Fréttablaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 16
21. júní 2011 ÞRIÐJUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Björn Guðmundsson
áður til heimilis að Múlasíðu 9,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn 13. júní.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
21. júní kl. 13.30.
Guðný Björnsdóttir
Ólöf Björnsdóttir Eyþór Jóhannsson
Pálmi Björnsson Hjördís Hauksdóttir
Magga Kristín Björnsdóttir Björn Snæbjörnsson
Birna Björnsdóttir Helgi Helgason
Guðmundur Björnsson Rósa Knútsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ragnar Borg
fyrrum ræðismaður og
framkvæmdastjóri,
lést á dvalarheimilinu Grund 15. júní. Útförin fer fram
frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 22. júní
kl. 15.00.
Ingigerður Þóranna Melsteð Borg
Anna Elísabet Borg Rein Norberg
Elín Borg Benedikt Hjartarson
Óskar Borg Berglind Hilmarsdóttir
Páll Borg Ingunn Ingimarsdóttir
Eva, Rakel, Thelma, Inga, Hildur Emma og Elín Ósk.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Auður Jónsdóttir
ljósmyndari,
Barmahlíð 52, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn
9. júní. Útförin fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 23. júní kl. 13.00.
Sævar Halldórsson
Jónína Margrét Sævarsdóttir
Guðrún Sigríður Sævarsdóttir Kristján Vídalín Jónsson
Hrönn Sævarsdóttir Sigurður Sigurðarson
Jón Alvar Sævarsson Steinunn Baldursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég er mjög sátt við mitt hlutskipti því
líf mitt kemur vel út. Það er notalegt að
verða gamall ef manni líður vel og ég
hlakka til hvers dags sem Guð gefur,“
segir Reykjavíkurdaman Ásta Eyj-
ólfsdóttir, sem fæddist á Njálsgötunni
fyrir einni öld og hefur alla tíð búið í
höfuðstaðnum, lengst af á Leifsgötunni
með móður sinni heitinni.
„Við vorum fimm systkin sem kom-
umst á legg, en eitt lést úr lungnabólgu
áður en það varð tveggja ára,“ segir
Ásta, sem einnig missti föður sinn úr
berklum liðlega tvítug að aldri.
„Það var erfitt, en pabbi hafði verið
á berklahælinu á Vífilsstöðum í þrjú ár
fyrir andlát sitt. Á þeim tíma hafði ég
lítið séð hann vegna þess að mamma
óttaðist að við systkinin smituðumst.
Annars hefur mér alltaf þótt lífið létt-
bært og engin lífsreynsla svo erfið að
ég hafi átt bágt með að vinna úr henni,“
segir Ásta. Faðir hennar starfaði hjá
Sláturfélagi Suðurlands en móðir henn-
ar var heimavinnandi alla tíð.
„Það var afskaplega notalegt og
ég minnist þess hve mamma tók vel
á móti okkur börnunum með heima-
bakstri og hlýju. Þegar maður nær
jafn háum aldri og ég er eðlilegt að sjá
á eftir sínum nánustu, og þótt það sé
ekki beinlínis einmanalegt að verða
einn eftir saknar maður alltaf geng-
inna ástvina sinna,“ segir Ásta.
Allan sinn starfsaldur vann Ásta
sem aðalgjaldkeri Sjúkrasamlags
Reykjavíkur og var mörgum Reykvík-
ingum að góðu kunn. „Þar leið mér vel,
var sjálfstæð og ánægð,“ segir Ásta.
Hún segist ekki finna nokkra breyt-
ingu á því að eiga nú afmæli í hundr-
aðasta sinn. „En ég bjóst aldrei við því
að verða hundrað ára og innra með mér
finnst mér ég ekki hafa elst síðan ég
var á miðjum aldri fyrir hálfri öld,“
segir Ásta, viss um hvers vegna hún
hefur náð svo háum aldri.
„Ég hef meðvitað lifað reglusömu
lífi, hvílt mig nóg og sleppt tóbaki og
áfengi. Aldurinn kemur af sjálfu sér
og enginn ræður sínum örlögum en
ég held að skapið hafi líka að segja, að
æsa sig ekki yfir hlutunum, vera róleg-
ur, jákvæður og hafa heilbrigða sýn á
lífið,“ segir Ásta björt, enda fædd á
bjartasta degi ársins.
„Mér hefur alltaf þótt gaman að eiga
afmæli á sumarsólstöðum, enda uppá-
haldsárstíminn þegar allt er í blóma.“
Ásta er ógift og barnlaus, en segist
aldrei hafa tregað það hlutskipti.
„Ég á góða fjölskyldu sem hefur allt-
af verið mér undurgóð og systkina-
börnin voru sem mín eigin. Hins vegar
hlakka ég til að deyja því þá hefur
maður séð það sem maður þarf að sjá
af lífinu. Og þótt nú sé reglulega slegið
á trú fólks á líf eftir dauðann breytir
það ekki minni einlægu trú á endur-
fundi í himnaríki svo ég hlakka til
samfunda við mömmu, pabba og systki
mín.“
Í tilefni dagsins tekur Ásta á móti
gestum í hjúkrunarheimilinu Skjóli,
Kleppsvegi 64 frá klukkan 15 til 18 í
dag, og vonast til að sjá sem flesta af
vinum sínum og vandamönnum.
thordis@frettabladid.is
ÁSTA EYJÓLFSDÓTTIR AÐALGJALDKERI: BLÆS Á 100 KERTA AFMÆLISKÖKU Í DAG
Þakkar Guði fyrir hvern dag
99 ÁRA Í GÆR, 100 ÁRA Í DAG Ásta hefur alla tíð vakið athygli fyrir glæsileik og smekkvísi. Hún hefur búið á Skjóli síðan 2008 en hélt sjálf
heimili til 97 ára aldurs. Eitt af áhugamálum Ástu er útsaumur, en myndina á veggnum saumaði hún, sem og rokkókóstólana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MERKISATBURÐIR
1926 Prestar landsins færa biskupi að gjöf gullkross með keðju,
sem tákn embættisstöðu hans.
1948 Columbia Records kynna til sögunnar LP-hljómplötuna.
1966 Mót norrænna lögreglukóra haldið í Reykjavík.
1980 Kvikmyndin Óðal feðranna frumsýnd.
1986 Íþróttamiðstöðin í Laugardal tekin í notkun.
1991 Perlan, útsýnishús Hitaveitu Reykjavíkur á Öskjuhlíð, form-
lega tekið í notkun.
AFMÆLI
INGA J.
BACKMAN
Söngkona er
64 ára.
LÁRUS H.
BJARNASON
Rektor MH er
55 ára.
ÁSGEIR
JÓNSSON
Hagfræð-
ingur er 41
árs.
HULDAR
BREIÐ-
FJÖRÐ
Rithöfundur
er 39 ára.
Náttúruvika á Reykjanesi
verður haldin í Grinda-
vík dagana 19. til 25. júní. Í
boði verða ýmsir dagskrár-
liðir sem tengjast náttúru og
umhverfi svæðisins, eins og
gönguferðir, náttúruskoðun,
hestaferð, hjólaferðir, fjöru-
ferð, ratleikur og margt
fleira áhugavert.
Náttúruvikan er hugsuð
sem góð skemmtun fyrir alla
fjölskylduna og jafnframt til
að minna á hvað náttúran
hefur upp á margt að bjóða.
Náttúruvikan er sam-
starfsverkefni SJF menn-
ingarmiðlunar, Grindavik
Experience og Grindavíkur-
bæjar, en upphafsmaður
verkefnisins og verkefna-
stjóri er Sigrún Jónsdóttir
Franklín.
Á heimasíðu Grindavíkur,
www.grindavik.is, má lesa
nánar um dagskrárliði.
Náttúruvika á Reykjanesi
LITADÝRÐ NÁTTÚRUNNAR Víða er fagurt á Reykjanesi, eins og hér
má sjá við Bláa lónið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
29
Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum var stofn-
aður á sumarsólstöðum 1973. Hann nær
yfir um 150 ferkílómetra og 35 kílómetra
langt svæði meðfram gljúfrasvæði Jökulsár
á Fjöllum vestanverðu, í landi bæjanna
Svínadals og Áss. Ásbyrgi varð hluti garðsins
1978. Gljúfur Jöklu, einhver hin mikilfengleg-
ustu á landinu, eru um 25 kílómetra löng
og allt að 100 metra djúp. Efri hlutinn, sem
nær frá Dettifossi að Syðra-Þórunnarfjalli, er
svipmestur og allt að 120 metra djúpur.
Áhugaverðir staðir í þjóðgarðinum
eru meðal annars Ásbyrgi, Hljóðaklettar,
Hólmatungur, Selfoss, Hafragilsfoss og For-
vaðar. Sumum finnst Jökulsárgljúfur fegursti
staður á landinu til gönguferða, bæði lengri
og skemmri.
Hinn 7. júní 2008 varð þjóðgarðurinn
í Jökulsárgljúfrum hluti af Vatnajökuls-
þjóðgarði.
Heimild: www.nat.is
ÞETTA GERÐIST 21. JÚNÍ 1973
Þjóðgarður í Jökulsárgljúfrum
VILHJÁLMUR hertogi af Cambridge er 29 ára.
„Ég er og mun alltaf verða konungborinn, en vil persónu-
lega að fólk kalli mig einfaldlega Vilhjálm – í bili.“