Fréttablaðið - 09.08.2011, Síða 19
KYNNING − AUGLÝSING Skólar & námskeið9. ÁGÚST 2011 ÞRIÐJUDAGUR 3
Endurmenntun Íslands býður upp
á tvær spennandi og hagnýtar
námskeiðslínur.
Þessar línur sem við bjóðum nú eru: Rekstur, stjórnun og markaðssetn-ing smáfyrirtækja – markviss leið,
sem er 90 klukkustunda nám, og Lykilþætt-
ir þjónustu – markviss leið, sem er 50 klukku-
stunda nám,“ segir Erna Guðrún Agnars-
dóttir, námsstjóri Endurmenntunar Háskóla
Íslands.
„Það sem er sameiginlegt með þess-
um línum er að það eru engin inntökuskil-
yrði, kennt er í staðbundnum lotum þar sem
hverju námskeiði lýkur áður en það næsta
hefst. Kennararnir eru framúrskarandi og
leggja áherslu á að þegar námskeiði er lokið
komi þátttakendur út með þekkingu og tæki
og tól sem hægt er að nýta strax.
Þetta er í annað skipti sem við förum af
stað með Rekstur, stjórnun og markaðssetn-
ingu smáfyrirtækja og það er skemmtilegt
að verða vitni að því þegar hugmynd fæðist
og verður að veruleika eftir þátttöku í slíku
námi. Fólk hefur einnig sótt námið til efla sig
í sínu starfi og þá um leið auka samkeppnis-
hæfni sína þannig að ástæður þátttakenda
er mismunandi.
Við erum að fara af stað í fyrsta sinn með
línuna Lykilþættir þjónustu – markviss leið
en við höfum orðið vör við að nám af þessu
tagi vantar þannig að það er spennandi að
byrja í haust. Viljum við ekki alltaf veita sem
besta þjónustu svo ekki sé talað um að fá
ætíð góða þjónustu,“ segir Erna Guðrún og
brosir.
Rekstur, stjórnun og markaðssetning
smáfyrirtækja
Námið er ætlað öllum þeim sem vilja kynna
sér uppbyggingu og mismunandi rekstrar-
form smáfyrirtækja. Þar er meðal annars
farið í algeng skattaleg mistök í fyrirtækja-
rekstri og reikningshaldi og reiknings-
skilum. Þá er farið í markaðssetningu og
hvernig megi nota samspil samfélagsmiðla
og vefmiðla við markaðssetningu og einnig
hvernig leggja skuli grunninn að fyrstu aug-
lýsingaherferð fyrirtækisins, svo eitthvað sé
upp talið. Námið er kennt á haustmisseri
2011 og er kennt í þremur lotum en hver lota
nær yfir tvær helgar, frá fimmtudegi til laug-
ardags. Námskeiðsgjald er 245.000 krónur.
Umsóknarfrestur er til 9. september 2011.
Lykilþættir þjónustu
Námsleið sem er ætluð öllum þeim sem
starfa við þjónustu í fyrirtækjum og stofnun-
um og þeim sem hafa áhuga á að auka þekk-
ingu sína á því sviði. Markmiðið er að þátt-
takendur öðlist hagnýta grunnþekkingu og
færni í framúrskarandi þjónustu. Þeir læri
um grunnatriði þjónustufræða, geri sér
grein fyrir tengslum siðferðis og þjónustu,
efli samskiptahæfni sína og sjálfstraust og
þekki leiðir til að auka eigið öryggi við lausn
ágreiningsmála, sem og að takast á við álag
og streitu í starfi. Námið er kennt á haust-
misseri 2011 og er kennt í þremur lotum en
hver lota nær yfir tvær helgar, frá fimmtudegi
til laugardags. Námskeiðsgjald er 145.000
krónur. Umsóknarfrestur er til 29. september
2011.
Tvær hagnýtar námskeiðslínur
á sviði reksturs og þjónustu
„Kennararnir eru framúrskarandi og leggja áherslu á að þegar námskeiði er lokið komi þátttakendur út með þekkingu og tæki og tól sem hægt er að nýta strax,“ segir
Erna Guðrún Agnarsdóttir, námstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands. MYND/VALLI
Hlín Gunnarsdóttir sótti nám-
skeiðslínuna Rekstur, stjórnun og
markaðssetning smáfyrirtækja –
markviss leið, og sér ekki eftir því.
„Ég er menntaður leikmynda-
og búningahönnuður og starfaði
við það um árabil, jafnframt leið-
sögn við ferðamenn heima og er-
lendis. Á einhverjum tímapunkti
fæddist draumurinn um að bjóða
upp á gistingu í heimilislegu um-
hverfi gömlu húsanna við Grettis-
götu, þar sem ég bý. Ég hafði enga
þekkingu á viðskiptum og skráði
mig því á námskeið fyrir konur í
Stofnun og rekstur smærri fyrir-
tækja hjá Brautargengi. Forsæla
Apartmenthouse tók svo á móti
fyrstu gestunum árið 2003. Eftir
sjö ára starfsemi fannst mér þörf
á einhvers konar örvun og nær-
ingu fyrir reksturinn. Þá rakst ég
á þessa spennandi námskeiðslínu
hjá Endurmenntun Háskóla Ís-
lands. Námið var vel uppbyggt og
kennararnir mjög góðir, jafnvel
reikningsskil og skattamál urðu
skemmtileg,“ segir hún og hlær.
Hlín segir að námið hafi virki-
lega opnað nýjar víddir og aukið
skilning. „Markaðssetning og
aukin þekking á heimasíðugerð
kemur að góðum notum. Mögu-
leikar Fésbókarinnar voru opin-
berun og margt fleira var í pakk-
anum, gert til þess að hjálpa
manni af stað eða styrkja í rekstri
eigin fyrirtækis.“
Gróska í Forsælu
Hlín Gunnarsdóttir segir námslínuna Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja
– markviss leið, hafa opnað fyrir sér nýjar víddir og aukið skilning. MYND/HAG
mt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ í febrúar 2011*samkvæ
Allir sem hafa sótt námskeið hjá okkur síðastliðna
nuði eru jákvæðir gagnvart Endurme12 má nntun.*
Kynntu þér framboðið á
endurmenntun.is
eða í síma 525 4444
Fjölbreytt og áhugaverð
námskeið og námsbrautir
Taktu ánægjuleg skref með okkur
100%
jákvæðni