Fréttablaðið - 09.08.2011, Page 17
Kynningarblað Símenntun, námskeið,
framhaldsnám, snyrting, háskólar, menntaskólar
SKÓLAR
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
& NÁMSKEIÐ
Menntaskólinn Hraðbraut
hefur nú sitt níunda
starfsár í hvetjandi
námsumhverfi. Þar eru
þarfir nemenda alltaf í
fyrsta sæti.
Fjög urra ára framhalds-skóli er tímaskekkja, tíma-eyðsla og gríðarleg sólundun
á almannafé,“ segir Ólafur Hauk-
ur Johnson skólastjóri Menntaskól-
ans Hraðbrautar, þar sem nemendur
ljúka stúdentsprófi á tveimur árum í
stað fjögurra.
„Í menntakerfinu ríkir agaleysi
á meðan námstími íslenskra fram-
haldsskólanema er að meðaltali
fimm og hálft ár. Það er miklu hag-
kvæmara fyrir þjóðina að fram-
haldsskólanemendur ljúki stúd-
entsprófi á skemmri tíma og lykil-
atriði fyrir þjóðarbúið að fá fólkið
sem fyrst út í atvinnulífið sem vel
menntaða og tekjuháa skattgreið-
endur. Á þeim tveimur árum sem
einstaklingar úr Hraðbraut eru
lengur á vinnumarkaði aukast
ævitekjur þeirra til mikilla muna.
Skattgreiðsla á starfsævinni vex
um mun hærri upphæð en sem
nemur þátttöku ríkisins í mennt-
un þeirra í framhaldsskóla,“ segir
Ólafur.
Hugmyndin að Hraðbraut varð
til við rekstur sumarskóla sem
byggði á hliðstæðu lotukerfi þar
sem kennt var í fjórar vikur og
tekin próf í þeirri fimmtu. Í Hrað-
braut fá nemendur sem standast
próf frí í sjöttu viku hverrar lotu.
„Í sumarskólanum sá ég fljótt að
lotukerfið hentar mörgum betur en
hefðbundnar annir þar sem kennd-
ar eru sjö til átta námsgreinar á
tólf vikum. Það hefur svo sýnt sig
að engin stór vandamál fylgja því
að fara yfir námsefni á svo stuttum
tíma. Nemendur segja að það sé
einfaldara að læra þrjár náms-
greinar í skamman tíma, í stað
sjö til átta á lengri tíma,“ segir
Ólafur um nemendur Hraðbrautar
sem eiga það sameiginlegt að vera
vinnusamir og einbeittir í að ljúka
stúdentsprófi á tveimur árum.
„Meginverkefni Hraðbrautar er
að búa nemendur undir háskóla-
nám. Hér bjóðast því ekki dæmi-
gerðar vinnumarkaðsbrautir, held-
ur eingöngu bóknámsbrautir sem
búa fólk sem allra best undir há-
skólanám,“ segir Ólafur sem frá
stofnun Hraðbrautar hefur útskrif-
að á fimmta hundrað stúdenta sem
flestir hafa farið beint í háskóla-
nám, frá 17 til 18 ára að aldri.
„Átján ára aldurinn er góður
aldur til að hefja háskólanám og
tíðkast í flestum löndum nema á
Íslandi. Það er engin ástæða til
að ætla íslenskum ungmennum að
vera eftirbátar jafnaldra sinna ann-
ars staðar í heiminum, enda víst að
aðrar þjóðir setja ekki vangetandi
einstaklinga í háskólanám,“ segir
Ólafur sem gerir reglulega kann-
anir á árangri útskrifaðra nem-
enda sinna í háskólanámi og er
árangurinn góður.
„Við kennum á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum.
Á þriðjudögum og fimmtudög-
um vinna nemendur „heimavinn-
una“ í skólanum. Það kennir þeim
öguð og góð vinnubrögð fyrir há-
skólastigið og gerir að verkum að
hér koma nemendur síður ólærðir
í tíma en í öðrum framhaldsskól-
um. Nemendum er haldið stíft við
efnið með alls konar verkefnavinnu
og skyndiprófum, og unnið að því
öllum árum að láta þá vinna vel allt
skólaárið í stað þess að önnin endi í
mikilli vinnulotu í mörgum náms-
greinum samtímis, eins og gerist í
venjulegum framhaldsskólum og
er ekki eins vænlegt til árangurs,“
segir Ólafur.
Hraðbraut nýtur sem fyrr mik-
illa vinsælda og í ár sóttu 140 nem-
endur um 60 pláss.
„Við tökum alla umsækjend-
ur í viðtöl til að ganga úr skugga
um að þeir eigi erindi í skólann, en
í framkvæmd fær minna en helm-
ingur þeirra inni í skólanum,“ segir
Ólafur.
„Stundum er talað um mennta-
skólaárin sem yndislegasta tíma
ævinnar, en áður en ég fór af stað
með Hraðbraut gerði ég umfangs-
miklar kannanir meðal framhalds-
skólanema. Þar sýndi sig að flest-
ir voru búnir að fá nóg og leiddist
mjög á fjórða árinu. Staðreyndin er
því sú að mest er gaman fyrst og
ljóst að í menntaskólanámi er klár-
lega einu til tveimur árum ofaukið.“
Tveggja ára forskot út í lífið
Ólafur Haukur Johnson skólastjóri segir mannleg samskipti hátt metin á vinnumarkaði
og að þátttaka í félagslífi sé nauðsynleg til að halda tengslum. Nemendafélagið Auto-
bahn stendur fyrir öflugu félagslífi innan Hraðbrautar. MYND/VALLI
FRAMÚRSKARANDI
MENNTASKÓLI
„Hraðbraut býr yfir öllum
þeim eiginleikum sem þarf til að
gera skóla framúrskarandi. Eftir
tveggja ára
mennta-
skólanám
fór ég beint
í verkfræði-
nám við
Háskólann
í Reykjavík.
Þar var
ég að minnsta kosti jafnvígur
nemendum sem þangað komu
úr öðrum skólum. Ég tel skólann
vera mikilvægt innlegg í það
persónumiðaða nám sem er að
ryðja sér braut hérlendis, því
hann skapar ögrandi vettvang
fyrir þá sem eiga auðvelt með
að læra.“
Steindór Hjartarson, 22 ára
meistaranemi í orkuverkfræði
við Reykjavik Energy Graduate
School of Sustainable Systems.
DUGLEGIR OG SAM
VISKUSAMIR
„Menntaskólinn Hraðbraut
er lítill og persónulegur skóli
þar sem allir eru mjög nánir.
Nemendur eiga að taka ábyrgð
á eigin námi,
en kenn-
urum er alls
ekki sama
um þá. Dyr
þeirra eru
alltaf opnar
og engin
vandamál
eru of stór eða of lítil til að
leysa. Áhersla er líka lögð á að
nemendur hjálpist að og vinni
saman. Andinn er léttur og
skemmtilegur, en miklar kröfur
eru gerðar til nemenda. Þeir
verða því að vera duglegir og
samviskusamir.“
Stefán Björnsson, 19 ára
nemandi á 2. ári í læknisfræði
við Háskóla Íslands.
Viltu koma í frábæran skóla?
Kennsla hefst í Menntaskólanum Hraðbraut 15. ágúst nk.
Venjulega losna þá nokkur pláss í skólanum. Ef þú hefur áhuga
á að koma í krefjandi nám í persónulegum skóla, þar sem
nemendur ljúka stúdentsprófi á tveimur árum, skaltu hafa
strax samband við skólann.