Fréttablaðið - 19.07.2011, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGGluggar ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 20112
GLUGGAÞVOTTUR
Á vefsíðunni allir.is eru eftirfarandi leiðbeiningar
um gluggaþvott. Fáið ykkur gluggasköfu, tusku
og setjið sítrónuuppþvottalög í heitt vatn í
fötu. Byrjið að þvo yfir gluggann með blautri
tuskunni, rennið svo sköfunni yfir; byrjið efst í
vinstra horni með sköfuna í lóðréttri stöðu efst
upp við vinstri gluggakarminn. Dragið sköfuna
þvert yfir gluggann, rennið síðan efri brúninni á
sköfunni niður með hægri gluggakarmi og farið til
baka. Endurtakið þetta. Farið á þennan hátt niður
gluggann án þess að lyfta upp sköfunni. Það er til
að losna við rákir og dropa. Rennið loks tuskunni eftir
gluggakistunni til að þrífa vökvann neðst.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is s. 512 5447.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Okkar sérstaða felst meðal annars í því að við getum boðið upp á tvöfaldar þétt-
ingar í fögum ef fólk vill það. Víða
veitir ekkert af því í okkar landi.
Einnig framleiðum við hljóðein-
angraðar hurðir sem þola betur
vindþrýsting og veðurálag en al-
mennt gerist,“ segir Jónas Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Glugga- og
hurðasmiðju SB sem sérhæfir sig í
timburgluggum og hurðum. Fyrir-
tækið hefur þróað vöru sína að við-
urkenndum stöðlum um smíði húsa
við íslenskar aðstæður. „Við fram-
leiðum eftir pöntunum fyrir ein-
staklinga, byggingariðnaðinn, rík-
isstofnanir og sveitarfélög – já bara
hvern sem er,“ segir Jónas.
Glugga- og hurðasmiðja SB er
rótgróið fyrirtæki, stofnað þjóð-
hátíðarárið 1974 af Sigurði Bjarna-
syni, föður Jónasar. „SB í fyrirtækis-
nafninu stendur fyrir Siggi Bjarna,“
segir Jónas. Hann upplýsir að starfs-
menn séu tíu nú um stundir. „Verk-
efnin undanfarin misseri hafa
aðallega snúist um endurnýjun
hurða og glugga en það hefur verið
rólegt í nýsmíðinni síðan hrunið
varð haustið 2008,“ segir hann.
Spurður hvort fyrirtækið hafi
ekkert snúið sér að öðrum smíðum
í kreppunni, svarar Jónas ákveð-
inn. „Nei, við kunnum þetta og þess
vegna ætlum við að halda okkur við
það. Erum mjög vel vélvæddir fyrir
okkar framleiðslu, með nýlegar,
tölvustýrðar vélar og allt frá stofn-
un fyrirtækisins hefur megináhersla
verið lögð á fagleg vinnubrögð og
vöruvöndun.“
Vara sem stenst veðurálag
Íslenskt veðurfar krefst óvenju vandaðra hurða og glugga. Það eru starfsmenn Glugga- og
hurðasmiðju SB við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði með á hreinu. Þeir framleiða vöru sem
hentar vel áveðurs.
„Við erum mjög vel vélvæddir fyrir okkar framleiðslu,“ segir Jónas Sigurðsson framkvæmdastjóri. MYND/HAG
Faris ehf. Gylfaflöt 16-18 112
Reykjavík s: 5710910 www.faris.is
HVALEYRARBRAUT 39 • 220 HAFNARFJÖRÐUR • SÍMI 565 4151
Faris ehf. flytur inn Velfac-glugga frá Danmörku. Hver gluggi er sérsmíðaður og hentar því bæði í nýbyggingar og eldri hús. Þá er mikið um að fólk
skipti pöntun í tvær til þrjár afhendingar til að skipta
kostnaði eftir framkvæmdahraða.
„Um er að ræða svo til viðhaldsfría ál/tréglugga sem
eru málaðir eftir óskum kaupenda. Höfuðáhersla Velfac
er á að hámarka ljósopið og skila sem mestri birtu inn
í húsið,“ segir Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri
Faris. Ýmsar samsetningar eru fyrir hendi og opnan-
legar lausnir margar, en enginn munur er á opnanleg-
um gluggum, svalahurðum og rennihurðum sem gefur
fallegan heildarsvip. Sigurður segir Velfac leiðandi í
gluggahönnun. Það hefur hlotið fjölda viðurkenninga
og vinnur mikið með tækniskólum og hönnuðum.
Sigurður segir nýja útgáfu, Velfac Helo, væntanlega
á næstu vikum. Hún gefur arkitektum nýja val-
kosti í hönnun. Hún er framleidd úr koltrefjum og
kemur í enn stærri einingum en fyrir eru. „Þessi
útgáfa mun því henta vel í margar nýbygging-
ar og er auðvelt að púsla henni saman við eldri
gerðir af Velfac-gluggum enda er sama kerfi á þeim
öllum.”
Sigurður segir Velfac góðan kost f y rir þá
sem v i lja sk ipta út g lugg um f y rir ný ja og
er u for m og út l it smög u lei k a r óþr jót a nd i.
Gluggarnir eru allir með 24 millimetra gleri sem upp-
fyllir byggingarreglugerðir og gott betur og standast auk
þess innbrots- og öryggisprófanir með prýði. Sigurður
segir Velfac-glugga á hverju strái í nýjum hverfum.
Þá er auk þess víða að finna í háhýsum, stofnana- og
skólabyggingum.
Hámarks ljósop og birta
Faris ehf. selur Velfac-glugga sem hámarka ljósop og skila sem mestri birtu inn í híbýli.
Gluggarnir, sem eru úr tré, eru klæddir með áli. MYND/HAG