti sem nú eru í boði.
Í könnun sem Washington Post
birti fyrir skemmstu kom fram að
þrátt fyrir að innan við helming-
ur svarenda væri ánægður með
frammistöðu Obama á forseta-
stóli er innan við helmingur repú-
blikana og óháðra sem hallast að
repúblikönum sáttur við núverandi
hóp frambjóðenda.
Það sést einnig á því að þegar
fólk í þessum hópi er beðið um að
velja einn frambjóðanda sem það
gæti hugsað sér að kjósa í forkosn-
ingum er aðeins einn með yfir tíu
prósenta fylgi. Það er Mitt Rom-
ney, sem er með sextán prósent, en
þar á eftir kemur viðskiptajöfur-
inn umdeildi Donald Trump með
átta prósent.
Romney og Mike Huckabee
mældust með mest fylgi hugsan-
legra frambjóðenda í samanburði
við Obama, en samkvæmt könn-
uninni myndi Romney tapa fyrir
Obama með fjórum prósentustig-
um og Huckabee með sex.
Fyrstu forkosningarnar fara
fram í febrúar en sigurvegarinn
verður útnefndur á flokksþingi í
ágúst 2012. - þj
Frambjóðendur repúblikana fyrir forsetakosningar á næsta ári:
Enginn ógnar Obama ennþá
ENGAR ÁHYGGJUR Barack Obama
þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af
vinsældum mótframbjóðenda sinna enn
sem komið er. NORDICPHOTOS/AFP
Gagnrýna aðbúnað
og slátrun loðdýra
Ný félagasamtök um dýravelferð gagnrýna aðbúnað á loðdýrabúum. Bændur
vísa gagnrýninni alfarið á bug og telja greinina standast allar kröfur í alþjóð-
legum samanburði. Helst er stærð búra og aflífun dýranna gagnrýnd.
MINKUR Hér á landi eru 22 loðdýrabú. Undanfarin ár hefur verð á skinnum hækkað
mikið og afkoma í greininni er afar góð um þessar mundir. Myndin tengist fréttinni
ekki með beinum hætti.
KJÖRKASSINN
Eiga borgaryfirvöld að taka
harðar á vanrækslu húseigenda
í miðborginni?
JÁ 88,1%
NEI 11,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ferð þú í fermingarveislu þetta
árið?
Segðu skoðun þína á visir.is