Fréttablaðið - 23.04.2011, Side 62

Fréttablaðið - 23.04.2011, Side 62
23. apríl 2011 LAUGARDAGUR VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. VILTU VINNA MIÐA? WWW.SENA.IS/SCREAM4 SENDU SMS SKEYTIÐ ESL SC4 Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! FULLT AF VINNINGUM: BÍÓMIÐAR TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA! 9. HVER VINNUR! FJÖLDI AUKAVINNINGA KOMIN Í BÍÓ! sport@frettabladid.is FYLKIR OG VALUR spila til úrslita í Lengjubikar karla í fótbolta í Kórnum klukkan 19.00 á mánudagskvöldið. Fylkir vann KR 1-0 í undanúrslitunum en Valur vann 2-1 sigur á FH í framlengdum leik. Hlynur Bæringsson, körfuboltamaður Ég skrifaði pistil nýverið um það sem ég hefði getað gert betur á ferlinum. Þar var af nokkru að taka en helst hvernig ég eyddi mörgum sumrum þegar lið eru ekki að æfa mikið, almennileg vinna á sumrin hefði skilað mér miklu. Nú er þetta tímabil hafið hjá körfuboltamönnum og nú ættu flestir að athuga hvernig þeir nýta tímann. Flestir þurfa pásu en vont er að hafa hana of langa því það er ekki gaman að mæta eins og sekkur í næsta tímabil, ég þekki það. Oft er sorglegt að sjá ástandið á ungum mönnum eftir sumarið, ég held þeir hugsi oft ekki dæmið til enda. Ég ætla að nýta sumarið vel. Æfa mjög mikið og rétt og setja mér markmið. Til þess verð ég að hafa aðgang að fólki sem veit meira en ég um t.d. lyftingar. Ég mun nýta mér góðan mann í því í sumar því af gefinni reynslu veit ég að það skilar litlu að mæta af og til og gera bara eitthvað. Þó að tvíhöfðinn lúkki vel þá er óþarfi að eyða mestum tímanum í að dást að honum fyrir framan spegil. Ég berst við stóra og sterka menn og finnst ég þurfa meiri styrk og kraft í þeirri baráttu. Stefnan er að bæta örfáum kílóum á mig og þá í formi vöðva en ekki með því að dýfa hausnum í snakkskálina. Það krefst vinnu og eljusemi. Mér finnst að allir ættu að æfa jafnvel meira á sumrin en á veturna, það skilar sér þegar byrjar að draga af mönnum er líður á veturinn, bæði andlega og líkamlega. Ég hef gert of lítið af því að setja mér markmið, í sumar mun ég gera það og jafnvel opinbera þau. Það setur örlitla aukapressu á mig að standa mig, það er góð pressa. Markmiðin geta verið mælanleg, t.d. í lyftingasalnum, setja sér markmið í samanlagðri hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Einnig er hægt að setja sér markmið um hve miklum tíma þú verð í íþróttasalnum, t.d. 12 tímar á viku þar sem skot og tækniatriði eru æfð. Afraksturinn af því er erfiðara að mæla en það er augljóst að það skilar sér. A.m.k. mun það skila því að þú verður ekki haustsekkurinn. Ekki vera haustsekkurinn FÓTBOLTI Það er lítið páskafrí í enska boltanum og er leikið í deild- inni í dag, á morgun sem og á mánu- dag. Topplið Man. Utd. hefur aðeins verið að gefa eftir upp á síðkastið og eru aðeins sex stig í næstu lið sem eru Chelsea og Arsenal. United mætir Arsenal um næstu helgi og Chelsea þar á eftir. Þrír sigrar í síðustu fimm leikjunum ættu að duga til þess að Man. Utd. taki titilinn. Í dag mun Man. Utd. taka á móti Everton í hádegisleiknum. Chelsea tekur á móti West Ham en Arsenal spilar á sunnudegi eins og venju- lega. United má alls ekki við því að misstíga sig á heimavelli í dag og þarf öll þrjú stigin til að færast nær 19. meistaratitli sínum. United hefur ekki gengið sérstak- lega vel á útivelli í vetur en á heima- velli er liðið í toppformi eins og 17 sigrar í síðustu 18 leikjum bera vitni um. Það er einnig hughreystandi fyrir stuðningsmenn Man. Utd. að Everton hefur ekki unnið leik á Old Trafford í 19 ár. Dimitar Berbatov og Rio Ferdin- and eru báðir tæpir vegna meiðsla. Darren Fletcher er enn veikur en Rafael er klár í slaginn. Tim Cahill og Mikel Arteta gætu leikið með Everton en eru þó báðir tæpir. „Það er aldrei auðvelt að spila gegn Everton. Moyes hefur byggt upp gott lið. Við höfum aftur á móti verið frábærir á heimavelli í vetur og vonandi heldur það góða gengi áfram,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd., en hann vill sem minnst ræða leikina gegn Arsenal og Chelsea sem bíða handan við hornið. „Ef við vinnum Everton verður munurinn enn að minnsta kosti sex stig og aðeins fjórir leikir eftir. Á endanum verður búið að spila alla leikina,“ sagði Sir Alex sem þó fagnar samkeppninni. „Það er gott að einhverjir elta. Það heldur okkur á tánum og við megum ekki við því að missa damp- inn núna. Núna mun reynslan spila inn í og hjálpa okkur.“ West Ham er í mikilli fallbar- áttu og mun án efa ekki gefa Chel- sea neitt í dag. Róðurinn verður þó þungur enda hefur Chelsea unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum og er komið í titilbaráttuna af fullum krafti. Chelsea verður án Brasilíu- mannanna Alex og Ramires en Ashley Cole ætti að geta spil- að. Fernando Torres og Nicolas Anelka munu líklega fá tækifæri í byrjunarliðinu í dag þó svo Torres hafi ekki enn skorað fyrir Chelsea. Það munar mikið um það hjá West Ham að Scott Parker spilar líklega ekki vegna meiðsla. henry@frettabladid.is Mikið undir um páskana Topplið Man. Utd. má alls ekki við því að misstíga sig gegn Everton í dag því fram undan eru leikir gegn Arsenal og Chelsea sem bíða tækifæris til að saxa á sex stiga forskot Man. Utd. Everton hefur ekki unnið á Old Trafford í 19 ár. GLERHARÐUR STUÐNINGSMAÐUR Þessi ágæti stuðningsmaður Man. Utd. setur menn eins og George Best, Eric Cantona og Gary Neville á sama stall og sjálfan Jesú Krist. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES Helgin í sjónvarpinu Laugardagur: Man. Utd. - Everton 11.45 Aston Villa - Stoke 14.00 Blackpool - Newcastle 14.00 Liverpool - Birmingham 14.00 Sunderland - Wigan 14.00 Tottenham - WBA 14.00 Wolves - Fulham 14.00 Chelsea - West Ham 16.30 Valencia - Real Madrid 16.00 Barcelona - Osasuna 18.00 Sunnudagur: Flensburg - Gummersbach 13.45 Bolton - Arsenal 15.00 Philadelphia - Miami 17.00 Sunnudagsmessan 17.00 Mánudagur: Blackburn - Man. City 19.00 Staða efstu og neðstu liða: Man. United 33 20 10 3 70-32 70 Chelsea 33 19 7 7 61-27 64 Arsenal 33 18 10 5 66-34 64 Man. City 32 16 8 8 50-30 56 ------------------------------------------------------ Blackburn 33 9 8 16 40-54 35 Wigan 33 7 13 13 32-53 34 Blackpool 33 9 6 18 47-69 33 West Ham 33 7 11 15 39-58 32 Wolves 32 9 5 18 36-56 32

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.