Fréttablaðið - 09.08.2011, Síða 16
9. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
BANDARÍSKIR VÍSINDAMENN SEGJAST
HAFA GERBREYTT SKILNINGI Á ERFÐA-
FRÆÐI SJÚKDÓMSINS GEÐKLOFA. GENIN
SPILI AÐALHLUTVERK ÞÓ SJÚKDÓMUR-
INN HAFI EKKI ERFST.
Vísindamenn segja að finna megi
„nýja stökkbreytingu“ í DNA í að
minnsta kosti helmingi sjúkdómstil-
fella af geðklofa þar sem engin saga er
um sjúkdóminn í fjölskyldu sjúklings.
Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Vísindamenn greindu erfðalykil 225
manna sem ýmist voru með sjúkdóm-
inn eða ekki og fundu stökkbreytingu
í 40 mismunandi genum sem tengjast geðklofa. Þetta segja þeir útskýra hátt
hlutfall sjúkdómstilfella um allan heim. Nánar á www.bbc.co.uk.
Gen spila stærra hlutverk en áður var talið
Vísindamenn hafa fundið nýja stökk-
breytingu í genum sem tengist geð-
klofa.
Á heitum sumardögum er mikilvægt að ofþorna ekki
og drekka meira en vanalega. Hafið því vatnsbrúsa ávallt
meðferðis og dragið úr neyslu koffíndrykkja. Þá eru
vatnsríkir ávextir og grænmeti besti millibitinn.
Milljónir gætu sparast í gjald-
eyri á ári hverju þegar fyrsti
íslenski hjólastóllinn lítur dagsins
ljós en hjólastólar hafa hingað til
verið keyptir erlendis frá. Unnið
er að þróun, hönnun og fram-
leiðslu fyrsta íslenska hjólastóls-
ins hjá Þresti Marsellíussyni ehf.
á Ísafirði. Verkefnið fékk styrk
frá iðnaðarráðuneytinu í vor úr
verkefninu Atvinnusköpun í sjáv-
arbyggðum.
Jón Páll Hreinsson rekstrarráð-
gjafi er inntur eftir því hvernig
hugmyndin að verkefninu sé til-
komin. „Við duttum niður á þá
staðreynd að íslenska ríkið væri
að kaupa hjólastóla fyrir milljónir
á ári hverju. Það er flókið að kom-
ast að niðurstöðu um hversu marg-
ar milljónir það eru en við höfum
gengið út frá hundrað milljónum.“
Jóhann Bæring Gunnarsson
véliðn- og vél-
fræðingur hefur
unnið frum-
teikningar að
hjólastólnum.
„Jóhann Bæring
kom með þessa
hugmynd til mín
því ég hef verið í
nýsköpunargeir-
anum,“ segir Jón
Páll og bætir við að hjólastóllinn
verði sérhannaður fyrir íslenskar
aðstæður. „Þegar verið er að fram-
leiða hjólastóla er rík krafa um
það að þeir verða að þola ákveðið
hnjask og þeir þurfa að fara í gegn-
um árekstrarprófun. Þess vegna
erum við með mjög góða samstarfs-
aðila með okkur, tækniþróunarsvið
Nýsköpunarmiðstöðvar og Rann-
sóknarstofu í hreyfivísindum við
Háskóla Íslands. Þar er fagfólk.“
Jón Páll segir að verkefnið sé
sprottið úr því nýsköpunarum-
hverfi sem hefur orðið til á Ísa-
firði undanfarin tíu ár. „Við ætlum
okkur að styrkja þennan iðnaðar-
klasa sem hefur verið að þróast
hérna. Hægt og rólega hefur verið
að byggjast upp iðnaðarfyrirtæki
hérna á Ísafirði.“
Kaup ríkisins á hjólastólum eru
boðin út að sögn Jóns Páls. Stefnt
er að því að Þröstur Marsellíus-
son með nýja íslenska hjólastól-
inn taki þátt í útboðinu á næsta
ári. „Við stefnum á að vera tilbú-
in með eina gerð hjólastóls þá. Við
ætlum okkur að vera með margar
gerðir en hjólastólar eru mikið til
sérsmíðaðir eftir þörfum hvers
og eins. Hugmyndin byggir á því
að við munum geta sérsmíðað og
aðlagað stólana að hverjum og
einum.“ martaf@frettabladid.is
Hanna íslenskan hjólastól
Unnið er að hönnun og framleiðslu fyrsta íslenska hjólastólsins á Ísafirði. Stefnt er að því að hjólastóll-
inn líti dagsins ljós á næsta ári en milljónir gætu sparast í gjaldeyri á ári hverju í framhaldinu.
Jón Páll segir að verkefnið sé sprottið úr því nýsköpunarumhverfi sem hefur orðið til á Ísafirði undanfarin tíu ár. MYND/ÁGÚST ATLASON
Jón Páll Hreinsson
ÍSLENSKT
HUNDANAMMI
Fæst í Bónus, Samkaup,
10-11, Fjarðarkaup og Inspired
Keflavíkurflugvelli
gott í þjálfun og í leik
VINSÆLVARA
ÚTSALA
25-60% afsláttur
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.