Fréttablaðið - 11.08.2011, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 11.08.2011, Blaðsíða 32
KYNNING − AUGLÝSING FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2011 Búðu til draumavélina þína Farðu inn á slóðina www.dreamware.is. Þar geturðu valið milli tveggja grunnvéla: Dreamware W251HPQ eða Dreamware W150HRQ. Veldu íhluti í vélina Nú eru ódýrustu íhlutirnir þegar valdir í tölvuna. Til hægri sérðu hvað hún kostar. Verðið breytist um leið og þú velur dýrari hlut. Skrollaðu niður síð- una og veldu örgjörva, vinnsluminni, harðan disk og svo framvegis, allt eftir þínum þörfum. Leggðu pöntunina inn Þegar draumatölvan er tilbú- in skaltu ýta á hnappinn panta. Hægt er að greiða með kredit- korti eða millifærslu. Starfsmenn Start taka við pöntuninni og setja tölvuna þína saman. Þú getur sótt hana í verslunina í Bæjarlind 1 í Kópavogi. Afgreiðslu- tími er tveir til fjórir dagar. Veistu ekki hvað þú þarft? Ef þú stendur á gati í fræði- legu tölvumáli ertu vel- kominn í verslunina og starfs- menn aðstoða þig við að setja saman draumatölvuna þína. Þetta er nýjung á íslensk-um fartölvumarkaði,“ segir Vigfús Þór Sveinbjörns- son, framkvæmdastjóri hjá Start. „Viðskiptavinurinn velur sjálf- ur hvaða íhluti hann vill hafa í tölvunni gegnum vefsíðu og við framleiðum tölvuna hér. Dreamware er því íslenskt vöru- merki.“ Einfalt að raða saman Vefsíðan www.dreamware.is fer í loftið í dag. Þar er hægt að velja milli tveggja mismunandi gerða tölva og raða í hana eftir þörfum. Verð tölvunnar reiknast sjálfkrafa á síðunni svo auðvelt er að fylgjast með hvað pöntunin kostar. Viðskiptavinurinn velur hvaða örgjörva hann vill í tölv- una, vinnsluminni, harðan disk og hvort þeir eru einn eða tveir, stýrikerfi, hvort hann vill vírus- vörn eða ekki, hvort tölvan er með geisladrifi eða ekki og þar fram eftir götunum. „Síðan er mjög aðgengileg og það er ekki hægt að velja neitt vitlaust, það er fyrirfram búið að raða saman íhlutum sem passa í tölvuna,“ útskýrir Vigfús. „Hlutirnir eru framleidd- ir sérstaklega fyrir okkur. Við kaupum þá beint af framleiðand- anum og fáum því allt það nýj- asta sem völ er á. Í dag látum við framleiða tvö grunnmódel 15 tommu en munum í fram- haldinu bjóða upp á fleiri stærð- ir. Við bjóðum einnig fartölvu- tryggingar til þriggja ára og fólk velur einnig hvort það vill bæta því við.“ Þeir sem vita hvað þeir þurfa geta sett tölvuna algerlega sjálf- ir saman á vefnum, en þeim sem þekkja ekki inn á vinnsluminni, örgjörva og harða diska er vel- komið að fá aðstoð starfsmanna Start.„Við aðstoðum fólk að sjálf- sögðu og getum leitt það gegn- um síðuna hér hjá okkur,“ segir Vigfús. Engar snúrur Önnur nýjung hjá Start er svokall- að wireless display en með því er hægt að senda skjámyndina þráð- laust yfir í sjónvarp. „Þá er hægt að spila bíómynd úr tölvunni á sjón- varpsskjánum heima eða flytja kynningar á fundum og losna við allar snúrur. Það eina sem þarf er lítill móttakari með HDMI- tengi sem fæst í Start,“ segir Vig- fús. „Þetta er enginn annar með á markaðnum hér á landi.“ Tvö skjákort „Við bjóðum einnig fartölvur með tvö skjákort. Eitt fyrir tölvuleiki og annað sem eyðir minna af raf- hlöðunni og hentar í vinnuna og í skólann. Með því að ýta á takka skiptir tölvan á milli korta en með þessu lengist ending rafhlöðunnar um allt að þrjá tíma,“ útskýrir Vigfús. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu verslunarinnar www. start.is. Nýtt íslenskt merki Start tölvuverslun fer af stað í dag með sitt eigið vörumerki, Dreamware. Tölvurnar eru settar saman hjá Start eftir óskum viðskiptavina sem geta valið í tölvurnar á netinu. Vigfús Þór Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri hjá Start tölvuverslun, opnaði í dag vefsíðuna www.dreamware.is þar sem viðskipta- vinum gefst kostur á að velja íhluti í tölvuna eftir eigin þörfum. MYND/GVA Draumavélin búin til Ef þú stend- ur á gati geta starfsmenn hjálpað. Dreamware W251HPQ Stýður nýjustu i3, i5 eða i7 Sandy Bridge örgjörvana 15.6” 1366x768 skjár nVIDIA Geforce GT520M 1GB Íslenskt lyklaborð Þráðlaust 300Mbps netkort Wireless Display 2.0 vefmyndavél 2x USB 3.0 tengi og HDMI Á www.dreamware.is velur þú fyrst þá tölvu sem hentar þér og síðan velurðu örgjörva, hanna þína drauma tölvu. Dreamware er með Intel Wireless Display sem gerir þér kleift að senda mynd þráðlaust beint í sjónvarpið. Allt sem vantar er lítill móttakari með HDMI tengi. Dreamware er með tvö skjákort, annað leikjakort og hitt fyrir skrifstofuna eða skólann, þú getur skipt um kort með einum takka! Verð frá 139.900 kr. Verð frá 169.900 kr. Dreamware W150HRM Stýður nýjustu i3, i5 eða i7 Sandy Bridge örgjörvana 15.6” 1920x1080 Full HD skjár nVIDIA Geforce GT555 2GB Íslenskt lyklaborð Þráðlaust 300Mbps netkort Wireless Display 2.0 vefmyndavél 2x USB 3.0 tengi og HDMI Bæjarlind 1, Kópavogi sími 544 2350 start@start.is www.start.is Hannaðu þína eigin tölvu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.