Fréttablaðið - 23.04.2011, Page 10

Fréttablaðið - 23.04.2011, Page 10
10 23. apríl 2011 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 F réttablaðið á tíu ára afmæli í dag. Blaðið var fyrst gefið út 23. apríl árið 2001. Þá voru ekki margir aðrir en aðstand- endur blaðsins sem höfðu trú á því að útgáfan gæti gengið, eins og Eyjólfur Sveinsson, stofnandi blaðsins, segir frá í viðtali í blaðinu í dag. Tilraunir með útgáfu fríblaða höfðu gefizt vel í ýmsum öðrum ríkjum, en að dreifa slíku blaði heim til fólks var nýbreytni sem margir töldu að yrði alltof dýr. Hún var þó nauðsynleg vegna skorts á fjölförnum samgöngumiðstöðvum, þar sem hægt væri að dreifa fríblaði. Fréttablaðið náði fljótt þeirri stöðu að verða mest lesna blað landsins og þar með bezti kostur- inn fyrir auglýsendur. Blaðið er nú í einstakri stöðu á heimsvísu, lesið af um 60 prósentum lands- manna á hverjum útgáfudegi samkvæmt könnunum Capacent. Fríblöðin hafa haslað sér völl víða, ekki sízt í Evrópu, en hvergi eru þau meira lesin en á Íslandi og hvergi annars staðar hefur eitt blað slíka stöðu. Lengst af hefur rekstur Fréttablaðsins skilað hagnaði. Fyrsta útgáfufélagið fór í gjaldþrot, en eftir að nýir eigendur tóku við rekstrinum árið 2002 hefur blaðið og dreifing þess verið rekið með hagnaði öll árin nema hrunárið 2008. Í fyrra lögðu Fréttablaðið og dreifingarfyrirtækið Pósthúsið samanlagt um fjórðung til rekstrar- hagnaðar útgáfufyrirtækisins 365 miðla, sem er í samræmi við hlutdeild þeirra í veltu samstæðunnar. Fríblaðsmódelið hefur reynzt sveigjanlegt og auðvelt að laga það að sveiflum í auglýsingatekjum; þannig var frídreifingarsvæði blaðsins minnkað til að lækka kostnað við dreifinguna eftir að aug- lýsingatekjurnar tóku dýfu eftir bankahrun. Minna dreifisvæði hefur verið mætt með lausasölu blaðsins úti um land og þar er eftirspurnin stöðug og vaxandi. Jafnframt hefur verið lögð áherzla á að lesendur blaðsins hvar sem er í heiminum eigi auðvelt með að nálgast það ókeypis í hvers konar nettengdum tækjum. Sterk staða Fréttablaðsins leggur starfsfólki þess mikla ábyrgð á herðar. Enn á við það sem lagt var upp með í upphafi, að fréttaflutn- ingurinn sé áreiðanlegur og settur fram af nauðsynlegri hógværð og að blaðið sé ekki boðberi skoðunar eins flokks eða hagsmuna- hóps heldur vettvangur breiðrar og fjölbreyttrar umræðu. Eigendur Fréttablaðsins hafa staðið þétt við bakið á útgáfufyrir- tækinu í efnahagslegum ólgusjó undanfarinna ára. Aðaleigendurnir eru umdeilt fólk. Það lítur starfsfólk ritstjórnar Fréttablaðsins ein- faldlega á sem staðreynd og fjallar um þá með sama hætti og aðra þátttakendur í viðskiptalífinu. Ritstjórnin leggur mikið upp úr siða- reglum 365 miðla, sem kveða meðal annars á um að hagsmunir eigenda eða auglýsenda ráði aldrei efnistökum blaðsins. Það er ánægjuefni fyrir þá sem starfa á ritstjórninni að samkvæmt nýlegri könnun MMR fer þeim fjölgandi sem bera traust til Fréttablaðsins. Starfsfólk Fréttablaðsins fagnar ánægjulegum áfanga og hlakkar til næsta áratugar í þjónustu lesenda sem vilja fá fréttir, afþreyingu og umræðu í vönduðu blaði. Forseti Íslands greindi umheiminum frá því að fjármálaráðherra Hollands væri skrýtinn og aðstoðar- fjármálaráðherra Bretlands væri fávís. Einn fyrrum utanríkisráð- herra Dana sagði um forsetann að hann væri flónskur og annar að hann væri lýðskrumari. Flestir eru ánægðir með hvernig forsetinn talar til ráðamanna annarra þjóða en virðast láta sér fátt um finnast hvernig talað er til hans. Nokkrir hafa þó skotið skildi fyrir forsetann vegna ummæla dönsku stjórnmálamannanna. Þeir koma fyrst og fremst úr röðum and- stæðinga Icesavesamninganna. Þá telur innanríkisráðherrann að Danir hafi minnimáttar- kennd gagnvart lýðræði nýrrar aldar. Helstu ákafa- m e n n u t a n Alþingis gegn Icesavesamning- unum krefjast þess ennfremur að ríkisstjórnin fari frá eftir að hafa tapað þjóðar- atkvæði um málið í tvígang. Fyrir því eru gild rök sem byggjast á þeim klassísku stjórnskipulegu gildum að valdi fylgi ábyrgð. En það var einmitt þessi ábyrgð sem forsetinn aftengdi þegar hann fyrst beitti synjunarvaldinu. For- setinn hefði aldrei neitað að stað- festa lög ef hann hefði þurft að leggja embættið að veði. And- stæðingar Icesavelaganna nýttu sér þessa sýn forsetans þegar þeir hvöttu hann til að synja. Þverstæð- an í röksemdafærslu þeirra nú felst í því að ábyrgðarleysiskenningin er gagnvirk. Ríkisstjórnin getur eins brugðið henni fyrir sig og forsetinn. Stjórnin situr einfaldlega hlé- megin við ábyrgðarleysiskenn- ingu forsetans. Hitt er annað hvort hún hefur burði til að stjórna. Málum er svo komið að líkurnar á áframhaldandi setu hennar mæl- ast í öfugu hlutfalli við kröfur um málefnalegan árangur. Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Þjálfað er í rólegu, þægilegu umhverfi og undir stöðugu eftirliti fagfólks, sjúkraþjálfara og hjúkrunarfræðings með áralanga reynslu og mikla þekkingu. Kynntu þér málið. Nánari upplýsingar undir hópþjálfun á heimasíðunni www.gigt.is Upplýsingar og skráning á skrifstofu G.Í. Ármúla 5, sími 5303600 Leikfiminámskeið vorsins 27. apríl – 31. maí Einnig júnínámskeið í vatnsleikfimi Fjölbreytt úrval tíma - skráðu þig á skrifstofu GÍ STOTT-PILATES jóga karlahópur vatnsleikfimi Almenn leikfimi Í öfugu hlutfalli við árangur Evrópusambandið er eldfimasta mál ríkis-stjórnarinnar. Samning-ur flokkanna um aðildar- umsóknina byggist á sömu hugsun og ábyrgðarleysiskenning forseta Íslands. Samkomulagið felst í því að aðeins annar flokkurinn ætlar að bera ábyrgð á málinu þegar kemur að því að ljúka samningum. VG hefur reynt að bregða fæti fyrir framgang viðræðnanna með svipuðum stjórnsýsluráðum og notuð hafa verið til að tefja orku- nýtingaráformin. Þetta heitir að vera með viðræðum en á móti aðlögun. Nú hefur hluti vinstri- arms VG einangrast í sérþing- flokki. Spurning er hvort þeir sem eftir sitja halda áfram að rugga bátnum með sama hætti. Það gæti lengt viðræðurnar fram yfir kosningarnar 2013. Erfitt verður hins vegar fyrir forystu VG að standa fyrir við- ræðum um aðild sem hún er á móti á sama tíma og hún óskar eftir nýju umboði í kosningum. Til að komast hjá því gæti hún gert kröfu um hlé í viðræðunum. Með því myndi VG láta Sam- fylkinguna svara hvort hún taki Evrópumálstaðinn fram yfir líf vinstristjórnarinnar. Framsóknarflokkurinn hefur snúið við blaðinu í Evrópumálum. Á sama tíma hefur forysta Sjálf- stæðisflokksins herst í andstöðu við aðildarviðræðurnar. Þessar breytingar draga úr líkum á því að stjórnarandstaðan komi málefna- fleyg í stjórnarsamstarfið. Þá er spurning hvort VG vogar að hefja þann fleyg á loft í viðleitni til að sameina flokkinn. Eldfimasta málið Undanfarna áratugi hafa fjórir til sjö flokk-ar endurspeglað vilja fólksins á Alþingi. Nú eiga fimm flokkar fulltrúa þar í sex þingflokkum. Í síðustu kosn- ingum höfðu þrír þeirra aðild að Evrópusambandinu á dagskrá. Nú er aðeins einn eftir. Það felur í sér alvarlega lýðræðisflækju því að kjósendurnir hafa ekki skipt um skoðun á sama veg. Áður var það kjördæmaskipanin en nú er það flokkakerfið sem veldur því að hugmyndir kjósenda endur- speglast ekki í réttum hlutföllum á Alþingi. Kannanir benda til að um það bil sextíu hundraðshlutar þjóðar- innar vilji ljúka aðildarviðræð- unum og um fjörutíu af hundraði styðji aðild nú þegar. Aðeins tæpur helmingur þessara kjósenda fylgir Samfylkingunni að málum. Ívið stærri hluti fylgir öðrum flokkum. Þannig eru stuðningsmenn aðild- ar og aðildarviðræðna stór minni- hluti í kjósendahópi Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokksins og talsverður hluti kjósenda VG. Eins og sakir standa hafa þess- ir minnihlutahópar þriggja flokka að mestu frosið úti frá áhrifum á Alþingi með þetta mál. Að öllu óbreyttu verður sama staða uppi á teningnum eftir næstu kosningar. Evrópumálin verða þá enn í upp- námi og stefnuleysi í peningamál- um allsráðandi. Að sjálfu leiðir að líklegasta stjórnarmynstrið eftir kosningar er áframhaldandi seta núverandi stjórnarflokka með Framsóknarflokknum. Eigi Alþingi að endurspegla viðhorf þjóðarinnar þarf að finna Evrópusjónarmiðum kjósenda fjögurra flokka eðlilegan far- veg til áhrifa þar. Í ljósi þess að aldarfjórðung tók að leiðrétta kjör- dæmaskipanina má draga í efa að sú lýðræðisumbót sé í augsýn. Stór hluti kjósenda frýs úti Fréttablaðið er tíu ára í dag. Sterk staða – mikil ábyrgð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.