Fréttablaðið - 11.05.2011, Síða 16

Fréttablaðið - 11.05.2011, Síða 16
11. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR16 timamot@frettabladid.is Í dag eru eitt hundrað ár liðin frá því Knattspyrnufélagið Valur var stofnað undir handleiðslu séra Friðriks Friðriks- sonar í KFUM. Í tilefni dagsins er blásið til hátíðarhalda að Hlíðarenda þar sem afmælisins og brautryðjandans verð- ur minnst með veglegum hætti. „Við höfum reyndar verið að halda upp á afmælið með smá uppákomum það sem af er ári og munum halda því áfram út árið,“ segir Hörður Gunnarsson, formaður Vals. Dagskráin í dag er þrískipt: Klukkan 8.30 að morgni verður dagskrá dagsins opnuð með athöfn við minnismerki um séra Friðrik við Hlíðarenda og síðan verða veittar viðurkenningar til Vals- manna í hátíðarsalnum og sögusýning sem minjanefnd Vals hefur undirbúið opnuð að Hlíðarenda. Klukkan 12 verður stutt athöfn við styttu séra Friðriks í Lækjargötu þar sem forráðamenn Vals og KFUM munu flytja ávörp, stutt tónlistaratriði verður flutt og lagður blómsveigur að styttunni. Klukkan 16 er síðan hátíðardagskrá að Hlíðarenda með kaffiveitingum, ávarpi formanns Vals og fulltrúa sérsambanda og söngatriðum. Veittar verða heið- ursviðurkenningar Vals og sérsambandanna og dagskránni lýkur svo um það leyti sem leikur Vals og ÍBV hefst í Pepsi- deildinni, en fyrir hann munu iðkendur Vals sleppa 100 blöðrum í tilefni afmælisins. Hátíðarhöldum er þó hvergi nærri lokið. Fram undan er knattspyrnudagur í samvinnu við Háskóla Íslands, víðvangs- hlaup, hátíðardagskrá í samvinnu við KFUM á afmælisdegi séra Friðriks, 25. maí, golfmót í júní og fleira og fleira. Hæst ber þó kannski fyrirhugaða útgáfu á sögu félagsins sem Þorgrímur Þráinsson rithöfundur er nú að leggja loka- hönd á. „Útgáfunni ætlum við að fagna með veglegri tónlist- arhátíð,“ segir Hörður. „Það er ekki komin ákveðin dagsetn- ing á hana, en við erum að tala um september eða október.“ Eru það ekki hálfgerð trúarbrögð að vera Valsmaður? „Jú, það má kannski segja það,“ segir Hörður og hlær. „Eru ekki trúarbrögð í öllum félagsskap? En það er kannski sterkara hjá okkur þar sem við reynum að halda í ræturnar. Auk þess hafa Valsmenn alltaf verið duglegir að skrá sögu sína. Valsblöðin hafa verið gefin út í rúm fimmtíu ár og þau gefa okkur góða innsýn í tíðarandann á hverjum tíma í félaginu. Því getur fólk kynnst betur þegar bókin kemur út því Þorgrímur hefur þá skemmtilegu nálgun að láta upphaf- lega texta halda sér sem mest, enda geri þetta enginn betur en samtímamennirnir sem upplifðu hlutina á eigin skinni. Við berum mikla virðingu fyrir sögu okkar og rótum svo kannski má segja að þetta séu hálfgerð trúarbrögð.“ fridrikab@frettabladid.is VALUR: FAGNAR 100 ÁRA AFMÆLI Eru hálfgerð trúarbrögð Fyrstu Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu árið 1930. HÖRÐUR GUNNARSSON, FORMAÐUR VALS Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com GRANÍT OG LEGSTEINAR Fallegir legsteinar á einstöku verði Frí áletr un Gjótuhrauni 8, 220 H fnarfirði Sími 571 400 ranit@granit.is Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi Ingi Ingimundarson hæstaréttarlögmaður Hlíðartúni 4b, Mosfellsbæ, lést á Landakotsspítala sunnudaginn 8. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hólmfríður Jóhannesdóttir Margrét Ingadóttir Hólmfríður Stefánsdóttir Ingi Freyr Stefánsson Elín Erla Ingadóttir og aðrir aðstandendur Móðir okkar, tengdamóðir og amma Elínborg María Einarsdóttir Ytri-Varðgjá, Eyjafjarðarsveit, lést á dvalarheimilinu Hlíð 5. maí. Útför hennar fer fram frá Kaupangskirkju laugardaginn 14. maí kl. 14.00. Tryggvi Harðarson Freyja Guðmundsdóttir Sigríður Harðardóttir Svavar Harðarson Brynhildur Pálsdóttir Birna Harðardóttir og ömmubörnin öll. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jón G. Guðmundsson Austurströnd 8, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju, fimmtudaginn 12. maí. Athöfnin hefst klukkan 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Jónsdóttir Birgir Thoroddsen Einar S. Jónsson og barnabörn. Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur, barnabarn, frændi og vinur Eggert Örn Helgason Dalhúsum 3, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn 6. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 16. maí kl. 13.00. Hólmfríður Eggertsdóttir Helgi Helgason Helgi Helgason Stefán Þór Helgason Karen Rakel Óskarsdóttir Inga Rut Helgadóttir Ísak Rafn Helgason Þórunn Þorgeirsdóttir frændsystkini og vinir Ástkær sonur okkar og bróðir Tryggvi Jón Jónatansson Eyrarvegi 18, Akureyri, lést á heimili sínu 2. maí. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 13. maí kl. 13.30. Jónatan S. Tryggvason Sigurósk R. Aðalsteinsdóttir Ásta F. Reynisdóttir Heimir F. Heimisson Eygló Jóhannesdóttir Freyja P. Jónatansdóttir Ísak Már Friðriksson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Guðrún Guðbjörg Guðmundsdóttir Karvels frá Súgandafirði, lést 1. maí. Útför fer fram 14. maí kl. 14.00 frá Suðureyrarkirkju. Hlíf Pálsdóttir Magnús Daníel Ingólfsson Sigríður H. Pálsdóttir Guðmundur A. Ingimarsson María Pálsdóttir Einar Jónsson Amalía Pálsdóttir Sverrir G. Guðmundsson Friðbert Pálsson Guðmundur Karvel Pálsson Gunnhildur Hálfdánardóttir barnabörn og barnabarnabörn Minn hjartkæri eiginmaður, faðir, sonur, bróðir, tengdasonur og mágur, Páll Valdimar Kolka lést sunnudaginn 8. maí á deild 11G á Landspítalanum. Jarðarförin fer fram í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 17. maí kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning til styrktar börnum hans, 515-4-253281, kt. 111265-5859. Heiður Óttarsdóttir Perla Kolka Pálsdóttir Þórunn María Kolka Pálsdóttir Óttar Páll Kolka Pálsson Perla Kolka Óttar S. Einarsson Hrönn Hákonardóttir Elín Perla Kolka Ása Kolka Haraldsdóttir Margrét Kolka Haraldsdóttir Björg Kolka Haraldsdóttir og aðrir aðstandendur Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Guðrún Kjarval lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund mánu- daginn 9. maí sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hrafnhildur Tove Kjarval Robin Løkken Jóhannes S. Kjarval Gerður Helgadóttir Kolbrún S. Kjarval Ingimundur S. Kjarval Temma Bell María S. Kjarval Nielserik Hald barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán Gunnar Jónsson Birkivöllum 11, Selfossi, andaðist á heimili sínu 3. maí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 13. maí kl. 13.30. Þór Stefánsson Sigríður Waage Jóhanna H. Magnúsdóttir Kristín B. G. Marx Erhard Marx Stefán Þór Gunnarsson Elísa Rós Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn BOB MARLEY tónlistarmaður (1945-1981) lést þennan dag. „Skemmtun dagsins í dag er daprar hugsanir morgundagsins.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.