Fréttablaðið - 11.05.2011, Qupperneq 4
11. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR4
GENGIÐ 10.05.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,4797
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,79 114,33
186 186,9
163,14 164,06
21,877 22,005
20,869 20,991
18,213 18,319
1,4097 1,4179
181,74 182,82
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Rangnefni á Náttúrustofu
Í frétt af hreindýraveiðum í blaðinu
í gær var Náttúrustofa Austurlands
ranglega nefnd Náttúruverndarstofa.
Þá skal áréttað að af samtals 97 millj-
ónum króna sem fengust með sölu
veiðileyfa runnu tæpar fjórar milljónir
til Náttúrustofu Austurlands, ríflega
tíu milljónir til Umhverfisstofnunar og
tæpar 83 milljónir til landeigenda.
LEIÐRÉTTING
VÍNBÚÐIN Á HÓLABRAUT Íbúar óttast
umferðaröngþveiti með stækkun vín-
búðar.
SKIPULAGSMÁL „Ég tel ekki rétt
að ræða þetta mál á vettvangi
fjölmiðla fyrr en við ákveðum
hvernig við svörum athugasemd-
um þeirra sem sendu inn bréf
vegna málsins,“ segir Helgi Snæ-
bjarnarson, formaður skipulags-
nefndar Akureyrar, spurður um
ásakanir þess efnis að bæjar-
yfirvöld sniðgangi lög og misfari
með vald í tengslum við áform-
aða viðbyggingu vínbúðar ÁTVR
á Hólabraut.
Helgi segist eiga von á því að
athugasemdum íbúa á nágrenni
vínbúðarinnar verði svarað í
næstu viku. Málið hafi enn aðeins
verið lagt fram til kynningar og
engin ákvörðun verið tekin. - gar
Vínbúðarmálið á Akureyri:
Skipulagssvið
svarar fljótlega
MANNÚÐARMÁL Hundruð flótta-
manna á ofhlöðnum bátum frá
Líbíu hafa farist í Miðjarðarhaf-
inu á síðustu vikum. Ríkin við
sunnanvert Miðjarðarhafið, Atl-
antshafsbandalagið og Evrópu-
sambandið sæta nú gagnrýni fyrir
að sinna ekki þessu fólki í nauð.
„Við fyrstu sýn þarf að líta
á hvern einasta bát sem siglir
frá Líbíu sem bát sem þarfnast
aðstoðar,“ segir Melissa Fleming,
talskona Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, sem hvetur
Evrópuríki til þess að sinna betur
flóttafólkinu frá Líbíu.
Hún segir ekki ganga að bíða
eftir neyðarkalli frá flóttafólk-
inu áður en brugðist sé við. Grípa
þurfi inn í strax og athuga hvort
hjálpar sé þörf.
Flóttamannastofnunin segir
að ekkert sé vitað um afdrif að
minnsta kosti 800 manna frá því
að flóttamannastraumurinn frá
Líbíu hófst hinn 25. mars síðast-
liðinn. Inni í þessari tölu séu þó
ekki þeir 600 flóttamenn sem
hugsanlega fórust flestir þegar
báti þeirra hvolfdi skammt frá
Trípolí á föstudag.
- gb
Hundruð flóttamanna hafa farist í Miðjarðarhafinu síðustu vikur á leið til Evrópu:
Gagnrýnd fyrir afskiptaleysi
FLÓTTAMENN FRÁ LÍBÍU Leiðin yfir
Miðjarðarhafið hefur kostað marga
þeirra lífið. NORDICPHOTOS/AFP
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður
þingflokks Samfylkingarinnar, fór fram
á það við Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra á Alþingi í gær að hann
nýtti stöðu sína og grennslaðist fyrir
um hvað hefði í raun gerst þegar bátur
með 72 flóttamönnum frá Afríku lenti
í mars í vandræðum á Miðjarðarhafi
með þeim afleiðingum að 61 lést úr
hungri og þorsta.
Vitnaði Þórunn í frétt breska
blaðsins The Guardian um að herskip
og vélar NATO hefðu ekki komið
flóttamönnunum til bjargar.
Össur sagði að hann neitaði á þess-
ari stundu að trúa því að þetta hefði
gerst með þeim hætti sem lýst var.
Sagði hann slíkt ósiðlegt og óverjandi.
Össur kanni hvað gerðist
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
26°
26°
19°
22°
21°
18°
18°
21°
18°
25°
22°
34°
20°
19°
15°
16°
Á MORGUN
3-8 m/s.
FÖSTUDAGUR
Litlar breytingar.
10
10
10
11
13
8
4
3
4
4
3
4
6
7
4
7
7
2
3
5
7
5
5
6
10
7
8
10
11
5
8
4
DÁLÍTIL VÆTA Á
norðan- og austan-
verðu landinu
má búast við lítils
háttar vætu næstu
daga. Nokkuð bjart
sunnan- og vestan-
lands en þó má
búast við stöku
skúrum. Hitinn
verður með ágæt-
um syðra í dag en
það kólnar aðeins
á morgun.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
LANDSDÓMUR Verjanda Geirs H.
Haarde, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, var í gær birt ákæra á
hendur Geir fyrir margvíslega
og alvarlega vanrækslu í starfi í
aðdraganda bankahrunsins.
Ákæran er í tveimur liðum og
er þeim fyrri skipt í fimm hluta.
Báða ákæruliðina má lesa í heild
sinni hér til hliðar. Allir hlutar
þeirra snúast um það hvað Geir
hefði átt að gera til að reyna að
afstýra bankahruninu en lét undir
höfuð leggjast, að því er haldið er
fram í ákærunni. Hámarksrefsing
við brotum sem þessum er tveggja
ára fangelsi.
Andra Árnasyni, verjanda
Geirs, var jafnframt afhent stefna
frá forseta landsdóms, Ingibjörgu
Benediktsdóttur, þar sem Geir
er gert að mæta fyrir dóminn 7.
júní næstkomandi klukkan 13.30
og vera viðstaddur þingfestingu
málsins.
Sigríður J. Friðjóns-
dóttir, saksóknari
Alþingis, segir að
búast megi við að
málflutningur með
skýrslutökum af sak-
borningi og vitnum hefj-
ist í haust.
Andri er gagnrýn-
inn á ákæruna. Hún
sé nánast orðrétt upp
úr þingsályktunartillög-
unni um ákæruna á hend-
ur Geir og engum rök-
stuðningi sé bætt við,
eins og lög geri þó ráð
fyrir þegar um flók-
in ákæruatriði sé að
ræða.
„Það kom mér
svo sem ekkert á óvart að ákær-
an speglaði málshöfðunarályktun
Alþingis, enda er gert ráð fyrir því
í lögum að saksóknari sé bundinn
við hana, en maður átti kannski
von á því að saksóknarinn mundi
rökstyðja þennan málatilbúnað,“
segir Andri.
„Þessi ákæruatriði eru að mínu
mati vægast sagt loðin og teygj-
anleg og óljós og þess vegna var
maður eiginlega spenntastur fyrir
því að sjá rökstuðninginn,“ segir
hann. Þar sem hann skorti verði
erfitt við málið að eiga. „Það er
náttúrlega ekki hægt að ákæra
mann fyrir eitthvað sem er svo
óljóst að hann geti ekki tekið
almennilega til varna,“ bætir hann
við.
Andri á von á að fá tæplega
fjögur þúsund blaðsíður af
fylgiskjölum í hendur fljótlega.
Sigríður lagði einnig fram
vitnalista. Á honum eru
43 nöfn, meðal annars
fyrrverandi ráðherrar,
ráðuneytisstjórar,
seðlabankastjórar og
bankastjórar allra
föllnu bankanna
þriggja.
stigur@frettabladid.is
Geir stefnt fyrir landsdóm
Geir H. Haarde hefur verið birt ákæra og honum stefnt fyrir landsdóm. Málflutningurinn hefst í haust.
Hámarksrefsing er tveggja ára fangelsisvist. Verjandi Geirs gagnrýnir ákæruna fyrir skort á rökstuðningi.
Ákæran í heild sinni
GEIR H. HAARDE Þarf
að mæta fyrir lands-
dóm 7. júní.
Geir er ákærður „fyrir brot framin af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi í
embættisfærslu hans sem forsætisráðherra á tímabilinu frá febrúar 2008
og fram í októberbyrjun sama ár, allt eins og hér greinir:
1.
1.1 Fyrir að hafa sýnt af sér alvarlega vanrækslu á starfsskyldum sínum sem
forsætisráðherra andspænis stórfelldri hættu sem vofði yfir íslenskum fjár-
málastofnunum og ríkissjóði, hættu sem honum var eða mátti vera kunnugt
um og hefði getað brugðist við með því að beita sér fyrir aðgerðum, löggjöf,
útgáfu almennra stjórnvaldsfyrirmæla eða töku stjórnvaldsákvarðana á
grundvelli gildandi laga í því skyni að afstýra fyrirsjáanlegri hættu fyrir heill
ríkisins.
1.2 Fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að hafa frumkvæði að því,
annaðhvort með eigin aðgerðum eða tillögum um þær til annarra ráðherra,
að innan stjórnkerfisins væri unnin heildstæð og fagleg greining á fjárhags-
legri áhættu sem ríkið stóð frammi fyrir vegna hættu á fjármálaáfalli.
1.3 Fyrir að hafa vanrækt að gæta þess að störf og áherslur samráðshóps
stjórnvalda um fjármálastöðugleika og viðbúnað, sem stofnað var til á árinu
2006, væru markvissar og skiluðu tilætluðum árangri.
1.4 Fyrir að hafa vanrækt að hafa frumkvæði að virkum aðgerðum af hálfu
ríkisvaldsins til að draga úr stærð íslenska bankakerfisins með því til að
mynda að stuðla að því að bankarnir minnkuðu efnahagsreikning sinn eða
einhverjir þeirra flyttu höfuðstöðvar sínar úr landi.
1.5 Fyrir að hafa ekki fylgt því eftir og fullvissað sig um að unnið væri með
virkum hætti að flutningi Icesave-reikninga Landsbanka Íslands hf. í Bret-
landi yfir í dótturfélag og síðan leitað leiða til að stuðla að framgangi þessa
með virkri aðkomu ríkisvaldsins.
[...]
2.
Fyrir að hafa á framangreindu tímabili látið farast fyrir að framkvæma
það sem fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskrár lýðveldisins um skyldu til
að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Á þessu tímabili
var lítið fjallað á ráðherrafundum um hinn yfirvofandi háska, ekki var
fjallað formlega um hann á ráðherrafundum og ekkert skráð um þau
efni á fundunum. Var þó sérstök ástæða til þess, einkum eftir fund
hans, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, Árna M. Mathiesen og formanns
stjórnar Seðlabankans 7. febrúar 2008, eftir fund hans og Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur með bankastjórn Seðlabankans 1. apríl 2008 og
í kjölfar yfirlýsingar til sænsku, dönsku og norsku seðlabankanna sem
undirrituð var 15. maí 2008. Forsætisráðherra átti ekki frumkvæði að
formlegum ráðherrafundi um ástandið né heldur gaf hann ríkisstjórn-
inni sérstaka skýrslu um vanda bankanna eða hugsanleg áhrif hans á
íslenska ríkið.“