Fréttablaðið - 23.04.2011, Blaðsíða 33
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Verkefnastjóri í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði viðskipta/rekstrar eða
sambærileg menntun.
• Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.
• Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á
íslenskri og enskri tungu.
Ekki er um fullmótað starf að ræða
og þarf því viðkomandi að hafa frum-
kvæði og hæfni til að þróa það áfram.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til
að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Rannveig J. Haraldsdóttir
rannveig@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 26. apríl nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www. hagvangur.is
Isavia ohf. óska eftir að ráða öflugan verkefnastjóra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á
Keflavíkurflugvelli. Við leitum að starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfileika,
frumkvæði í starfi, lipra og þægilega framkomu og er skipulagður.
Helstu verkefni:
• Greining og úrvinnsla gagna frá verslunarsvæði flugstöðvarinnar.
• Yfirferð og endurnýjun viðskiptasamninga og eftirlit með þeim.
• Hugmyndavinna og stefnumörkun með framkvæmdastjóra.
• Önnur tilfallandi verkefni í tengslum við rekstur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Isavia rekur alla flugvelli landsins, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og stýrir flugumferð á íslenska
flugstjórnarsvæðinu sem er eitt stærsta úthafssvæði í heiminum. Eitt helsta hlutverk Isavia
er að tryggja að flugöryggi sé í samræmi við alþjóðlegar kröfur og aðferðir. Hjá Isavia starfa
um 600 manns, en að dótturfélögum meðtöldum starfa um 700 manns hjá fyrirtækinu.
Isavia leggur áherslu á að hafa ávallt á að skipa hæfu starfsliði með rétta menntun, færni
og reynslu. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna.
Norsku járnbrautirnar (Jernbaneverket) hafa samið við ÍAV og Marti um gerð járnbrautarganga við
Holmestrand um 80 km suður af Osló í Noregi.
Verkið felst í gerð um 2 km jarðganga fyrir hraðlestar. Hafist verður handa strax í maí en verklok
eru áætluð í júní 2014.
Skilyrði er að umsækjendur hafi reynslu af jarðgangagerð og nauðsynleg réttindi. Æskilegt er að
starfsmenn hafi skilning á norsku eða öðru norðurlandatungumáli.
Leitað er eftir starfsmönnum með þekkingu, reynslu og réttindi í eftirtalin störf:
Upplýsingar veitir Dagmar Viðarsdóttir mannauðsstjóri í síma 530-4200.
Umsóknir berist um www.iav.is - Laus störf merkt “jarðgangagerð” fyrir 15. maí næstkomandi.
• Verk- eða tæknifræðingur með reynslu af jarðgangagerð
• Menn vana jarðgangavinnu, þ.e borun, hleðslu, bergstyrkingu, ásprautun og bergþéttingu
• Verkstjóra með reynslu af jarðgangagerð
• Rafvirkja til að þjónusta jarðgangabúnað
• Mælingamaður