Fréttablaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2011 3kaffi ● kynning ●
Í sumar býður Te & kaffi upp
á mikið úrval kaldra drykkja á
kaffihúsum sínum sem eru sjö
talsins.
„Við verðum með þrjár tegundir
af ístei, ávaxta íste, grænt íste og
hvítt íste en heilnæmir eiginleikar
þess síðastnefnda eru mjög mikl-
ir. Bara sem dæmi þá inniheldur
einn bolli af hvítu tei jafnmikið af
andoxunar efnum eins og tólf glös
af nýkreistum appelsínusafa,“ segir
Kristín María Dýrfjörð, markaðs-
stjóri kaffihúsa hjá Te & kaffi.
„Við verðum einnig með hina
vinsælu köldu kaffidrykki, frappó,
en þá er hægt er að fá í meira en
tíu bragðtegundum. Við bjóðum
einnig upp á lakkrís frappó með
súkkulaði hjúpuðu lakkrískurli.“
Og nú dregur Kristín María fram
trompið: „Það er hægt að fá alla
frappódrykki með þeyttum rjóma
og karamellu- eða súkkulaðisósu,
sem ég get sagt þér að er eins og
himnaríki í bolla!“
Pippó er nýr kaldur kaffi-
drykkur á matseðlinum. „Eins
og nafnið gefur til kynna inni-
heldur hann hið gamla, góða Pipp-
súkkulaði,“ útskýrir hún. „Á mat-
seðlinum er einnig ávaxtafrappó,
sem í raun er ávaxtahristingur
með klaka, en hann er hægt að fá í
nokkrum bragðtegundum, svo sem
bláberja og brómberja, jarðar berja
og banana auk suðrænna ávexta.“
HEIMATILBÚIÐ GÓÐGÆTI
Halldór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri kaffihúsa hjá Te
& kaffi, segir að hinir vanaföstu
þurfi ekki að örvænta því allir
gömlu, góðu drykkirnir frá Te &
kaffi verði áfram á matseðlinum.
„Við eigum ekkert að láta veðrið
á okkur fá. Það er alltaf stemning
á kaffihúsum Te & kaffi og kaffi-
drykkirnir veita gleði. En þegar
sólin skín er bara enn meira gaman
að njóta sælunnar.
Te & kaffi bjóða upp á úrvals-
meðlæti og léttan mat sem allur er
heimagerður. Við búum til ferskar
samlokur, beyglur, salöt og súpur,“
segir Halldór, „allt heimagert úr
úrvalshráefni. Þá bjóðum við einn-
ig upp á ljúffengar brownie-kökur,
hina sívinsælu klatta og múffur. “
Kaffihús Te & kaffi eru á Lauga-
vegi 27, í Kringlunni og Smára-
lind, í Háskólanum í Reykjavík,
í Eymundsson Austurstræti og
Eymunds son við Skólavörðustíg og
á Akureyri.
Spennandi sumardrykkir
hjá Te og kaffi
Kristín María og Halldór með kaffibolla í góða veðrinu á svölum Eymundsson í
Austurstræti. Þar er Te & Kaffi með eitt af sínum vinsælu kaffihúsum. MYND/STEFÁN
„Lavazza-kaffið á sér gamlar
rætur,“ segir Atli Hergeirsson, sölu-
stjóri hjá Karli K. Karlssyni ehf.
„Fyrirtækið var stofnað árið 1895 í
Tórinó á Ítalíu af Luigi Lavazza og
hefur verið í eigu sömu fjölskyld-
unnar síðan þá. Fjölskyldan rekur
enn kaffihús og veitingastað í hús-
næðinu þar sem fyrirtækið var
stofnað, við San Tomasso veg númer
10 í Tórínó. Þar slær hjartað.“
Atli segir að Lavazza sé nú löngu
orðið að alþjóðlegu merki og mjög
vinsælt á Íslandi. „Þetta er gæða-
kaffi. Það er metnaður Lavazza að
velja bestu baunirnar hverju sinni í
heiminum til framleiðslunnar. Þeir
eru því ekki að binda sig við ákveð-
in lönd, svæði eða héruð. Uppskeran
getur verið svo misjöfn á milli ára.
Þeir panta ekki baunirnar nema að
hafa smakkað prufurnar og sent í
gegnum sérstaka gæðaprófun.“
Blöndurnar frá Lavazza eru
margar, frá mildum til sterkra.
„Þeir nota bæði arabica- og robusta-
baunir, en það er mun meira koffín
í þeim síðarnefndu. Baununum er
því oft blandað saman til þess að ná
rétta bragðinu,“ útskýrir Atli.
Nýting á Lavazza-kaffi er 30 pró-
sentum betri en á öðru kaffi. Það
kemur til af vinnsluferlinu, þar
sem baunirnar eru einstaklega vel
þvegnar, og brennsluaðferðinni,
en baunin er brennd við lofthita og
brennur því jafnt í gegn án þess að
skilja neitt eftir. Því er þetta alltaf
100 prósent kaffi.
„Nýtingin skiptir alltaf miklu
máli þegar kemur að útgjöldum
heimila og fyrirtækja en auðvi-
tað vilja allir halda í gæðin. Um
40 milljóna espresso-bolla er neytt
daglega á Ítalíu og það er því hvorki
furða né tilviljun að Lavazza sé
mest selda kaffið þar í landi,“ bend-
ir Atli á.
Lavazza-gæðakaffi í 116 ár
Atli Hergeirsson, sölustjóri hjá Karli K. Karlssyni ehf., segir enga tilviljun að Lavazza sé mest selda kaffið á Ítalíu. MYND/STEFÁN
● Heslihnetur og súkkulaði eru sannkölluð himnasæla, eins
og þeir þekkja sem bragðað hafa á hinum ítalska eftirrétti
„panna cotta“.
Sannkölluð himnasæla
Panna Cotta með mokkabragði. Fyrir átta
625 ml þeyttur rjómi
1/3 bolli strásykur
250 g af niðurbrytjuðu suðusúkkulaði
½ bolli mjólk
2 pakkar af gelatíni (límhlaupi)
bolli af sterku kaffi
75 ml af heslihnetulíkjör
Hitið hálfan lítra af rjóma og
sykri á pönnu þar til sykurinn
leysist upp. Setjið súkkulaði í hita-
þolna skál og hellið heitri blönd-
unni yfir. Hrærið þar til súkkulað-
ið leystist upp. Geymið.
Blandið restinni af rjóma saman
við mjólk. Setjið gelatín ofan á.
Látið standa í 5 mínútur. Hellið
blöndunni á pönnu og hitið við
miðlungshita þar til gelatínið
hefur leyst upp. Hellið nú út
í súkkulaðiblöndu og hrærið
saman við. Því næst kaffi og
líkjör. Hellið 175 ml af blöndunni í
átta ábætisskálar og kælið í fjóra
til sex tíma.
Heslihnetu- og súkkulaðisætindi
½ bolli strásykur
¼ bolli heslihnetur
15 g af niðurbrytjuðu suðusúkkulaði
Hitið sykur og tvær matskeiðar af vatni í djúpri pönnu við miðlungshita. Hrærið var-
lega þar í blöndunni þar til hún verður falleg gyllt. Takið pönnuna af hellunni, bætið
heslihnetum út í og hrærið. Hellið á bökunarpappír og stráið súkkulaði yfir. Látið
kólna. Brytjið vandlega niður.
Látið heitt vatn renna á ytra lag ábætisskála til að losa um innihaldið. Hvolfið þeim
ofan á átta hliðardiska og stráið sælglætinu yfir. Berið fram.