Fréttablaðið - 10.06.2011, Side 2

Fréttablaðið - 10.06.2011, Side 2
10. júní 2011 FÖSTUDAGUR2 Gunnar, átti ekki að vera betra að sleppa bara öllum stór- löxunum? „Fyrst þarf að klappa þeim og kjassa og taka myndir. Svo mega þeir fara þegar sýningu lýkur.“ Gunnar Helgason kveðst loks hafa landað stærri löxum en Ásmundur tvíburabróðir hans með því að leikstýra Agli Ólafssyni, Jóhannesi Hauki Jóhannessyni, Kjartani Guðjónssyni og Jóhanni G. Jóhannssyni í verki sem setja á upp í Austurbæ. SKIPULAGSMÁL Fyrsti samningur- inn vegna götu- og torgsölu var undirritaður í gær. Var það gert í samræmi við nýjar reglur sem samþykktar voru í borgarráði í apríl síðastliðnum um slíka starf- semi. Fyrsti söluvagninn verður á Skólavörðuholti við Frakkastíg og er hann í eigu fyrirtækisins Frico ehf. Gert er ráð fyrir að sala hefjist í næstu viku. Hægt er að nálgast umsóknargögn um götu- og torgsölu á vef Reykja- víkurborgar. Framkvæmda- og eignasvið fer með leyfisveitingar. - sv Fyrsti götusölusamningurinn: Vagn verður á Skólavörðuholti LÖGREGLUMÁL Sú ákvörðun innan- ríkisráðherra að veita Geirmundi Vilhjálmssyni lausn frá starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju um stundar sakir var rétt, samkvæmt niðurstöðu nefndar fjármálaráðu- neytis um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Geirmundur, sem taldi ákvörð- unina óréttmæta og síðar óupp- lýsta, sætir rannsókn hjá lögregl- unni á höfuðborgar svæðinu vegna meintra auðgunarbrota hans á kostnað fangelsisins. Rannsóknin er á lokastigi, að sögn lögreglu. Að því er fram kemur í gögnum sem nefndin hefur aflað hefur lög- reglan að undanförnu rannsakað rúmlega fjörutíu tilvik, þar sem grunur leikur á að fangelsis stjórinn fyrrverandi hafi dregið sér fjár- muni eða verðmæti í eigu fangels- isins. Við rannsókn málsins leitaði lögregla á heimili Geirmundar og í sumarhúsi í eigu föður hans. Við leitina lagði lögregla hald á ýmsa muni sem taldir eru í eigu fangels- isins, þar á meðal ýmis verkfæri, varahluti í bifreiðar og hjólbarða. Þá kemur fram að Fangelsis- málastofnun hafði áður en til rann- sóknarinnar kom gert skriflega athugasemd við Geirmund vegna mikilla innkaupa fangelsisins frá fyrirtækinu N1. Samkvæmt sölu- yfirliti frá N1 höfðu seldar vörur frá fyrirtækinu farið úr ríflega 1,4 milljónum vegna ársins 2009 í rúm- lega 3,5 milljónir fyrstu tíu mánuði árs 2010. Ríkisendurskoðun gerði athuga- semdir við innkaup til fangelsisins að upphæð 1,7 milljónir króna á tíu mánaða tímabili 2010, þar sem hið keypta fannst ekki í fangelsinu, tengdist ekki starfsemi þess eða bókhaldsgögn fundust ekki fyrir. Gögn sem lögð hafa verið fram sýna að fimmtíu til sextíu sinnum í mánuði voru gerð smávægileg innkaup fyrir fangelsið í matvöru- versluninni Samkaupum í Grundar- firði, þrátt fyrir fyrir mæli um hag- kvæm innkaup frá birgjum eða lágvöruverðsverslunum, að því er fram kemur í niðurstöðum nefndar- innar. Stór hluti innkaupanna reyndist munaðar vara sem ekki var á boð- stólum í fangelsum ríkisins, svo sem kjúklingalundir, regnbogasilungur, sælgæti, gosdrykkir og fleira. Geirmundur og eiginkona hans stunduðu inn kaupin að mestu. Í sumum tilvikum kvittuðu fangar fyrir móttöku á vörum, en fangelsis- stjórinn samþykkti reikningana í öllum tilvikum. jss@frettabladid.is Grunaður um rúm 40 auðgunarbrot Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að ljúka rannsókn á meintum auðgunar- brotum fyrrverandi fangelsisstjóra á Kvíabryggju. Um er að ræða rúmlega 40 til- vik þar sem hann er grunaður um að hafa dregið sér fé eða muni fangelsisins. KVÍABRYGGJA Nefnd fjármálaráðuneytis um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins kemst að þeirri niðurstöðu að rétt hafi verið af innanríkisráðherra að veita fyrrverandi fangelsisstjóra tímabundið lausn frá störfum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VIÐSKIPTI „Það er engum til góðs að skilanefndir verði til sjálfs sín vegna um langt árabil,“ segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann lagði fram stjórnar- frumvarp um eftirlit með skila nefndum gömlu bank- anna á Alþingi fyrir mánuði. Í breytingar tillögu við frumvarpið í viðskiptanefnd á þriðjudag var lagt til sólarlagsákvæði sem felur í sér að skilanefndir verði lagð- ar niður um næstu áramót og að slita stjórnir taki við starfi þeirra. Skilanefndir voru settar yfir bankana þegar þeir fóru á hlið- ina í október árið 2008. Þær hafa séð um þrotabúin fyrir hönd kröfuhafa. „Fjármála- stofnanir eru nú í limbói þar til leyst verður úr gjaldþrotum þeirra og þeim komið í hendur raunverulegra eigenda,“ segir Árni Páll og áréttar mikilvægi þess að kröfuhafar bankanna taki við rekstri þeirra svo þeir geti haft viðskipti með hluti í þeim. „Menn telja óheppilegt að gera þetta í miðju ferli en það ætti ekki að breyta miklu fyrir starf- semina. Skilanefndin fær þá tíma til að klára ýmis mál, svo sem söl- una á Iceland Foods,“ segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar gamla Lands- bankans. Gamla Kaupþing er að hefja nauðasamningaferli. Ekki náð- ist í Árna Tómasson, formann skilanefndar Glitnis, við vinnslu fréttar innar. - jab ÁRNI PÁLL ÁRNASON Efnahags- og viðskiptaráðherra vill að skilanefndir bankanna hætti um áramótin: Biðstaða hjá gömlu bönkunum NÁTTÚRA Fiðrildagildra hefur verið sett upp í þjóðgarðinum Snæfellsjökli í samstarfi við Náttúrustofu Vesturlands, en slíkar gildrur eru komnar all- víða um landið. Fylgst verður með hvaða tegundir koma og hve- nær, en ferðir fiðrilda þykja gefa góða vísbendingu um breytingar í náttúrunni sem mikilvægt er að vakta. Landverðir þjóðgarðsins munu líta eftir gildrunni og koma afl- anum á Náttúrustofuna til grein- ingar. Hingað til hefur aflinn verið heldur rýr enda hefur verið kalt í veðri og vindasamt. - shá Náttúran vöktuð með gildru: Safna fiðrildum í þjóðgarðinum RAUÐUR AÐMÍRÁLL Þetta fiðrildi tyllti sér niður á fífil við bæinn Skarð í Lands- sveit. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Frjáls för fólks er hagkvæm Aðild að Schengen-samningnum hefur haft góð áhrif á vinnumarkað- inn og efnahagslífið í Sviss, sam- kvæmt nýrri rannsókn efnahags- málaráðuneytisins þar í landi. Tuttugu prósent íbúa í Sviss eru aðflutt. EVRÓPUMÁL DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest dóm Héraðsdóms Reykja- víkur yfir fimmtugri konu, Bergþóru Guðmundsdóttur, sem dæmd var í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir ýmis brot. Konan var meðal annars dæmd fyrir að stinga aðra konu tvívegis í höfuðið með eldhúshnífi í fyrra. Fórnarlambið hlaut tvo skurði á höfði og kúlu á hnakka. Þá var konan jafnframt dæmd fyrir að kveikja í fataskáp í klefa sam- fanga síns í febrúar á þessu ári með þeim afleiðingum að fatn- aður og önnur verðmæti eyði- lögðust. Loks var hún dæmd fyrir þjófnað úr fataverslun. - jss Í tvö og hálft ár inni: Stakk konu tvisvar í höfuð EVRÓPUMÁL Evrópuþingið á að birta umdeilda skýrslu frá 2008 um hvernig Evrópuþingmenn misnotuðu sporslukerfi sem ætlað var aðstoðarmönnum þing- manna. Um þetta er mælt í nýjum úrskurði almenns dómstóls ESB. Írskur þingmaður sem kærði málið eftir að þingið neitaði honum um skjalið á þeim forsend- um að birting þess ógnaði rann- sóknarhagsmunum. Að því er fram kemur á eu- observer.com gæti evrópuþingið áfrýjað úrskurðinum til Evrópu- dómstólsins. Innan þess mun þó, í þágu gagnsæis, þrýst á um að það verði ekki gert. - kóþ Dómstóll ESB úrskurðar: Evrópuþingið láti spillingar- skýrslu í ljós VIÐSKIPTI Jarðboranir hafa samið við ný-sjálenska orkufyrirtækið Mighty River Power um stóra fram- kvæmd þar í landi. Samningurinn, sem er metinn á þrjá milljarða króna, verður undirritaður síðar í mánuðinum. „Þetta er afar ánægjuleg niðurstaða, enda stærsta og metnaðarfyllsta verkefni sem við höfum ráðist í erlendis. Jarðboranir urðu hlutskarpastar í alþjóð- legu útboði sem fjöldi borverktaka tók þátt í,“ segir Bent S. Einarsson, forstjóri Jarðborana, og bætir við: „Mighty River Power gerði í útboðinu kröfur um tæknilega þekkingu og alþjóðlega vottun á sviði umhverfis- og öryggismála, auk þess sem reynsla af viðlíka verkefnum var skilyrði. Við stóðumst þessar kröfur og höfum fundið fyrir því að Jarð- boranir njóta trausts á alþjóðlegum bormarkaði, ekki síst vegna reynslu fyrirtækisins af jarðhita- framkvæmdum á Íslandi og víðar.“ Verkefnið felst í borunum eftir jarðhita á jarðhita svæði sem nefnist Ngatamariki á nyrðri eyju Nýja-Sjálands. Jarðhitann á að nota til raforku- framleiðslu. Týr, stærsti bor landsins, verður flutt- ur yfir hálfan hnöttinn vegna verkefnisins. Þá er gert ráð fyrir að á fjórða tug sérfræðinga fari utan. Jarðboranir hafa markaðssett fyrirtækið víða undanfarin misseri og segir Bent það framtak vera að skila árangri. - mþl Jarðboranir gera þriggja milljarða króna samning við ný-sjálenskt orkufyrirtæki: Fá stórt verkefni á Nýja-Sjálandi NGATAMARIKI Jarðboranir munu bora eftir jarðhita á jarð- hitasvæði sem nýta á til raforkuframleiðslu. MYND/JARÐBORANIR ATVINNA Kópavogsbær hefur ráðið hundrað ungmenni frá átján ára aldri við skógræktarverkefni í bænum í sumar. Ráðningin er liður í atvinnuátaki bæjarins, Skógræktarfélags Íslands, Skóg- ræktarfélags Kópavogs og Vinnu- málastofnunar. Öll ungmenni, sem synjað var um sumarvinnu en sóttu um í átakinu voru ráðin. Alls fá um 710 ungmenni í Kópavogi frá sautján ára aldri vinnu hjá bænum í sumar. Allir 14 til 16 ára ungling- ar fá vinnu. - ibs Sumarstörf ungra í Kópavogi: Hundrað til við- bótar fá vinnu SPURNING DAGSINS Dala Feta fyrir þá sem gera kröfur ms.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.