Fréttablaðið - 11.05.2011, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 11. maí 2011 23
Óperukór Hafnarfjarðar heldur
sína árlegu vortónleika í Hafnar-
borg í kvöld klukkan 20. Sungin
verða nokkur kórverk úr heimi
óperubókmenntanna með ein-
söngvurum sem allir koma úr
röðum kórfélaga. Einnig verða
fluttir sviðsettir kaflar úr óperett-
unni Leðurblökunni eftir Jóhann
Strauss undir leikstjórn Ingunn-
ar Jensdóttur, sem einnig syngur
með kórnum.
Stjórnandi Óperukórs Hafnar-
fjarðar er Elín Ósk Óskarsdóttir,
sem á 25 ára söngafmæli í ár og
heldur upp á það með tónleikum í
sumar.
Óperukór í Hafnarborg
ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR Stjórnar Óperu-
kór Hafnarfjarðar í Hafnarborg í kvöld.
Ef þú ert hjá Símanum
skaltu grípa tækifærið
og græja þig upp
fyrir sumarið.
Magnaðir miðvikudagar!
25% afsláttur
af öllum GSM
aukahlutum í dag
Endemi nefnist nýtt tíma-
rit helgað samtímalist
íslenskra kvenna. Ritið
kemur út þrisvar á ári og
er ætlað að brúa bilið milli
myndlistar og almennings
og jafna hlut kynjanna í
listaumfjöllun.
Fyrsta tölublað menningarritsins
Endemi kom út fyrir helgi. Stefna
blaðsins er að beina sjónum að
samtímalist íslenskra kvenna
en að tímaritinu standa níu
konur, flestar nýútskrifaðar úr
Listaháskóla Íslands. Lilja Birgis-
dóttir er þeirra á meðal.
„Okkur fannst vanta meiri
umfjöllun um myndlist, ekki síst
eftir konur,“ segir Lilja. „En í stað-
inn fyrir að kvarta yfir því ákváð-
um við að leggja eitthvað af mörk-
um og búa til nýjan vettvang.“
Spurð hvort halli á konur í
myndlistargeiranum svarar Lilja
já og nei. „Það er mikið af starf-
andi listakonum, ekki síst í neðan-
jarðarsenunni, sem er hins vegar
síður launuð. Eftir því sem ofar
dregur virðist konum fara fækk-
andi. Það virðist líka vera minni
umfjöllun um list kvenna en karla.
Við ákváðum því að helga blað-
ið konum fyrsta árið, til þess að
jafna muninn, en það er aldrei að
vita nema við tökum upp alhliða
myndlistarumfjöllun eftir það.“
Annað markmið útgáfunnar er
að sögn Lilju að gera myndlist
aðgengilegri.
„Við vildum taka myndlistina
af þessum stalli sem ég held að
margir upplifa hana á, færa hana
í aðgengilegt tímaritstform sem
fólk getur keypt á 2.500 krónur
og skoðað heima hjá sér og þess
vegna klippt út og hengt upp á
vegg.“
Stefnt er á að tímaritið komi út
þrisvar á ári en yfirritstjóri er
Elísabet Brynhildardóttir. Hlað-
varpinn styrkti útgáfuna fyrsta
árið en Lilja segir vonir standa til
að útgáfan geti staðið undir sér í
framtíðinni.
Í tilefni af útgáfunni var efnt
til sýningar í Kling og Bang við
Hverfisgötu með verkum nokk-
urra þeirra myndlistarkvenna sem
fjallað er um eða eiga verk í fyrsta
tölublaðinu. Sýningin stendur til
15. maí.
bergsteinn@frettabladid.is
Listin tekin af stallinum
HEYR Á ENDEMI Lilja segir marga taka myndlistina of hátíðlega en markmið Endemi sé meðal annars að taka hana af stallinum
sem margir upplifi myndlistina á og gera hana aðgengilegri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON