Fréttablaðið - 11.08.2011, Page 8

Fréttablaðið - 11.08.2011, Page 8
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR8 Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Heimilistæki frá Siemens til að prýða eldhúsið þitt og létta þér störfin. Lausnina færðu hjá okkur. ATVINNUMÁL Byggðastofnun er þessa dagana að taka við þeim eignum sem henni eru veðsettar úr höndum skiptastjóra þrotabús Eyrarodda á Flateyri. Það er meg- inþorri eignanna og nægir til að hefja fiskvinnslu á Flateyri eins og hún var áður. Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, segir að nú ætti sala eignanna að verða einfaldari. „En framtíð fiskvinnslu á Flateyri ræðst hins vegar, hér eftir sem hingað til, af þeim áhuga sem kaup- endur hafa til að nýta aðstæðurnar á staðnum,“ segir hann. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirð- inga ályktaði um málið og gagn- rýndi mjög veðhafana, Lands- bankann og Byggðastofnun, sem og skiptastjóra fyrir að draga lapp- irnar í málinu sem tekið hefur um átta mánuði og á meðan er afar tak- mörkuð vinnsla í þeirri aðstöðu sem Eyraroddi skilur eftir sig. Finn- bogi Sveinbjörnsson, formaður verkalýðsfélagsins, segir að fólks- flótti blasi við ef ekki verði hægt að ýta fiskvinnslu úr vör sem allra fyrst á Flateyri. Nú þegar eru um 40 manns atvinnulausir á staðnum. Íbúar eru 237 eða 71 færri en fyrir fimm árum. „Það er sorglegt, þegar ég lít til baka og minnist fundanna sem ég átti með fiskvinnslufólki á Flateyri fyrir nokkrum árum. Það voru um hundrað manns á þessum fundum. Nýverið héldum við svona fund á Flateyri; það voru þrettán manns á fundinum, þetta segir allt sem segja þarf um ástandið.“ Landsbankinn svaraði ályktun verkalýðsfélagsins og sagði hana byggða á vanþekkingu, bankinn hefði reynt eftir fremsta megni að Fiskvinnslan aftur til sölu á Flateyri Byggðastofnun er að leysa til sín eignir Eyrarodda úr höndum skiptastjóra. Um fjörutíu manns eru atvinnulausir á Flateyri. Verkalýðsfélag Vestfjarða gagnrýn- ir veðhafa og skiptastjóra harðlega og segir þá hafa dregið lappirnar í málinu. 2007 Kambur hættir útgerð. 120 manns unnu hjá fyrirtækinu. Eyraroddi tekur við á haustmánuðum. 2010 Eyraroddi segir upp öllum 42 starfsmönnum sínum. Fyrirtækið varð gjaldþrota í janúar síðastliðnum. 2011 Lotna kaupir hluta eignanna og hefur rekstur á Flateyri í upphafi árs. Byggðastofnun féllst hins vegar ekki á sölu á sínum hlut vegna viðskipta- sögu Lotnu. Toppfiskur falaðist hins vegar eftir því að kaupa allar eignirnar en hvarf frá þeim áætlunum í síðasta mánuði. Rétt á annan tug manna vinnur nú hjá Lotnu á Flateyri. Kvarnast af útgerð á Flateyri FRÁ FLATEYRI Nú er Byggðastofnun komin með nær alla fiskvinnsluaðstöðuna á Flateyri í sínar hendur þannig að ef áhugasamur kaupandi fæst mun útgerð geta glæðst á ný á staðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HÁSKÓLINN Á AKUREYRI Tuttugasta NordMedia-ráðstefnan verður haldin í Háskólanum á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR AKUREYRI Talið er að á þriðja hundrað fjölmiðlafræðinga muni sækja tuttugustu alþjóðlegu norrænu fjölmiðlaráðstefnuna, Nord Media, sem sett verður í Hofi á Akureyri í dag. Í yfirskrift ráðstefnunnar er spurt hvort fjölmiðlafræði og fjölmiðlarannsóknir séu að skoða það sem máli skiptir. Mikill fjöldi erinda verður fluttur og skiptast þau upp í ellefu málstofur. NordMedia hefur verið haldin annað hvert ár í einhverju Norð- urlandanna frá árinu 1973 og er um áratugur síðan slík ráðstefna var haldin hér á landi. - sv Fjölmiðlaráðstefna á Akureyri: Mörg hundruð þátttakendur MÚS Ofurmýsnar eru alveg eins í útliti og aðrar mýs. VÍSINDI Nokkrar evrópskar mýs hafa þróað með sér ónæmi fyrir sterkustu eiturtegundum. Þetta segja vísindamenn. Mýs í Þýskalandi og á Spáni hafa eignast afkvæmi með alsírskum músum, segir Michael Kohn prófessor, sem stýrði rann- sókninni. Flest afkvæmi mús- anna geta ekki fjölgað sér vegna þess hversu ólíkar tegundirn- ar eru, en þó virðist sem sum afkvæmin séu fær um það. Rannsakendur segja fjölgun mannkyns og aukin ferðalög hafa valdið samdrætti þessara músa- tegunda. Óttast er að það sama gæti gerst hjá rottum. - þeb Ný rannsókn um mýs: Ofurmýs ónæm- ar fyrir eitri DANMÖRK Í fóðrinu í handtösk- unum Daimi og Patti frá Best- seller, stærsta tískufyrirtæki Danmerkur, er svo mikið magn af krabbameinsvaldandi litar- efninu Azo benzen að meðhöndla ætti töskurnar sem hættulegan úrgang, samkvæmt mati dönsku umhverfisstofnunarinnar. Bestseller innkallaði fyrir þrem- ur vikum eitruðu töskurnar en fyrirtækið hefur ekki vakið athygli viðskiptavina á því hversu hættu- legar þær eru. Í júlí kom í ljós að fyrirtækið hafði selt barnaföt merkt Name It með krabbameins- valdandi efnum. - ibs Hættulegar handtöskur: Efnið veldur krabbameini FERÐAÞJÓNUSTA Erlendum ferða- mönnum jókst um rúm 17 prósent á milli ára í júlímánuði. Sam- kvæmt talningu Ferðamálastofu fóru 97.757 erlendir ferðamenn frá landinu í júlí síðastliðnum eða um 14 þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Erlendir ferðamenn hafa aldrei verið fleiri í júlímán- uði eða frá því að talningar hófust í Leifsstöð árið 2002. Á vef Ferðamálastofu kemur fram að það sem af er ári hafa 304.643 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 50 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. - sv Ferðamenn aldrei verið fleiri: Fjölgaði um 17% milli ára ÞINGVELLIR Þátttaka í hugmynda- leit um framtíðarskipulag á Þing- völlum hefur verið góð. Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörð- ur er ánægður með þátttökuna, en segist þó búast við að íslenska aðferðin verði í hávegum höfð; að flestar tillögur komi síðustu vik- una. „Ég legg áherslu á að þetta þurfa ekki að vera margbrotnar hugmyndir. Það nægir að setja nokkrar línur á blað og skýra til- löguna,“ segir hann. Ólafur segir fjölda manns hafa komið að máli við starfs- fólk á Þing- völlum með til- lögur. Það stoði h i n s ve g a r lítt ef þeim er ekki skilað í hugmynda- samkeppnina. Menn geti viðr- að hugmyndir sínar hvar sem er, en þátttaka sé forsenda þess að til þeirra verði tekin afstaða. Hugmyndaleitin stendur til 20. ágúst og að henni lokinni tekur dómnefnd til starfa. Hún mun meta hugmyndirnar nafn- laust. Ólafur Örn vonast til að hægt verði að hefja vinnu að nýju skipulagi á næsta ári, en dómnefndin sé hins vegar ekki bundin af því. Á laugardaginn verður dag- skrá á vegum Þingvallanefnd- ar í Fræðslumiðstöðinni við Almannagjá. Þar verður hugmyndaleitin kynnt, en einnig farið yfir nátt- úrufar, sögu og ferðamennsku í þjóðgarðinum. Hefst dagskráin klukkan 11. - kóp Hugmyndaleit um framtíðarskipulag á Þingvöllum stendur enn yfir: Fjöldi hugmynda kominn fram ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON leysa málið enda sé það ekki veð- höfum í hag að draga söluna á lang- inn. „Gott og vel,“ segir Finnbogi á móti, „það kann að vera að við séum sekir um vanþekkingu en þeir sem geta ekki leyst úr þessu, um hvað eru þeir sekir: getuleysi?“ Aðalsteinn Þorsteinsson vill ekki blanda sér í þessi orðaskipti en ítrekar að töfina sé ekki að rekja til deilna Byggðastofnunar og Landsbankans og reyndar hafi slíkar deilur aldrei átt sér stað. Hins vegar hafi tilboð Toppfisks í eigurnar verið háð skilyrðum og það hafi flækt málið. Toppfiskur dró síðan tilboð sitt til baka í síð- asta mánuði. jse@frettabladid.is MENNING Jazzhátíð Reykjavík- ur verður sett á menningarnótt, tuttugasta ágúst næstkomandi og stendur í tvær vikur. Fjöldi innlendra og erlendra djassara kemur fram á hátíð- inni í ár en þekktasta nafnið er píanóleikarinn Danilo Perez frá Panama. Tónleikar verða haldnir á alls þrettán stöðum víða um borg á meðan hátíðin stendur. Þá verður lokapunktur hátíðar- innar stórtónleikar með hljóm- sveitinni Mezzoforte í Eldborgar- sal Hörpunnar þriðja september. Jazzhátíð sett eftir tvær vikur: Mezzoforte spilar í Eldborg 1 Hver sá um markaðssetningu á flestum vinsælustu plötum Bubba Morthens? 2 Frá hvaða háskóla kom liðið sem lenti í fjórða sæti í kafbátamóti í Bandaríkjunum? 3 Hvaða lið er í efsta sæti í Pepsi- deild kvenna? SVÖR: 1. Jens Guð 2. Háskólanum í Reykjavík 3. Stjarnan VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.