Fréttablaðið - 02.06.2011, Side 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
IÐNAÐUR Vinna er nú í fullum
gangi við byggingu fyrstu verk-
smiðju nýsköpunarfyrirtæk-
isins Carbon Recycling Inter-
national (CRI). Fyrirtækið hefur
þróað aðferð til að framleiða vist-
vænt eldsneyti og stefnir að því
að draga úr bensínnotkun hér á
landi.
„Þetta er fyrsta skrefið í þá átt
að framleiða miklu meira af met-
anóli,” segir Benedikt Stefánsson,
framkvæmdastjóri viðskiptaþró-
unar hjá CRI. Alls staðar sé verið
að reyna að finna aðra orkugjafa
en bensín því það verði sífellt
flóknara mál að sjá heiminum
fyrir því.
CRI framleiðir metanól sem
unnið er úr koltvísýringi sem
fenginn er úr gufunum úr túrbín-
um orkuversins í Svartsengi. Met-
anólinu er svo blandað í bensín
sem hægt er að nota á venjulegar
bílvélar.
Í fyrstu er gert ráð fyrir að
aðeins þrjú prósent af metanóli
fari saman við 97 prósent af
bensíni en að hlutfallið verði
síðan hækkað.
Hugsanlegt er að blandan komi
á markað í haust en verðið á henni
verður sennilega svipað og verð
á bensíni.
Gert er ráð fyrir að prófanir á
verksmiðjunni hefjist í lok mánað-
ar og að þrjátíu manns muni vinna
hjá fyrirtækinu, mest tæknimennt-
að fólk. Áætlað er að verksmiðjan
geti framleitt fimm milljónir lítra
af endurnýjanlegu metanóli á ári.
Þá standa yfir viðræður við
Landsvirkjun um byggingu
stærri verksmiðju við Kröflu.
- jab, mþl / sjá síðu 4
Fimmtudagur
skoðun 18
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
2. júní 2011
127. tölublað 11. árgangur
Þetta er fyrsta skrefið
í þá átt að framleiða
miklu meira af metanóli
BENEDIKT STEFÁNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI VIÐSKIPTAÞRÓUNAR
HJÁ CRI
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
2
Lily Allen og systir hennar, Sarah Owen, hafa kynnt fatalínu sína sem verður til sölu í fataverslun þeirra, Lucy in Disguise. Fötin vísa í gamla tíma enda eru gömul föt þema verslunarinnar.
F atnaður gamalla stjarna á við Jacqueline Kennedy Onassis og Audrey Hepburn höfða mjög til mín. Tímabilið milli 1950 og 1960 er mér innblástur og ég er hrifin af klæðskerasaumuðum fötum frá þessum tíma,“ segir María Nielsen. María er nemi á öðru ári í kjólasaum í Fataiðn-deild Tækniskólans í Reykjavík en þar sem hún er námsmaður bætir hún við að staðan í dag sé ekki sú að hún fjárfesti í dýrum fatnaði. Í framtíðinni vilji hún þó leggja meira upp úr dýrari og vönd-uðum fötum sem hún getur þá átt lengi.Á myndinni klæðist María svörtum kjól sem hún keypti í Rauða kross búðinni, jakka úr H&M, skóm úr Friis & co og
María Nielsen er nemi á öðru ári í kjólasaum í Fataiðndeild Tækniskólans í Reykjavík.Hrifin af
kjólum frá
6. áratugnum
Ný kynslóð
Rafskutlur
-frelsi og nýir mögu
Einfaldar í notkun oghagkvæmar í rekstri
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9
teg CHIC - mjög fínlegur og fallegur push up í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.680,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14.Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.misty.is
Vertu vinur
N Ý K O M I N N O G Æ Ð I S L E G U R
LÉTTIR OG ÞÆGILEGIR SUMARSKÓR Í ÚRVALI
Hvert ár er ávinningur
Guðrún Agnarsdóttir er
sjötug.
tímamót 24
Litrík leyniföt
Fötin í Leynibúðinni á Laugavegi
eru eftir íslenska hönnuði.
allt 2
FÓLK Danski veitingastaðurinn
Kung fu 2 Izakaya bar í Kaup-
mannahöfn er tilnefndur sem
besti nýi veit-
ingastaðurinn
og besti nýi
barinn á vef-
síðunni Alt om
København.
Yfirkokkur-
inn og yfirbar-
þjónninn eru
báðir íslensk-
ir. Vefsíðan er
vinsæl í Dan-
mörku, og nota
Danir hana til að afla sér upplýs-
inga um ýmiss konar afþreyingu.
Jón Rúnar Sigurðsson yfir-
kokkur tengir velgengni staðar-
ins þó ekki við þjóðerni yfir-
mannanna. „Þetta byggist allt
á góðri hugmynd eigendanna.
Fólk virðist vera tilbúið að borða
þennan mat.“ - mmf / sjá Allt
Veitingamönnum gengur vel:
Íslendingar vin-
sælir í Köben
JÓN RÚNAR
SIGURÐSSON
Uppstigningardagur
Opið 13 – 18
BJART OG MILT Í dag verða
vestan 3-8 m/s. Víða léttskýjað en
skýjað með köflum og stöku skúrir
vestra. Hiti 5-15 stig.
VEÐUR 4
7
12
10
105
Blatter nýtur trausts
Formaður KSÍ hefur trú
á því að Sepp Blatter geti
endurreist ímynd FIFA.
sport 40
EFNAHAGSMÁL Árni Páll Árnason,
efnahags- og viðskiptaráðherra,
segir nauðsynlegt að ríkisrekn-
ar stofnanir veiti viðskiptavin-
um sínum sömu kjör og fást á
almennum markaði. Ef Íbúða-
lánasjóður ætti að feta í fótspor
Landsbankans varðandi niður-
greiðslur á húsnæðislánum,
þýddi það enn frekari afskriftir
upp á allt að átta milljarða króna.
Landsbankinn hefur kynnt
umfangsmiklar breytingar á
greiðsluúrræðum viðskiptavina
sinna er varða meðal annars
niðurgreiðslur á húsnæðislánum.
Aðgerðirnar í heild munu kosta
bankann á bilinu 25 til 30 millj-
arða króna. Um fjögur þúsund
manns eiga möguleika á að nýta
sér úrræðið, sem snúa í aðal-
atriðum að því að verðmæti fast-
eigna er metið eftir fasteigna-
mati en ekki markaðsvirði eins
og tíðkast hefur. Þá lækka aðrar
veðhæfar eignir einstaklinga
ekki niðurgreiðslur eins og hjá
Íbúðalánasjóði, Íslandsbanka,
Arion banka og lífeyrissjóðunum.
Árni Páll segir ríkið þurfa að
geta tryggt að Íbúðalánasjóður,
sem og aðrar stofnanir í ríkis-
ábyrgð, sé í stakk búinn til að
mæta viðskiptavinum sínum með
sama hætti og almennt gerist á
markaði, annars sé tilverugrund-
völlur þeirra í hættu. Nauðsyn-
legt sé að veita Íbúðalánasjóði
þá fjármögnun í samræmi við
þörf markaðarins en eftir eigi að
koma í ljós hvernig hinir bank-
arnir bregðist við. Samkvæmt
upplýsingum frá Íslandsbanka
og Arion banka er verið að skoða
málin hvað varðar framhald á
niðurgreiðslum húsnæðislána,
en engar ákvarðanir hafa verið
teknar. - sv / sjá síðu 12
Ríkið skuldbundið
að veita sömu kjör
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir nauðsynlegt að ríkisreknar stofnanir veiti
sömu kjör og á almennum markaði. Íbúðalánasjóður þyrfti að afskrifa allt að
átta milljarða króna til að bjóða sambærilegar niðurgreiðslur og Landsbankinn.
Setja sér stjórnarskrá
Frændur okkar í Færeyjum
búast nú til að setja sér
nýja stjórnarskrá, skrifar
Þorvaldur Gylfason.
í dag 19
ALLT Á FULLU Framkvæmdir við fyrstu verksmiðju CRI ganga hratt þessa dagana en flutningaskipið BBC France lagði að
bryggju í fyrrakvöld með 200 tonn af búnaði í verksmiðjuna og fer sennilega þrjár ferðir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VÍSINDI, AP Fyrir ríflega tveimur
milljónum ára, þegar forfeður
manna bjuggu
í Afríku, voru
það ekki karl-
arnir sem fóru
út að kanna
heiminn meðan
konurnar biðu
heima, heldur
voru það kon-
urnar sem
lögðust í ferðalög til að finna sér
maka.
Þetta fullyrða vísindamenn,
sem hafa gert ítarlegar rann-
sóknir á tönnum úr tveimur
tegundum forfeðra okkar.
Af efnasamsetningu tannanna
geta vísindamennirnir dregið
ályktanir um það, hvort viðkom-
andi einstaklingur hafði ferðast
víða eða haldið sig á sömu slóðum
allt sitt líf.
Rannsókninni stjórnaði Sandi
Copeland við Colorado-háskóla.
- gb
Tennur veita nýjar upplýsingar:
Konur lögðust í
ferðir til forna
Fyrirtækið CRl hefur brátt framleiðslu á umhverfisvænu eldsneyti:
Ætla að draga úr bensínnotkun
EINN
FORFEÐRANNA