Fréttablaðið - 09.08.2011, Page 15
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512
Styrkir ónæmiskerfið Grænmeti af krossblómaætt, svo sem
spergilkál, blómkál, hvítkál og rófur, inniheldur mörg efnasam-
bönd sem styrkja ónæmiskerfi líkamans. Efnasambandið sul-
foraphane er talið vinna gegn krabbameinsvaldandi efnum
og stuðla að bættri almennri heilsu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Á
tta strákar úr Álfhóls-
skóla æfa saman hand-
bolta og fótbolta hjá
HK í Kópavogi. Fyrir
þremur árum fóru þeir að spila
golf og settu saman lítið golfmót í
framhaldinu.
„Þetta varð bara til upp úr
þurru,“ segir Kristleifur Þórðar-
son, einn golfspilaranna en þeir
eru allir 13 ára. „Við erum frekar
góðir,“ bætir hann við hlæjandi
þegar blaðamaður spyr hvernig
gangi og útskýrir að þeir séu
með 30 og undir í forgjöf. „Það
þykir bara gott. Mitt lið er að
vinna mótið, félagarnir spila svo
vel,“ segir hann hress, enda lék
veðrið við þá félaga á mótinu
sem haldið var í gær. Strákarnir
státa af íþróttaafrekum víðar en
á golfvellinum en fyrr í sumar
unnu Kristleifur og félagar
hans í handboltanum gullverð-
laun á Partille-mótinu í Svíþjóð í
drengjaflokki 13 ára og yngri.
„Það var rosalegt. Það gekk
allt upp hjá okkur og allir spiluðu
eins vel og þeir gátu. Við vorum
búnir að æfa aðeins en ekki
mikið. Kannski er bara best að
þekkja andstæðinginn ekkert
rosalega vel,“ segir hann og hlær
en strákarnir mættu yfirvegaðir
í úrslitaleikinn gegn IFK Kristi-
anstad frá Svíþjóð. Leikurinn fór
19-9 HK í vil.
Spurður hvaða íþrótt honum
líki best segir Kristleifur erfitt
að gera upp á milli. „Ætli það sé
ekki handboltinn, golfið er bara
auka.“ heida@frettabladid.is
Átta strákar úr HK spila á eigin golfmóti og unnu gull í handbolta á Partille-mótinu í sumar.
Erum frekar góðir
KRÓKA-
BUXURNAR í
S,M,L,XL,2X á
kr. 4.880,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18.
Lokað á laugardögum í sumar.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
L O K S I N S K O M N A R A F T U R