Fréttablaðið - 11.05.2011, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 11. maí 2011 3
Kynning
Bryndís Torfadóttir, fram-
kvæmdastjóri SAS á Íslandi,
er illa haldin af astma og var
búin að taka fjölmarga stera-
og pensilínkúra frá áramótum.
Fyrir vikið var bakteríuflóran í
ójafnvægi og líðanin afleit. „Ég
á fimm yndisleg barnabörn og
hugsaði með mér að mig langaði
ekki að vera þreytt og útbrunn-
in amma. Ég vil eldast hress og
kát og hafa gaman af hverjum
degi og vil að barnabörnin fái
að upplifa ömmu sína eldhressa
og skemmtilega,“ segir Bryndís.
Hún hefur að sögn alltaf verið
efasemdamanneskja og tilheyrt
hópnum sem stingur hausnum í
sandinn. „Í vor var hins vegar
eins og æðri máttarvöld tækju í
taumana og fyrr en varði var ég
búin að skrá mig á heilsuhótelið,“
segir Bryndís, sem dvaldi þar
yfir páskana og lét páskalambið
eiga sig að þessu sinni.
„Ég mætti á föstudegi og ætl-
aði upphaflega að keyra í bæinn
til að sinna vinnunni, enda
týpan sem hefur aldrei tíma og
er alltaf á kafi í öllu mögulegu.
Strax eftir helgina hringdi ég og
afboðaði mig á alla fundi enda
fann ég að ég þurfti að gefa mig
alla í þetta, maður er hvort eð er
úr leik ef heilsan bilar. Þegar ég
hreyfði bílinn minn viku seinna
til að kveðja dóttur mína á Kefla-
víkurflugvelli sem var á leið til
Kína leið mér eins og ég horfði
á jörðina utan frá og þyrfti að
keyra inn í hana. Svo mikil hafði
afslöppunin og aftengingin við
umheiminn verið.“
Bryndís gaf sig alla í meðferð-
ina, fór í gönguferðir og gufu
og endurskoðaði mataræðið frá
grunni. „Maður hreinsar líkam-
ann með gjörbreyttu mataræði
og leggur frá sér allt nema hrátt
og soðið grænmeti, safa og vatn.
Síðan er málið að borða hollt,
óunnið, mikið grænt, drekka
vatn og safa og sofa vel. Þetta
er í raun ekki flókið en getur
þvælst fyrir fólki í daglegu lífi
enda er svo auðvelt að nálgast
allar óhollar skyndilausnir í mat
og drykk. Það sem skiptir máli
er að staldra við, læra hvernig
á að byrja og mæli ég eindregið
með því að gera það undir eftir-
liti á heilsuhótelinu enda starfs-
fólkið og andrúmsloftið yndis-
legt.“ Bryndís segir fólk auk þess
hvatt til að kveðja allar snyrti-
vörur og nota þurrburstun og
mælir sérstaklega með því enda
þarf hreinsunin bæði að eiga sér
stað að innan og utan.
Bryndís segist afskaplega
ánægð með dvölina á Heilsuhót-
elinu og er viss um að hún muni
fara þangað aftur. „Þetta var frá-
bær byrjun á því sem eftir er af
lífinu, sem ég ætla að lifa og njóta
full af orku og heilbrigði. Líf mitt
er í mínum höndum og ég ætla að
virða það.“
Góð byrjun á því sem eftir er af lífinu
Bryndís segir fólk bera ábyrgð á eigin lífi og að dvöl á Heilsuhótelinu sé góð byrjun fyrir þá sem séu komnir út af sporinu.
Félagsráðgjafinn Herdís Hjörleifs-
dóttir var búin að ganga lengi á
umframorkubirgðirnar þegar hún
tók ákvörðun sem að sögn breytti
lífi hennar. „Haustið 2009 var ég
búin að ganga í gegnum áföll og
vera undir langvarandi álagi. Ég
hafði ekki tekið mér sumarfrí í
lengri tíma og var með alls kyns
streitueinkenni. Það kom að því
að ég sat heima hjá mér og vissi
ekki mitt rjúkandi ráð. Ég tók upp
símann og hringdi á Heilsuhótel-
ið. Jónína Benediktsdóttir svaraði
og sagði mér að koma um hæl. Ég
setti ofan í tösku og þótt ég hafi
ekkert vitað hvað ég var að fara
út í var þetta besta ákvörðun sem
ég hefði getað tekið. Ég vil meina
að dvölin hafi bjargað lífi mínu og
líðanin er allt önnur,“ segir Her-
dís, sem dvaldi á hótelinu í tvær
vikur í fyrsta skipti en hefur farið
tvisvar sinnum í vikudvöl síðan.
„Ég get síðan ekki beðið eftir því
að komast aftur og ætla árlega
héðan í frá. Mér finnst Jónína og
starfsfólkið á staðnum vera að
vinna frábært starf auk þess sem
kyrrðin og hvíldin sem fæst út úr
dvölinni er óviðjafnanleg.“
Herdís er með slitgigt og var
illa haldin af verkjum áður en hún
fór á hótelið í fyrsta skipti. „Ég er
ennþá með kreppta fingur en verk-
irnir eru alveg horfnir. Ég hafði
fengið uppáskrifuð lyf og bólgu-
eyðandi og var sagt að ég gæti
ekkert gert með breyttu mataræði
og lífsstíl. En annað kom á daginn
og ég nota engin lyf í dag.“ Her-
dís segir mikilvægt að halda lifn-
aðarháttunum við og tekst henni
það að mestu leyti. „Ég er þó mik-
ill sykurfíkill og á það til að detta
í það og því finnst mér mikilvægt
að komast á hótelið með reglulegu
millibili.“
Dvölin bjargaði mér
Herdís var illa haldin af verkjum vegna slitgigtar en hefur ekki fundið fyrir þeim
síðan hún dvaldi í fyrsta skipti á Heilsuhótelinu árið 2009.
Heilsuhótel Íslands stendur fyrir leik á Facebook.
Í verðlaun er helgardvöl fyrir tvo á Heilsuhótel-
inu með öllu, allt frá nuddi og dekri til ferða í Bláa lónið að verðmæti
150.000 krónur. Það eina sem þarf að gera til að komast í pottinn er að
„líka við“ Heilsuhótelið á Facebook, deila með öllum vinum og kvitta á
vegg hótelsins. Dregið er úr nöfnum allra sem taka þátt og deila fyrir 2.
júní 2011. www.heilsuhotel.is
Helgardvöl fyrir heppna
Nú gengur í garð annasamasti
tími ársins hjá okkur og við
hlökkum til þess að sjá ykkur
á Heilsuhóteli Íslands. Flest
stéttar- og starfsmannafélög,
sjúkrasjóðir og fræðslusjóðir
veita nú styrki fyrir þá sem
koma til okkar.
Næstu dagsetningar í
heilsumeðferð eru:
13.-27. maí
17. júní-1. júlí
15.-29. júlí
12.-26. ágúst
Bókið strax, takmarkaður
fjöldi kemst að á hvert nám-
skeið.
Vinsamlegast farið inn á
heimasíðuna okkar www.
heilsuhotel.is. Þar má finna
allar upplýsingar um heilsu-
meðferðina.
Best er að hafa samband við
okkur í gegnum heilsa@heilsu-
hotel.is eða hringja í okkur í
síma 512 8040.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Kæru
Heilsuvinir