Fréttablaðið - 09.08.2011, Síða 18
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 20112
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
s. 512 5462 og Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is s. 512 5432.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
SKELFILEG SKÓLAGJÖLD
Menntastofnanir í Bretlandi óttast nú að
fjöldi nemenda sem ætla sér í grunn-
nám í háskólum muni lækka um allt að
fimmtung, samkvæmt frétt í dagblaðinu
Telegraph. Ástæðan er sú að skólagjöld
munu hækka upp í allt að 9.000 pund fyrir
árið, það eru um 1,7 milljónir íslenskra.
Skólarnir vonast til að brúa fjárhagsleg
göt með því að laða til sín útlendinga.
Nemendur frá löndum utan Evrópusam-
bandsins eru rukkaðir um allt að 26.000
pund fyrir skólaárið, sem eru um fimm
milljónir íslenskra.
Frá árinu 2012 mun breska ríkið hætta
nær öllum niðurgreiðslum á námskeiðum í háskólum og skólagjöldin
hækka sem því nemur. Nemendum bjóðast námslán frá ríkinu og verða
afborganirnar launatengdar.
Rúmlega helmingur breskra háskóla býst við minnkandi eftirspurn og
andstæðingar breytinganna segja að margur hæfileikaríkur nemandinn
muni fara forgörðum.
Hotel and Tourism Management Studies
Iceland/Switzerland
Nánari upplýsingar eru veittar hjá:
Árni Valur Sólonsson, Sími: 896-2204 eða
Baldur Sæmundsson, Sími: 594-4000
The Passport to your future!
Fyrsta ár: Joint Certificate programme
Hospitality and Culinary School of Iceland
Annað & þriðja ár : Bachelor of International Business
University Centre "César Ritz" in Switzerland
Skólinn hefst á eftirfarandi dags.
Fyrsta ár: 29. águst 2011
Umsóknarfrestur er til 19. ágúst
Hótel og Veitingaskóli Íslands
Menntaskólanum í Kópavogi
Merkja umsókn B/t. Baldur Sæmundsson
www.cesa
rritz.is
Hospitality and Culinary
School of Iceland
LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ
Breski hugmyndabankinn
CentreForum hefur skilað af sér
skýrslu þar sem lagt er til að foreldr-
ar nýti sér svokallaða „fimm sinnum
á dag“ nálgun í uppeldi barna
sinna. Þannig geti þeir hjálpað
börnum sínum við að ná sem
mestum árangri í lífinu. Frá þessu
greinir á fréttavef BBC. Í skýrslunni
er áréttað að lengi búi að fyrstu
gerð. Þannig hafi gott uppeldi strax
á fyrstu árum barnsins mun meiri
áhrif en stuðningur seinna þegar kemur á skólaárin. Þau uppeldisatriði
sem talin eru hafa góð áhrif eru eftirfarandi:
Fimm sinnum á dag:
Lestu fyrir barnið þitt í 15 mínútur
Leiktu við barnið þitt á gólfinu í 10 mínútur
Talaðu við barnið þitt í 20 mínútur og hafðu slökkt á sjónvarpinu á meðan
Tileinkaðu þér jákvætt viðmót og hrósaðu oft
Gefðu barni þínu næringu sem hjálpar þroska þess.
ÁSTIR Í NÚTÍÐ OG FORTÍÐ
Háskólalestin verður í Bolungarvík laugardaginn 13. ágúst. Dagskráin
verður í félagsheimili bæjarins og Tónlistar-
skólanum frá 12 til 16. Sprengjugengið
verður á ferð en auk annarra dagskrár-
liða má nefna eldorgel, stjörnutjald,
furðuspegla, ástarsögur og kröftugar
sýnitilraunir.
Þá verða í félagsheimilinu marg-
vísleg fræðsluerindi um hitt og þetta
er snertir ástir í nútíð og fortíð, á jörðu,
himni og hafi.
Nánari upplýsingar má nálgast á www.hi.is
Í nýrri úttekt á hundrað bestu háskólum heims á sviði félags-vísinda vermir Harvard-há-
skóli fyrsta sæti í átta af tíu fögum
sem rannsökuð voru. Niðurstöður
rannsóknarinnar byggja á spurn-
ingum sem beint var til vinnuveit-
enda á alheimsvísu og þeir beðnir
um að meta gæði starfsfólks eftir
því hvar það fékk menntun sína.
Stanford-háskóli var sá eini sem
gat skákað Harvard en það var á
sviði tölfræði og aðgerðagrein-
ingar. Annars var Harvard efstur
á sviði bókhalds, fjármála, hag-
fræði, hagmælinga, laga, stjórn-
mála, alþjóðasamskipta og félags-
fræði.
Á topp tíu listanum er nær ein-
göngu að sjá háskóla í Bandaríkj-
unum og Bretlandi. Þó eru þar
Háskóli Ástralíu og Melbourne-
háskóli, Háskóli Singapore og
Toronto-háskóli, en þeir kom-
ast á topp tíu á sviði tölfræði og
aðgerðagreiningar.
Þeir háskólar sem raða sér að
mestu leyti í efstu sætin eru Ox-
ford-háskóli, Cambridge-háskóli,
Stanford-háskóli, Hagfræði- og
stjórnmálaháskóli Lúndúnaborg-
ar, Berkeley-háskóli í Kaliforníu,
Yale-háskóli, Princeton-háskóli,
MIT og Háskólinn í Chicago.
Harvard er óumdeildur sigur-
vegari þessarar úttektar. Ekki er
langt síðan hann mældist besti
háskólinn á sviði líffræði og var
metinn sá háskóli sem hefur besta
orðsporið.
Háskólar á Íslandi hafa ekki
komist inn á þessa lista enda er
við ramman reip að draga. Nú
eru hins vegar liðin fimm ár síðan
rektor Háskóla Íslands setti sér
það markmið að koma skólan-
um á þennan lista og forvitnilegt
verður að sjá hvort hann muni á
endanum ná inn.
Aðeins fáeinir skólar á Norður-
löndum komust inn á þennan lista
og eru þeir allir í sætum frá 45-
100. Þetta eru Kaupmannahafn-
arháskóli, Háskólinn í Lundi, Há-
skólinn í Bergen, Háskólinn í Ár-
ósum, Háskólinn í Stokkhólmi og
Háskólinn í Helsinki.
Könnunin var framkvæmd af
QS World University Rankings
sem sérhæfir sig í að meta gæði
háskóla. Samkvæmt skrá þess
sama fyrirtækis yfir 600 bestu há-
skóla ársins 2010 í heiminum var
íslenska háskóla hvergi að finna
en mögulegt er að finna íslenska
háskóla á topp 1000.
Harvard hefur vinninginn
Harvard-háskóli ber af öðrum skólum á sviði félagsvísinda ef marka má nýja úttekt QS World University Rankings. NORDICPHOTOS/GETTY