Fréttablaðið - 23.04.2011, Page 52
23. apríl 2011 LAUGARDAGUR32
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
RECEPTIE KONINGINNEDAG 2011
De Consul Generaal der Nederlanden, de heer
Bjarni Finnsson, en zijn echtgenote heten alle
Nederlanders hartelijk welkom op de
Koninginnedagreceptie te houden op
Vrijdag 29.april
van 17.00 – 19.00 uur
in Rafveituheimilinu
Rafstöðvarvegi við Elliðarár, 110 Reykjavík.
Wie aan de uitnodiging gehoor wil geven
wordt verzocht zich vóór
27. april op te geven bij het Consulaat,
tel. 533 1002. Op werkdagen geopend tussen
10:00 en 12:00. Of via e-mail:
holland@holland.is
LÁRÉTT
2. búsmali, 6. í röð, 8. með-
vitundarleysi, 9. sigað, 11. guð, 12.
traðk, 14. úðadæla, 16. tveir eins,
17. landspilda, 18. eyrir, 20. frú, 21.
umkringja.
LÓÐRÉTT
1. úrgangur, 3. klukka, 4. undirbún-
ingspróf, 5. borða, 7. fugl, 10. hestas-
kítur, 13. mas, 15. sjá eftir, 16. verkur,
19. kyrrð. LAUSN
LÁRÉTT: 2. búfé, 6. rs, 8. rot, 9. att,
11. ra, 12. tramp, 14. úðari, 16. tt, 17.
lóð, 18. aur, 20. fr, 21. króa.
LÓÐRÉTT: 1. hrat, 3. úr, 4. forpróf, 5.
éta, 7. strútur, 10. tað, 13. mal, 15.
iðra, 16. tak, 19. ró.
Fyrir ekkert svo mörgum ár, þegar ég var ungur og fallegur, hitti ég stelpu
og varð rosalega skotinn í henni. Hún varð
líka skotin í mér og ekki leið á löngu þar til
við vorum byrjuð að staðfesta ást okkar á
lostafullan hátt sem ég ætla ekki að lýsa í
smáatriðum. Með grunnskólakynfræðsluna
í fersku minni taldi ég ekki ráðlegt að gera
það án þess ganga úr skugga um að skag-
firskt ofursæði mitt myndi ekki barna stúlk-
una. Þess vegna notaði ég smokkinn frá upp-
hafi sambandsins. Í fyrstu kláraði ég birgðir
sem mér hafði áskotnast hér og þar, en allt í
þessum heimi er hverfult og einn af öðrum
urðu smokkarnir ónothæfir um leið og þeir
uppfylltu tilgang sinn. Þá voru góð ráð dýr.
ÉG þurfti semsagt í fyrsta skipti á ævinni
að fara út í búð og kaupa pakka af smokkum.
Ég var á viðkvæmum aldri og tilhugsunin
um að afgreiðslustúlkurnar á Olís á Selfossi
myndu vita persónulegustu persónuupplýs-
ingar sem til eru um mig var skelfileg. Ég
bað því eldri og reyndari vin minn um að
leysa málið og keypti mér þannig gálgafrest.
Vandamálið leystist síðar sjálfkrafa. Ég
kyngdi stoltinu og hóf að kaupa smokka
sjálfur og geri enn þann dag í dag með
eftirtektarverðum árangri.
FYRR í vikunni hrintu nokkur góð
samtök og fyrirtæki á Íslandi af stað
góðu átaki til að hvetja fólk til að nota
smokkinn. Tíðni kynsjúkdóma á Íslandi
segir okkur að allt of fáir nenna að smeygja
á sig þessum óþreytandi varnarjaxli og
kjósa þess í stað að taka sénsinn á hinum
og þessum afleiðingum lárétta mambósins.
Það er sorglegt miðað við þægindin sem við
upplifum í dag.
ÞETTA hefur nefnilega ekki alltaf verið
jafn auðvelt. Forfeður okkar reyndu til að
mynda ýmsar skapandi aðferðir, sem reynd-
ust misvél. Í Asíu á 15. öld settu menn lítinn
klút framan á vininn og bundu hann fastan
með borða. Það hefur eflaust tekið sinn
tíma. Þá var aðeins á færi yfirstéttarinnar
að nota aðferðina enda áttu ekki allir efni á
klútum og borðum. Seinna á sömu öld voru
Evrópubúar byrjaðir að nota ýmis innyfli úr
dýrum í sama tilgangi, til dæmis þarma og
þvagblöðrur. Miklu síðar byrjuðu menn að
framleiða smokka úr gúmmíi og latexi.
NÚ vil ég ekki hljóma eins og riddari póli-
tískrar rétthugsunar, ríðandi um á skjanna-
hvítum hesti hins eina sanna sannleika,
slátrandi öllu því sem rúmast ekki innan
skynsamlegra og siðsamlegra marka hins
fullkomna ferhyrnings. Ég er samt á þeirri
skoðun að smokkanotkun eigi að vera jafn
sjálfsögð og regluleg næring, enda njótum
við góðs af þróunarvinnu sem hefur staðið
yfir áratugum saman. Sæðisdrepandi og
sleipiefnasmurðir smokkar nútímans eru
nefnilega lúxus miðað við það sem forfeður
okkar máttu þola.
Smokkur > þvagblaðra
Þetta er ísjaki
fíflin ykkar!!
Ísjaki!
Leiðinlegasti
dagur barns er
skemmtilegri en
besti dagurinn
hjá fullorðnum.
Góðar fréttir
Maggi! Þú
getur kvatt
bæði skólann
og heima-
námið! Ha?
Þú ert á leiðinni á sjóinn!
Þú ferð með Vladimir í
Smuguna!
Þú byrjar á
morgun! Sjáumst
eftir fimm mánuði!
Er hann búinn að taka
sig á? Ef hann stendur
sig vel gæti hann fengið
vinnu hjá mér á skrif-
stofunni eftir nokkur ár!
Rólegur!
Ég ætlaði
bara aðeins
að ýta við
stráknum!...
...
Góðan daginn, ég ætla að
eyðileggja líf sonar míns
með því að niðurlægja hann
allrækilega.
Kvittaðu
hérna.
Ég sagði bara að ég væri
kominn með son minn í tíma hjá
barnalækninum.
Sama
dæmi.
Hvernig var í skólanum í dag Solla?
Leiðinlegt.
Það eina sem ég man eftir
er hlaup, hlátur og kökuát í
hádeginu.
Kannski við
ættum að
borða meira
af kökum.