Fréttablaðið - 10.06.2011, Qupperneq 50
10. júní 2011 FÖSTUDAGUR34
FÓTBOLTI Blikinn Kristinn Stein-
dórsson er markahæsti leik-
maður Pepsi-deildar karla þegar
deildin fer í EM-fríið en hann
skoraði sitt sjötta mark í sjö
umferðum í 1-1 jafntefli á móti
Blikum í fyrrakvöld.
Það vekur athygli að Kristinn
hefur skorað öll mörkin sín í
sumar á Kópavogsvellinum þar
sem hann vinnur einmitt dags
daglega. Kristinn hefur verið
á markaskónum í öllum fjórum
heimaleikjum Blika en hann
hefur ekki enn náð að skora í
útileikjum liðsins sem eru nú
orðnir þrír talsins.
Þetta er mikil breyting frá því
í fyrra þegar hann skoraði 8 af 12
mörkum sínum utan Kópavogs.
Kristinn er því þegar búinn að
gera betur en í fyrra þegar hann
skoraði 4 mörk í 11 leikjum Blika
á Kópavogsvelli. - óój
Blikinn Kristinn Steindórsson:
Markheppinn á
vinnustaðnum
FÓTBOLTI FH-ingar töpuðu 0-2 á KR-
vellinum á þriðjudagskvöldið og
hafa því aðeins náð í 8 af 18 mögu-
legum stigum í fyrstu sex leikjum
sínum í sumar. Þetta er því annað
árið í röð sem FH tapar tíu stigum í
fyrstu sex leikjum sínum en í fyrra
var það dýrkeypt fyrir lærisveina
Heimis Guðjónssonar sem töpuðu
titlinum á markatölu síðasta haust.
FH-ingar höfðu til samanburð-
ar aðeins tapað samtals 9 stigum
og náð í 81 stig af 90 mögulegum í
fyrstu sex leikjunum sínum á árun-
um 2005 til 2009. - óój
FH í fyrstu sex leikjunum:
Tíu töpuð stig
tvö ár í röð
KRISTINN STEINDÓRSSON Markahæstur
í Pepsi-deild karla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lið 7. umferðarinnar
Fréttablaðið hefur valið eftirtalda
leikmenn í lið umferðarinnar sem að
þessu sinni spilar leikkerfið 4-4-2.
Lið 7. umferðar:*
Hannes Þór Halldórsson KR
Gísli Páll Helgason Þór Ak.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson KR
Jón Guðni Fjóluson Fram
Guðmundur Reynir Gunnarsson KR
Andrés Már Jóhannesson Fylkir
Daníel Laxdal Stjarnan
Ásgeir Börkur Ásgeirsson Fylkir
Gunnar Már Guðmundsson Þór Ak.
Ingimundur Níels Óskarsson Fylkir
Kjartan Henry Finnbogason KR
* Leikur Keflavíkur og Vals er ekki
með þar sem hann fer ekki fram fyrr
en í lok júlí.
FÓTBOLTI Hannes Þór steig sín
fyrstu skref á knattspyrnuvellin-
um í svörtum og hvítum búningi
KR. Hann hefur komið víða við
síðan en segist að hluta líða eins
og hann sé kominn aftur heim.
„Að vissu leyti. Ég byrjaði að
æfa fótbolta í Vesturbænum. Ég
var mikill KR-ingur á yngri árum
og fór á völlinn fram á unglings-
aldur. Það er sérstök tilfinning
að vera kominn aftur á KR-völl-
inn og spila reglulega. Litli KR-
ingurinn í mér hatar það ekki.
Það er mjög ánægjuleg tilfinning
að spila fyrir KR. Tilfinning sem
ég stefndi á að upplifa.“
Hannes Þór kom til liðs við KR
frá Fram fyrir tímabilið og hefur
þótt standa sig vel. Hann segist
vita af pressunni sem fylgi því að
standa á milli stanganna hjá KR
en hann hugsi ekki um hana.
„Á mínum tíma hjá Fram gekk
ég í gegnum alls konar tíma. Upp
og niður, hóla og hæðir. Ég þekki
að það getur gengið á ýmsu. Ég
er vel undirbúinn í dag og læt
það ekki á mig fá þó að eitthvað
sé ekki eins og maður vill hafa
það. Ég held ég hafi náð að bægja
pressunni í Vesturbænum ágæt-
lega frá mér. Ég einbeiti mér bara
að því að spila. Það hefur gengið
vel til hingað til en það er ekkert
í hendi. “
KR hefur farið vel af stað á
tímabilinu og er með fjögurra
stiga forskot á toppi deildarinn-
ar. Hannes segir leikinn gegn FH
hafa verið ákveðið próf fyrir liðið.
„Þetta var stærsti leikur ársins
hingað til og við stóðumst prófið.
Það gekk þó erfiðlega að landa
þessu. Við vorum mjög slakir í
fyrri hálfleik sem ég held að hafi
verið okkar lélegasti hálfleikur í
sumar. FH-ingar pressuðu okkur
og létu okkur finna fyrir því en
þrátt fyrir allt vorum við þéttir
varnarlega. Eftir vítið kviknaði
í liðinu. Við vorum skeinuhætt-
ir fram á við, gáfum ekki færi á
okkur og vorum mjög sannfær-
andi.“
Vítaspyrnuvarsla Hannesar
Þórs frá Matthíasi Vilhjálmssyni
hefur ekki farið framhjá nein-
um. Áttunda árið í röð stefndi
allt í FH sigur í Vesturbænum
þegar Matthías steig á punktinn
en Hannes Þór las spyrnu Matth-
íasar. Hann þakkar varamark-
verðinum Atla Jónasar fyrir góð
ráð.
„Atli vissi nákvæmlega hvað
myndi gerast ef Matti tæki víti.
Hann útskýrði það fyrir mér í
smáatriðum. Ég fylgdi því bara
og mætti honum í hornið. Ég gef
honum þakkir fyrir það. “
Þrátt fyrir flotta frammistöðu
hjá Hannesi Þór í fyrstu lotu tíma-
bilsins segist hann aldrei fullkom-
lega sáttur við frammistöðu sína.
„Það kemur eitthvað upp í
hverjum leik sem maður er ósátt-
ur við. Mér fannst ég ekki vera að
verja nógu mikið í fyrstu leikjun-
um. Þótt mörkin væru ekki skrif-
uð á mig hefði ég viljað taka meira
í stöðunni maður gegn manni.
Heilt yfir hef ég verið ánægður
en það hefur reyndar ekki verið
mikið að gera í fyrstu leikjunum.
Það lítur oft út fyrir að maður sé
ekki að gera neitt þó svo að það
sé fullt af atriðum sem þurfa að
vera í lagi. Ef maður hittir ekki
sendingu til baka eða tekur ekki
auðvelda fyrirgjöf endar boltinn
inni. Maður þarf að gera einföldu
hlutina líka og skila þeim. Það
eru ekki bara skotin sem maður
ver. En það er erfitt að líta vel út í
markinu ef vörnin er götótt og við
vinnum þetta saman. “
Þriggja vikna hlé hefur verið
gert á Íslandsmótinu vegna þátt-
töku U-21 landsliðs Íslands á Evr-
ópumótinu í Danmörku.
„Þetta er bara skemmtileg til-
breyting að fá svona sumarfrí.
Maður veit ekki hvernig maður á
að snúa sér í þessu. Maður reynir
bara að slaka á þrátt fyrir sólar-
leysið. Svo þurfum við að halda
einbeitingu, megum ekki tapa
okkur í gleðinni þó að það sé
gaman á toppnum. Við verðum að
mæta á æfingu á mánudaginn og
gíra okkur upp í næsta leik.“
- ktd
VIÐ STÓÐUMST PRÓFIÐ
Hannes Þór Halldórsson var besti leikmaður 7. umferðar Pepsi-deildar karla að
mati Fréttablaðsins en hann átti frábæran leik þegar KR-liðið vann 2-0 sigur á
FH-ingum. Hannes Þór segir ánægjulega tilfinningu að spila fyrir KR.
FAGNAR SIGRI MEÐ FÉLÖGUNUM Í KR Hannes Þór Halldórsson sést hér fagna eftir
sigurleik á móti Stjörnunni í bikarnum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hannes búinn að verja víti fimm ár í röð
Gengi Hannesar í vítum í úrvalsdeildinni:
2011 KR 1 af 2, 50%
2010 Fram 1 af 3, 33%
2009 Fram 1 af 5, 20%
2008 Fram 1 af 2, 50%
2007 Fram 1 af 4, 25%
Samtals: 5 víti varin af 16, 31%
FÓTBOLTI KR-ingar hafa byrjað
frábærlega í Pepsi-deild karla og
verða með fjögurra stiga forskot
á toppi deildarinnar í EM-fríinu.
KR-ingar hafa fengið 11
stigum meira en á sama tíma
síðasta sumar og það þarf að
fara alla leið til ársins 1996
til að finna betri byrjun hjá
Vesturbæjarliðinu. - óój
KR-ingar byrja vel í sumar:
Með 11 stigum
meira en í fyrra
FRÁBÆR BYRJUN KR-ingar hafa fagnað
mörgum sigrum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mörk Kristins Steindórs
Sumarið 2011
Leikir/Mörk: 7/6 Heima-Úti: 6-0
Sumarið 2010
Leikir/Mörk: 22/12 Heima-Úti: 4-8
Töpuð stig hjá FH
í fyrstu sex leikjunum
2011 10 stig Óklárað
2010 10 stig 2. sæti
2009 3 stig Íslandsmeistari
2008 2 stig Íslandsmeistari
2007 2 stig 2. sæti
2006 2 stig Íslandsmeistari
2005 0 stig Íslandsmeistari
2004 9 stig Íslandsmeistari
Flest stig KR í fyrstu
7 leikjunum frá 1996:
1996 19 stig (Mt.: 22-5) 2011 17 stig (14-6)
1999* 14 stig (14-6) 2009 14 stig (14-6)
2000* 14 stig (10-6) 2002* 13 stig (9-7)
* KR varð Íslandsmeistari þetta sumar