Fréttablaðið - 10.06.2011, Síða 28

Fréttablaðið - 10.06.2011, Síða 28
6 föstudagur 10. júní Ljósmyndir: Anton Brink Förðun: Harpa Kára/Mac Fatnaður: AFTUR Viðtal: Álfrún Pálsdóttir Hrefnu Rósu Sætran hefur alltaf dreymt um að vinna með mat. Þegar jafnaldrar hennar voru að skiptast á körfuboltamyndum og hlusta á New Kids on the Block var Hrefna Rósa að fylgjast með eldamennsku átrúnaðar- goðs síns, Sigga Hall. É g varð strax sem barn heltekin af mat og framsetningu matar. Ég man að ég lá einu sinni heima veik í viku og ég eyddi tímanum í að stúdera ná- kvæmlega alla matreiðsluþætt- ina hans Sigga Hall,“ segir Hrefna Rósa brosmild þegar Föstudagur drekkur með henni kaffibolla á Fiskmarkaðnum. ÞROTLAUS VINNA Þrátt fyrir ungan aldur hefur Hrefnu Rósu tekist að marka sér sess meðal færustu kokka lands- ins og vinnur nú hörðum hönd- um að opnun nýs veitingastaðar, Grillmarkaðarins, í lok mánaðar- ins. Samhliða þeirri vinnu rekur Hrefna Rósa Fiskmarkaðinn, und- irbýr útgáfu nýrrar bókar, stefnir í upptökur á sjónvarpsþætti sínum og síðast en ekki síst gengur hún með fyrsta barn sitt. Það eru því spennandi tímar fram undan í lífi Hrefnu Rósu, sem segist líða best þegar nóg er að gera. „Ég held að ég hafi unnið fimm- tán ára vinnu á sex árum þegar ég byrjaði í starfinu. Ég var allt- af að vinna. Tók að mér tvöfaldar vaktir á veitingastaðnum og var þess á milli í sjálfboðavinnu í öðrum eldhúsum,“ segir Hrefna Rósa og þakkar þrotlausri vinnu síðustu ára velgengnina í dag. „Ég á erfitt með að slappa af og vera í fríi og nýt mín best þegar ég hef mörg járn í eldinum.“ KONAN Í ELDHÚSINU Hrefna Rósa fann alltaf fyrir því að vera kona í karlafagi og þurfti alltaf að gera aðeins meira til að sýna sig og sanna. „Ég var eina stúlkan sem útskrifaðist úr mínum árgangi í Menntaskólan- um í Kópavogi. Ég þurfti því allt- af að lyfta aðeins þyngri kössum og vinna aðeins lengur. Ég vildi sýna mig og sanna til að öðlast virðingu starfsfélaganna,“ segir Hrefna Rósa, sem er ein af fáum konum sem hafa verið sýnilegar í kokkastarfinu með bæði sjón- varpsþátt og bókaútgáfu. „Það eru fleiri stúlkur í kokkanámi í MK núna og ég hef heyrt að sumar þeirra nefna mig á nafn sem áhrifavald. Það er gríðarlega gaman að heyra að maður hefur áhrif.“ Hrefna Rósa getur ekki gefið neina ákveðna útskýringu á því af hverju kokkastarfið hefur orðið karlastarf en hún man skýrt eftir að hún var vöruð við því þegar hún byrjaði að vera ekki að fara í fæðingarorlof strax. „Ég man að mér var sagt að bíða með barn- eignahugleiðingar eins lengi og ég gæti. Ég tók þeim ráð- leggingum mjög bókstaflega,“ hlær Hrefna Rósa en hún á von á litlum strák í september með unnusta sínum, ljósmyndaran- um Birni Árnasyni. NÝTT HLUTVERK Hrefna Rósa er einkabarn foreldra sinna og viðurkennir reynsluleysi sitt í barnaumönnun. „Ég var allt- af meira að umgangast eldra fólk en yngra og held að ég hafi bara einu sinni skipt á bleyju áður. Í gær settist ég í fyrsta sinn niður og gluggaði í eina af þessum barnabókum og las um hvern- ig maður baðar ungbarn,“ segir Hrefna Rósa og heldur áfram: „Ég er samt ekkert stressuð og er viss um að við finnum út úr foreldra- hlutverkinu þegar að því kemur. Ég er mjög spennt og meðgangan hefur hingað til lagst vel í mig.” Hrefna Rósa og Björn festu ný- verið kaup á draumahúsinu sínu, þar sem þau búa ásamt köttunum Lenna og Míu. Hrefna er mikil l dýravin- ur en það fer ekki alltaf saman við kokkastarfið. „Ég man að ég hringdi í mömmu með tárin í augunum í fyrsta sinn sem ég hamfletti rjúpur. Ég vissi að hún mundi skilja mig því hún er líka dýravinur en nú hefur mér tek- ist að aðskilja þetta tvennt. Matur er matur og það að við borðum dýr er hluti af náttúrulögmálinu.” Samt sem áður skiptir það Hrefnu Rósu miklu máli hvaðan hráefn- ið kemur. Undanfarið hefur hún ferðast á milli sveitabæja og hitt bændur, en hráefnið sem verður á boðstólum á Grillmarkaðnum verður beint frá bónda. „Það er rosalega mikilvægt fyrir mig að fara á bæina og fylgjast með sveitalífinu. Vita hvað- an maturinn kemur. Ég er svo mikið bæjarbarn að það er upp- lifun fyrir mig að kynnast lífinu í sveitinni. Sjá litlu grísina og fylgj- ast með sauðburði,“ segir Hrefna Rósa. GEFUR RÁÐ Með sjónvarpsþáttunum og bókaútgáfunni er Hrefna Rósa orðin þekkt andlit á Íslandi en hún tekur ekki mikið eftir því. „Ég finn ekkert fyrir því þannig. Það er samt fyndið að fólk virð- ist hafa mikla þörf fyrir að láta mig vita hver uppáhaldsmat- ur þess er þegar það hittir mig í fyrsta sinn. Svo er ég oft spurð álits úti í búð um hvað sé best að kaupa og hvernig sé best að mat- reiða hitt og þetta,“ segir Hrefna Svo er ég oft spurð álits úti í búð um hvað sé best að kaupa og hvernig sé best að matreiða hitt og þetta. SKAPANDI MATGÆÐIN Átrúnaðargoðið Hrefna Rósa Sætran hefur alltaf haft áhuga á mat og matargerð en Siggi Hall hefur verið átrúnaðargoð hennar síðan hún var lítil. Hversu hreinar eru andlitsvörurnar þínar? Derma Eco næturkrem Mjög rakagefandi, róar og nærir húðina meðan þú sefur. Derma Eco dagkrem Milt, mýkjandi andlitskrem sem veitir ákjósanlegan raka og vernd. Fæst í Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup, Heilsuver, Hagkaup, Árbæjarapóteki, Apóteki Vesturlands, Apóteki Ólafsvíkur, Melabúðinni, Vöruval Vestmannaeyjum, Þín verslun Seljabraut. Innflutningsaðili: Gengur vel ehf DERMA ECO LÍFRÆNT VOTTAÐAR HÚÐ- OG HÁRSNYRTIVÖRUR Á SKYNSÖMU VERÐI – Án Parabena, ilm og litarefna – Sundbolir, Bikini og Tankini frá TRIUMPH og TYR. Stærðir frá 36 – 54 „allt til sundiðkunar“ Bæjarlind 1-3, 201 Kópavogur s: 564 0035

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.