Fréttablaðið - 19.07.2011, Blaðsíða 8
19. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR8
BRETLAND, AP David Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands, kallaði
þjóðþing landsins saman á neyðar-
fund í gær til að ræða hleranamál-
ið, sem hefur ekki aðeins grafið
undan trausti fólks á fjölmiðlaveldi
Ruperts Murdoch, sem kannski var
þó eitthvað takmarkað fyrir, held-
ur einnig til bresku lögreglunnar
og forsætisráðherrans sjálfs.
Tíu manns hafa verið handtekn-
ir vegna málsins síðan í byrjun
apríl, bæði vegna rannsóknar á
símahlerunum
blaðamanna
fjölmiðlasam-
steypunnar og
vegna rann-
sóknar á því
hvort breskir
lögreglumenn
hafi þegið fé
frá fjölmiðl-
um Murdochs
í skiptum fyrir
upplýsingar.
Tveir æðstu
yfirmenn bresku lögreglunnar,
þeir Paul Stephenson lögreglu-
stjóri og John Yates, yfirmaður
hryðjuverkadeildar lögreglunn-
ar, hafa sagt af sér í tengslum við
málið. Þeir báðir hafa verið ásak-
aðir, ásamt tveimur öðrum yfir-
mönnum lögreglunnar, um brot í
tengslum við hleranir blaðamanna
News of the World.
Stephenson er meðal annars
gagnrýndur fyrir að hafa ráðið Neil
Wallis, fyrrverandi ritstjóra News
of the World, til ráðgjafarstarfa hjá
lögreglunni og Yates fyrir að hafa
útvegað dóttur Wallis starf.
Hlutabréf í News Corp, fjölmiðla-
samsteypu Ruperts Murdoch hafa
fallið töluvert í verði vegna máls-
ins og ítök hans í stjórnmálaheim-
inum í Bretlandi hafa dvínað mjög,
að minnsta kosti tímabundið.
Rebekah Brooks, sem lengi hefur
verið hægri hönd Murdochs, var
handtekin á sunnudag en látin laus
þá um kvöldið gegn tryggingu. Hún
sagði af sér fyrir helgi sem fram-
kvæmdastjóri News International,
undirfyrirtækis News Corp, sem
gefur meðal annars út blaðið News
of the World.
Hún á að mæta í dag ásamt feðg-
unum James og Rupert Murdoch
fyrir breska þingnefnd þar sem
til stendur að fara ofan í saumana
á málinu, sem hefur haft víðtæk
áhrif á bresk stjórnmál ekki síður
en fjölmiðlaheiminn.
Meðal annars sætir David Came-
ron vaxandi þrýstingi fyrir að hafa
ráðið annan fyrrverandi ritstjóra
sama blaðs, Andy Coulson, til að
vera upplýsingafulltrúi hans.
Ed Miliband, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar, segir Cameron þurfa
að svara erfiðum spurningum um
tengsl sín við Murdoch, Brooks og
Coulson.
„Sem stendur virðist hann ófær
um að veita þá stjórnarforystu
sem landið þarfnast,“ segir Mili-
band, sem er leiðtogi Verkamanna-
flokksins. gudsteinn@frettabladid.is
Fjölmiðlaveldi í uppnámi
1 Hvaða tæknifyrirtæki berjast um
yfirráð í netheimum?
2 Hvaða kvennalandslið varð
heimsmeistari í fótbolta?
3 Hvaða rithöfundur opnar kaffi-
hús á Snæfellsnesi?
SVÖR:
1. Facebook og google. 2. Japanska liðið.
3. Ólafur Haukur Símonarson.
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Fyrir börn frá 6 mánaða - 5 ára
Hægt að leggja saman og taka með
Verð frá
16.900
©GRAPHIC NEWS
Fyrirtæki Ruperts Murdoch
Árstekjur News Corp
(frá júlí 2009 til júní 2010)
Hagnaður/tap
3.900 ma kr.
395 ma kr.
Kvikmyndaiðnaður
Twentieth Century Fox
Fox 2000 Pictures
Fox Music
Blue Sky Studios
904 ma kr.
155 ma kr.
179 ma kr.
(68 ma kr.)
Annað
143 ma kr.
(18 ma kr.)
Markaðs-
þjónusta
155 ma kr.
10 ma kr.
Bókaútgáfa
Harper Collins
452 ma kr.
27 ma kr.
Gervihnattasjónvarp
Sky Italia,
BSkyB (39%)
500 ma kr.
26 ma kr.
Sjónvarpsstöðvar
FOX Broadcasting Company,
MyNetworkTV, FOXSports.com,
Fox Television Stations (27)
726 ma kr.
63 ma kr.
Dagblöð,
fréttaþjónusta
The Wall Street Journal,
Dow Jones Newswires,
Factiva
833 ma kr.
273 ma kr.
Kapalsjónvarp
Fox News Channel,
Fox Business Network,
National Geographic
HEIMILD: ÁRSSKÝRSLA NEWS CORP LJÓSMYND: GETTY IMAGES
Handtökur í Bretlandi tengdar Murdoch
Rannsóknir á símhlerunum og mútugreiðslum frá
News of the World til lögreglunnar grafa undan fleiru
en fjölmiðlaveldi Murdochs. Tveir af æðstu yfir-
mönnum lögreglunnar hafa sagt af sér vegna málsins.
Vaxandi þrýstingur er einnig á David Cameron for-
sætisráðherra. Bresk þingnefnd fer yfir málið í dag.
Fimm manns hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn
á meintum símhlerunum:
5. apríl, 2011: Ian Edmondson, fyrrverandi aðstoðarfréttarit-
stjóri News of the World
5. apríl: Neville Thurlbeck, blaðamaður á News of the World
14. apríl: James Weatherup, aðstoðarfréttaritstjóri News of
the World
23. júní: Terenia Taras, blaðamaður í lausamennsku
28. júní: Laura Elston, konunglegur fréttaritari fréttastofunnar
BPA
Fimm manns að auki hafa verið handteknir í tengslum bæði
við rannsókn á meintum símhlerunum og í tengslum við
rannsókn á ólöglegum greiðslum til lögreglumanna í skiptum
fyrir upplýsingar:
8. Júlí: Clive Goodman, fyrrverandi ritstjóri konungs-
fjölskyldu frétta hjá News of the World, áður handtekinn í
janúar 2007
8. júlí: Andy Coulson, fyrrverandi ritstjóri News of the World
og fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi hjá James Cameron forsætis-
ráðherra
8. júlí: 63 ára maður, ónefndur
14. júlí: Neil Wallis, fyrrverandi aðalritstjóri News of the
World
17. júlí: Rebekah Brooks, framkvæmdastjóri News Inter-
national og fyrrverandi ritstjóri News of the World
TÚNIS, AP Fjórtán ára drengur var
skotinn til bana í hörðum mót-
mælum í Túnis í gær. Stjórnvöld
segja að hann hafi orðið fyrir
slysaskoti.
Mótmælendur hentu grjóti og
bensínsprengjum að öryggislög-
reglu í bænum Sisi Bouzid, þar
sem uppreisn gegn stjórnvöldum
hófst fyrr á árinu. Lögregla svar-
aði með því að skjóta út í loftið,
en talið er að drengurinn hafi
orðið fyrir skoti frá lögreglunni.
Óttast er að atburðir gærdags-
ins geti haft áhrif á kosningar
sem fram eiga að fara í landinu
þann 23. október. Þar er ætlun-
in að kjósa ráð til að endurskoða
stjórnarskrá landsins. - bj
Mótmæli brutust út í Túnis:
14 ára drengur
skotinn til bana
Níu ný hjúkrunarrými
Stjórn hjúkrunar- og dvalarheimilisins
Höfða á Akranesi hefur ákveðið
að taka 152 milljóna króna tilboði
lægstbjóðand í byggingu níu nýrra
hjúkrunarrýma. Alls bárust sex tilboð.
Kostnaðaráætlun var 204 milljónir.
AKRANES
ÞÝSKALAND, AP Saksóknari í Þýska-
landi rannsakar nú hvort dæmdur
fangavörður nasista í síðari heims-
styrjöldinni hafi átt þátt í dauða
4.400 manna í Flossenbuerg-fanga-
búðunum í Þýskalandi.
John Demjanjuk var í maí sak-
felldur fyrir hlutdeild í morðum á
28.060 mönnum í Sobibor, útrým-
ingarbúðum nasista í Póllandi.
Demjanjuk, sem er 91 árs gam-
all, var fangavörður í Sobibor og
Flossenbuerg. Hann hefur áfrýjað
fimm ára fangelsisdómi og geng-
ur laus þar til dómur fellur á æðra
dómsstigi.
Dómurinn yfir Demjanjuk mark-
aði tímamót því þar var fangavörð-
ur sakfelldur fyrir óhæfuverk sem
áttu sér stað í útrýmingarbúðum
án þess að sannað þætti að hann
hefði sjálfur beinlínis myrt fólk.
Fangabúðirnar í Flossenbuerg
voru ekki útrýmingarbúðir, en
þar létust engu að síður þúsundir
manna.
Demjanjuk fæddist í Úkraínu og
þjónaði í sovéska hernum. Eftir að
hann var handsamaður af þýska
hernum árið 1942 gekk hann til
liðs við nasista og gerðist fanga-
vörður. - bj
Saksóknari hefur á ný rannsókn á stríðsglæpum dæmds fangavarðar nasista:
Sakaður um 4.400 morð til viðbótar
LAUS John Demjanjuk er 91 árs og býr á
hjúkrunarheimili í Þýskalandi á meðan
hann bíður þess að áfrýjunardómstóll
taki mál hans fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REBEKAH BROOKS
DÝRALÍF Dýraverndunarsamband
Íslands leggst eindregið gegn
áformum áhugahóps Vestfirð-
inga um að flytja hreindýr til
Vestfjarða. Fréttablaðið greindi
frá því í síðustu viku að hópur-
inn væri að kanna möguleika á að
flytja tuttugu til fimmtíu hrein-
dýr vestur en yfirdýralæknir er
einnig mótfallinn þeim áformum,
sérstaklega vegna hugsanlegrar
hættu á að þau beri smit í sauðfé.
Í tilkynningu sem Dýravernd-
arsambandið sendir frá sér í kjöl-
far þessarar umfjöllunar segir:
„Þar er ekki hentugt haglendi
fyrir slík dýr sem ætlað er að lifa
á algerum útigangi og hvergi er
þar að finna kjörlendi sambæri-
legt því sem hreindýr á Austur-
landi njóta. Einnig er bent á að
veðurfar þar vestra hentar hrein-
dýrum ekki og ljóst er að velferð-
ar dýranna yrði ekki gætt við þær
aðstæður sem þar ríkja.“
Magnús Ólafs Hansson, sem fer
fyrir hópi Vestfirðinganna, segir
að málið sé á rannsóknarstigi og
ef í ljós komi að betur sé heima
setið en af stað farið með þetta
verkefni muni hópurinn láta af
þessum hugmyndum.
Hann segir enn fremur að hóp-
urinn hafi fengið álit hjá sænska
yfirdýralæknisembættinu og þar
segir að hreindýr geti ekki smitað
sauðfé af riðu eða garnaveiki.
- jse
Dýraverndunarsamband Íslands er mótfallið hugmyndum um flutning hreindýra:
Vilja ekki hreindýrin vestur
HREINDÝR FYRIR AUSTAN Dýravernd-
unarsamband Íslands telur Vestfirði ekki
vel tilfallna fyrir hreindýr og leggst ein-
dregið gegn hugmyndum um að flytja
þau þangað. MYND/VILHELM
HEILBRIGÐISMÁL Frárennslisvatn
frá rækjuverksmiðjunni Kampa á
Ísafirði flæddi upp um holræsi í
gær. Megn lykt var af vatninu.
Lögnum var breytt í vor og
síðan þá hefur þrisvar sinnum
flætt upp úr holræsum sam-
kvæmt vefnum bb.is. Síðast þegar
flæddi með þessum hætti fór
frárennslisvatn í kjallara í nær-
liggjandi húsum. Bæjarverkstjóri
telur að mynda þurfi lögnina sem
sé líklega alltaf að stíflast, en
það verður ekki gert strax vegna
sumarleyfa og kostnaðar. - þeb
Ólykt í nærliggjandi götum:
Rækjuskólp
flæðir á Ísafirði
VEISTU SVARIÐ?