Fréttablaðið - 11.08.2011, Page 4
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR4
MEXÍKÓ Dómstóll í Mexíkó hefur
hafnað beiðni frá Bandaríkjun-
um þess efnis
að kona, sem
grunuð er um
gríðarlegt eitur-
lyfjasmygl til
Bandaríkjanna
frá Mexíkó,
verði framseld.
Konan var enn
fremur sýknuð
af ákærum um
eiturlyfjasmygl
og skipulagða glæpastarfsemi, en
situr þó enn í fangelsi grunuð um
peningaþvætti.
Konan, Sandra Avila Beltran,
er kölluð drottning Kyrrahafsins.
Hún er frænka eins þekktasta
eiturlyfjasmyglara Mexíkó og ást-
kona eins alræmdasta eiturlyfja-
baróns Kólumbíu. Ástarsamband-
ið er sagt hafa komið á góðum
tengslum á milli glæpahringjanna
sem starfi nú náið saman.
GENGIÐ 10.08.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,1187
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,15 114,69
185,63 186,53
164,15 165,07
22,029 22,157
21,061 21,185
17,808 17,912
1,4912 1,5000
183,35 184,45
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
SNORKL (FRÍKÖFUN) Í SILFRU MEÐ ADVENTUREBOX
Skelltu þér í „snorkling“-ferð í Silfru
á Þingvöllum með AdventureBOX
þar sem allur búnaður er innifalinn
(Galli, skór, hanskar og gríma).
www.adventurebox.is
30 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
6.966 kr. GILDIR 24 TÍMA
12.900 kr.
Verð
46%
Afsláttur
5.934 kr.
Afsláttur í kr.R\
PI
PA
R
TB
W
A
•
SÍ
A
SÍ
A
NOREGUR Lögreglan í Noregi hefur vísað á
bug fréttum þess efnis að hægt hefði verið
að komast frá Ósló í Útey á mun styttri
tíma þegar hryðjuverk voru framin á stöð-
unum tveimur.
Ýmsir miðlar í Noregi hafa birt fréttir
um málið undanfarið. Norska ríkisútvarp-
ið sagði á þriðjudag að lögregla hefði farið
þriggja kílómetra lengri leið til Úteyjar en
hægt hefði verið að fara. Þá greindi TV2
sjónvarpsstöðin frá því að lögreglan hefði
ekki vitað að þyrla hafi verið til staðar
í Ósló og hefði getað flutt lögreglumenn
þangað á nokkrum mínútum.
Á blaðamannafundi í gær sagði lög-
reglan að þyrlan sem um ræddi hafi verið
á forræði spítala, og í viðbragðsstöðu til
að flytja sjúklinga á milli spítala vegna
sprengjuárásarinnar í Ósló. Lögreglan hafi
ekki vitað af henni, og jafnvel þó svo hefði
verið hefði tekið tíma að fá leyfi til að nota
hana. Jafnvel þó að vitað hefði verið af
þyrlunni hefði verið valin sú leið að keyra
að eyjunni.
Greint var frá því að hryðjuverkamaður-
inn Anders Behring Breivik hafi verið yfir-
heyrður á ný. Hann hafi verið samvinnu-
þýður við lögreglu og sagt frá ýmsu. Meðal
annars er sagt að hann hafi kviðið fyrir
því að framkvæma árásirnar, og að fyrstu
morðin sem hann framdi í Útey hafi verið
honum erfið. - þeb
Lögreglan í Noregi svarar gagnrýni á störf sín í hryðjuverkaárásum Anders Behring Breivik:
Fór þriggja kílómetra lengri leið til Úteyjar
Á BLAÐAMANNAFUNDI Í GÆR Christian Hatlo sat
meðal annarra fyrir svörum á blaðamannafundi lög-
reglunnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
16°
22°
13°
24°
25°
15°
15°
27°
21°
29°
30°
32°
20°
25°
17°
19°Á MORGUN
Hæg breytileg átt
eða hafgola.
LAUGARDAGUR
Hæg norðaustanátt.
11
14
14
14
14
14
13
10
11
12
13
13
13
12
15
13
13
12
12
10
15
SÓLRÍKT ÁFRAM
Veðrið mun áfram
leika við landann
og lítur út fyrir að
veðurblíðan haldist
víðast hvar fram á
sunnudag en þá er
spáð vætu og vax-
andi vindi austan-
lands. Hitinn helst
svipaður en fer
lækkandi norðan
og austan til um
helgina.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
KAUPMANNAHÖFN Amager-maður-
inn svokallaði, sem var handtek-
inn í fyrra vegna fjölda nauðgana
og morða, er einnig grunaður um
kynferðisofbeldi gegn konu árið
2007.
Maðurinn var handtekinn eftir
að lífsýni tengdu hann við sex
nauðganir og tvö morð sem flest
áttu sér stað í nágrenni Amager í
Kaupmannahöfn.
Nú beinast böndin að honum
vegna atviks árið 2007 þar sem
kona var neydd til munnmaka.
Bæði eru það aðfarir sem konan
lýsti og lífsýni sem benda til þess
að hann hafi verið þar að verki.
Rannsókn málanna er ólokið. - þj
Óvætturinn á Amager:
Fjölgar í hópi
fórnarlamba
SANDRA AVILA
BELTRAN
Hafnar beiðni frá BNA:
Framselja ekki
drottninguna
BRETLAND Þrír menn létust í óeirð-
um í Birmingham aðfaranótt mið-
vikudags. Mennirnir, sem voru á
aldrinum 20 til 31 árs, voru í hópi
fólks sem reyndi að verja versl-
anir í hverfi sínu fyrir þjófum
þegar bíl var ekið á þá. Ökumað-
urinn flúði af vettvangi en maður
er nú í haldi lögreglunnar grunað-
ur um að hafa valdið dauða mann-
anna. Atvikið er rannsakað sem
morðmál.
Tariq Jahan, faðir eins hinna
látnu, bað um að ekki yrði gripið
til hefnda vegna dauða mannanna
og hvatti ribbalda á götum Bret-
lands til þess að hætta ólátum og
snúa til síns heima.
Lítil sem engin mótmæli voru
í London á þriðjudagskvöld, en
sextán þúsund lögreglumenn
voru á götum úti í borginni. Það
er tæplega þrefalt meira en kvöld-
in á undan, þegar mikil ólæti voru
víðs vegar um borgina. Einnig var
tiltölulega rólegt í höfuðborginni
í gærdag en nokkur ólga var enn í
borgum víða um landið.
Dómstólar í London voru opnir
fram eftir kvöldi í gær til þess að
hægt væri að leiða alla þá sem
hafa verið ákærðir fyrir dóm-
ara. Um tólf hundruð manns hafa
verið handteknir vegna óeirða í
Bretlandi, þar af um 800 í London.
Meðal þeirra sem komu fyrir
rétt í London var ellefu ára gam-
all drengur, sem játaði að hafa
stolið úr verslun Debenhams í
óeirðunum. Hann eyddi nóttinni
á undan í fangaklefa þrátt fyrir
ungan aldur, en mun koma fyrir
ungmennarétt í lok mánaðarins.
Hann er nú í útivistarbanni frá
klukkan sex á kvöldin til sex á
morgnana.
Ólætin voru mest í Birming-
ham, Manchester og Liverpool á
þriðjudagskvöldið auk þess sem
lítilsháttar átök urðu í Leicester,
Wolverhampton, West Bromwich,
Bristol, og Gloucester.
Bretar munu ekki láta
„hræðslumenningu“ stjórna göt-
unum, sagði David Cameron for-
sætisráðherra í gær. Hann sagði
að gripið yrði til allra ráða til að
koma á lögum og reglu á ný. „Ekk-
ert er út af borðinu,“ sagði hann.
Meðal annars hefur verið rætt
um að nota háþrýstivatnsbyssur
til að dreifa fjöldanum, en slíkt
hefur aldrei verið notað í Bret-
landi.
Niðurskurður ríkisstjórnar-
innar hefur verið gagnrýndur í
tengslum við óeirðirnar en lög-
reglan á að skera mikið niður á
næstu árum og fækka lögreglu-
mönnum um sextán þúsund fyrir
árið 2015. Boris Johnson borgar-
stjóri í London skoraði á ríkis-
stjórnina að endurskoða áætlan-
ir sínar.
thorunn@frettabladid.is,
thorgils@frettabladid.is
Óku inn í hóp og drápu þrjá
Þrír létust í Birmingham í fyrrinótt þegar ekið var inn í hóp fólks sem stóð vörð um verslanir. 1200 hafa
verið handteknir vegna óeirða í Bretlandi. David Cameron segir allt koma til greina til að róa ástandið.
Í GEGNUM ELDINN Óeirðaseggur í Liverpool við logandi vegartálma. Talsverðar róstur voru þar í gær þar sem um 200
ungmenni köstuðu grjóti að lögreglu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BIÐUR UM FRIÐ Tariq Jahan heldur uppi mynd
af Haroon 21 árs gömlum syni sínum sem lést
þegar bíl var ekið inn í hóp fólks í Birmingham.
Hann biðlaði til ófriðarseggja að láta af ofbeldinu.