Fréttablaðið - 09.08.2011, Side 14
9. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Garðar Aðalsteinsson
Brekkugötu 38, Akureyri,
sem andaðist aðfaranótt föstudagsins 29. júlí, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
11. ágúst kl. 13.30.
Alda Þorgrímsdóttir
Ómar Garðarsson Rannveig Benediktsdóttir
Smári Garðarsson
Páll S. Garðarsson Sigurður Ö. Guðbjörnsson
Eydís Garðarsdóttir Bjarni Einarsson
Viðar Garðarsson Sigríður Á. Viðarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma
og tengdamamma,
Magnea Guðný
Stefánsdóttir
Bragavöllum 4, 230 Reykjanesbæ,
lést fimmtudaginn 4. ágúst sl. Útför fer fram frá
Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
Þorsteinn Ívar Sæmundsson
Dagný Gísladóttir Eysteinn Eyjólfsson
Stefán Magnús Jónsson Ester Sigurjónsdóttir
Hildur Björg Jónsdóttir Rúnar Eyberg Árnason
Sigursteinn Þorsteinsson
Helma Þorsteinsdóttir Erlingur Reyr Klemenzson
ömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Óskar Ágústsson
íþróttakennari á Laugum, Suður-
Þingeyjarsýslu,
andaðist miðvikudaginn 27. júlí sl. Útförin fer fram í
dag, þriðjudaginn 9. ágúst, í Hallgrímskirkju kl. 13.00.
Elín Friðriksdóttir
Ágúst Óskarsson Helga Sigurðardóttir
Hermann Óskarsson Karín M. Sveinbjörnsdóttir
Knútur Óskarsson Guðný Jónsdóttir
Una María Óskarsdóttir Helgi Birgisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir okkar,
Halldóra Sigurðardóttir
lögfræðingur
Flyðrugranda 8, Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
5. ágúst síðastliðinn.
Hulda Pétursdóttir
Þórdís Sigurðardóttir
Ólafur Jens Sigurðsson
Ingibjörg S. Kolbeins
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Steinar Guðmundsson
Lindargötu 57, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn
11. ágúst kl. 15. Blóm og kransar afþökkuð, en
þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á
Minningarsjóð Grundar, dvalar- og hjúkrunarheimilis,
s: 530 6100.
Anna Steinarsdóttir Gísli Ársæll Snorrason
Magnús Steinarsson Eygló Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Ragnhildur Richter
Bústaðavegi 79,
lést föstudaginn 5. ágúst á Dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Grund. Útförin verður gerð frá
Fossvogskirkju föstudaginn 12. ágúst kl. 11.00.
Kristján, Þórdís, Ingibjörg, Ragnhildur og María Richter
og fjölskyldur.
Eiginmaður minn, faðir og fósturfaðir,
Kristinn S. Daníelsson
vélvirki, Klettagötu 2, Hafnarfirði,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
miðvikudaginn 3. ágúst. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 12. ágúst kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem
vilja minnast hans eru beðnir um að láta líknarfélög
njóta þess.
Áslaug Hafsteinsdóttir
Steingrímur Kristinsson
Aðalsteinn Jörgensen
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Ingvarsdóttir
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn
4. ágúst. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 16. ágúst kl. 15.30.
Egill Rúnar Friðleifsson Sigríður Björnsdóttir
Erla Friðleifsdóttir
Ingvar Birgir Friðleifsson Þórdís Árnadóttir
Guðmundur Ómar Friðleifsson Sigrún Jakobsdóttir
Þóra Lovísa Friðleifsdóttir Hallur Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, amma og systir,
Þórunn H. Felixdóttir
kennari og námsráðgjafi,
lést á Landspítalanum 6. ágúst síðastliðinn. Jarðarförin
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 12. ágúst
klukkan 15.
Felix Valsson
Þórunn Helga Felixdóttir
Áslaug Felixdóttir
Bergur Felixson og Ingibjörg Guðmundsdóttir
Hjartkær frænka okkar,
Guðrún Gísladóttir
Nóatúni 29, 105 Reykjavík,
andaðist 3. ágúst á Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu
í Reykjavík (DAS). Jarðarförin fer fram frá
Háteigskirkju miðvikudaginn 10. ágúst kl. 15.00.
Fyrir hönd frændsystkina,
Lísa Guðjónsdóttir
Jóhanna Jónsdóttir
Magnús Marteinsson.
53 WHITNEY HOUSTON söngkona er 53 ára.„Þegar ég ákvað að verða söngkona varaði móðir
mín mig við því að ég yrði mikið ein. Í raun erum
við það öll, einmanaleiki er hluti af lífinu.“
Fjórir ungir frumkvöðlar hafa komið á fót saltvinnslu-
fyrirtæki á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi. Stefnan er að
setja á markað íslenskt kristalsjávarsalt í næsta mánuði.
„Við gerðum prufuframleiðslu fyrir hálfum mánuði og hún
tókst mjög vel,“ segir Garðar Stefánsson, einn eigendanna.
Að hans sögn er hugmyndin runnin undan rifjum
Yngva Eiríkssonar verkfræðings og eins af stofnendum
fyrirtækisins. „Yngvi fékk hugmyndina sumarið 2008 og
tveimur árum síðar fékk ég að nýta hana í meistaraverk-
efni mitt í nýsköpunar- og markaðsfræði,“ útskýrir Garðar.
Félagarnir fengu síðar verkfræðinemann Björn Steinar
Jónsson og hagfræðinemann Val Þráinsson til liðs við sig
og hafa þeir síðan þá unnið að því að þróa hugmyndina.
Meðal þess sem rak á fjörur félaganna voru skrif Lýðs
Björnssonar um saltverksmiðju sem var á Reykjanesi í Ísa-
fjarðardjúpi á 18. öld. Þar var jarðvarmi nýttur í fyrsta sinn
við saltgerð. „Þá ákváðum við að endurvekja saltvinnslu á
þessum stað og nýta sömu aðferð við gerð kristalsjávarsalts-
ins,“ segir Garðar og þykist viss um að Saltverk Reykjaness
sé eina saltvinnslufyrirtækið í heiminum sem noti þessa
aðferð. „Hún er sú umhverfisvænsta, því aðrir nota gas eða
brenna eldivið. Við erum allavega ekki að auka gróðurhúsa-
loftegundir,“ tekur hann fram.
Björn Steinar tekur við og lýsir framleiðslunni nánar:
„Við dælum sjó úr Ísafjarðardjúpi á pönnur sem eru hit-
aðar upp með rúmlega 90 gráðu heitu vatni. Það er notað
sem varmi til að eima niður sjóinn á pönnunum. Eftir það
þarf sjólausnin að ná ákveðnu hitastigi og saltmagnið þarf
að verða 25 til 26 prósent svo við fáum kristalla. Það getur
tekið langan tíma þar sem sjórinn í Ísafjarðardjúpi er aðeins
með 2,5 til 3 prósenta saltmagn. Loks eru saltkristallarn-
ir svo teknir úr saltlausninni og jarðvarminn nýttur til að
þurrka kristallana.“
Saltverk Reykjaness hefur þegar hlotið margvíslega
styrki, meðal annars úr Nýsköpunarsjóði námsmanna,
Rannsóknarsjóði í sjávarútvegi og frá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands. „Það, ásamt peningum sem við leggjum sjálfir í
verkefnið, ætti að tryggja framleiðslu á allt að 20 tonnum af
salti á ári en það á að anna eftirspurn á íslenskum markaði,“
segir Björn Steinar.
„Það þýðir að til að byrja með verðum við að handvinna
saltið sjálfir,“ segir Garðar. „Við ætlum að halda í þessa
gömlu aðferð og vonum að þetta verði blómlegt fyrirtæki á
Vestfjörðum í framtíðinni.“ Hægt er að fylgjast með upp-
gangi fyrirtækisins á vefsíðunni www.saltverk.tumblr.com.
hallfridur@frettabladid.is
SALTVERK REYKJANESS: ENDURVEKUR
ALDAGAMLA VINNSLUAÐFERÐ
Umhverfisvæn
saltvinnsla
FRUMKVÖÐULL Garðar Stefánsson á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi. Í
bakgrunni má sjá eitt þeirrra húsa þar sem saltvinnslan fer fram.