Fréttablaðið - 11.08.2011, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGfartölvur FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 20116
Tölvur með sjálfstæðan vilja hafa verið
umfjöllunarefni kvikmynda í gegnum tíðina.
Margar eru þær illskeyttar og vilja annaðhvort
ná völdum í heiminum eða granda jörðinni
fyrir fullt og allt.
Tölvan
tekur völdin
WARGAMES 1983
Leikstjóri: John Badham
Leikari: Matthew Broderick
Ungur tölvusnillingur
tengist óvart háleyni-
legri rússneskri ofur-
tölvu. Tölvan skorar á
piltinn í leik milli Banda-
ríkjanna og Rússlands.
Þar sem hann telur um
saklausan tölvuleik að ræða samþykkir hann boðið og
hefur þar með niðurtalningu í þriðju heimsstyrjöldina.
2001: A SPACE ODYSSEY 1968
Leikstjóri: Stanley Kubrick
Kvikmyndin þykir eitt af stór-
verkum Kubricks. Hún fjallar
um þróun greindar og skilin
milli dýra og manna. Hún
tekur á spurningunni um
hver verði næstu skil, munu
tölvurnar stinga manninn
af? Myndin gerist úti í geimi
og fjallar um baráttu Dr. Dave
Bowman við ofurtölvuna HAL
9000.
Árið 1984 var gerð framhaldsmynd sem bar heitið 2010.
Þar kemur einnig fram tölvan SAL 9000.
ELECTRIC DREAMS 1984
Leikstjóri: Steve Marron
Aðalleikarar: Lenny von Dohlen, Virginia Madsen
Myndin fjallar um ástarþríhyrning milli manns, konu og
heimilistölvu. Miles Hardin kaupir sér tölvu, en þegar
hann reynir að hlaða niður gögnum ofhitnar tölvan. Í fáti
hellir Miles úr kampavínsflösku yfir vélina sem við það
verður skyni gædd. Tölvan kallar sig Edgar en málin þró-
ast þannig að bæði Miles og Edgar verða ástfangnir af
nágrannakonunni. Edgar verður afbrýðisamur og reyn-
ir að klekkja á eiganda sínum með ýmsum ráðum. Ástin
sigrar þó að lokum og tölvan Edgar ákveður að fremja
sjálfsmorð.
THE TERMINATOR 1984
Leikstjóri: James Cameron
Leikari: Arnold Schwarzenegger
Tölvunetið Skynet hefur tekið jörðina yfir
en mannkynið verst af hörku. Þegar upp-
reisnarmenn eru við það að eyðileggja
Skynet sendir það vélmenni með mannlegt
útlit til fortíðar til að drepa Söruh Conn-
or. Hún mun í framtíðinni
geta af sér drenginn
John Connor sem
er leiðtogi upp-
reisnarmanna.
THE MATRIX 1999
Leikstjórar: Andy og Lana Wachowski
Leikarar: Keanu Reeves og Laurence Fishburne
Thomas A. Anderson lifir tvöföldu lífi. Á daginn er hann
tölvuforritari en um nætur er hann tölvuhakkarinn Neo.
Hann efast um raunveruleikann og kemst að því með
aðstoð Morpheusar að hann lifir í raun aðeins í draumi.
Morpheus vekur hann til hins raunverulega lífs þar sem
tölvur ráða ríkjum og nærast á hita frá líkömum manna
en huga þeirra hafa þær fangelsað í gerviheimi sem kall-
ast Matrix.
EAGLE EYE 2008
Leikstjóri: D.J. Caruso
Leikari: Shia LaBeouf
Þegar tvíburabróðir Jerry Shaw deyr í slysi fer ýmislegt
furðulegt að koma fyrir Jerry sem gerir hann tortryggi-
legan í augum yfirvalda. Hann fylgir fyrirmælum radd-
ar sem leiðir hann víða en hún virðist vita allt. Að lokum
kemur upp úr kafinu samsæri sem stýrt er af valdasjúkri
tölvu.
E LKO er með mikið úrval af fartölvum, allt frá tíu tommu sem kosta 39.000 krón-
ur upp í kraftmiklar vélar sem
kosta allt að 300 til 500 þúsund.
Hjörvar Freyr Hjörvarsson, vöru-
stjóri tölvu- og símadeildar hjá
ELKO, segist mæla með 13 tommu
Toshiba vél fyrir skólafólk. „Hún
er mjög nett og með DVD-drifi,
ekki nema 1,4 kíló og batterísend-
ingin er hátt í níu tímar svo hún
endist vel daginn. Ef ég væri á leið-
inni í skóla mundi ég taka þessa,
ekki spurning,“ segir Hjörvar.
Hjörvar segir að ódýru tölvurn-
ar dugi í öll venjuleg heimilisstörf
tölvunnar eins og ritvinnslu, inter-
net og önnur léttari forrit. En sé fólk
að nota þung forrit þá endist tölvan
betur sé hún öflug. Hann líkir end-
ingu tölva við bíla, ef mikið álag er
á litlum bíl þá er slitið meira en ef
bíllinn er kraftmikill.
„Hjá okkur eru það Toshiba-tölv-
urnar sem eru vinsælastar. Það er
líka góð reynsla af þeim, merkið er
gott og endingin fín. Þær bila lítið
og svo framvegis. En ef hún bilar
þá er þjónustan hröð. Það tekur
yfirleitt innan við viku að gera við
þær,“ segir Hjörvar og tekur fram að
ELKO sé í samstarfi við verkstæði
sem sér um tölvurnar þeirra.
Tveggja ára ábyrgð er á öllum
tölvum frá ELKO sem gildir um
gjörvalla Evrópu. En að auki er
boðið upp á tryggingar á vélarn-
ar. „Ef þú verður fyrir óhappi þá
færðu það bætt. Í þessum trygg-
ingum er engin eigin ábyrgð og af-
föll og margir nýta sér þennan kost.
Tryggingin tekur á víðu sviði, ef þú
verður fyrir skyndilegu ófyrirséðu
óhappi þá færðu það bætt. Þá er gert
við vélina eða þú færð aðra sam-
bærilega í staðinn,“ segir Hjörvar
og telur þetta vera sérstaklega snið-
ugt fyrir þá sem vilja eiga eina vél í
mörg ár. „Þá er gott að henda einni
tryggingu á það, þá ertu nokkuð
öruggur,“ segir Hjörvar.
Hjörvar segir að miklar framfarir
hafi orðið á endingu battería und-
anfarið eitt og hálft ár. „Í dag eru
þetta almennt fimm til sex tímar en
voru fyrir stuttu þrír tímar. Það eru
að koma nýir örgjörvar sem eyða
miklu minna rafmagni og skjá-
ir líka,“ útskýrir Hjörvar og bend-
ir fólki á að það sé gott fyrir líftíma
battería að taka þau úr tölvunum
ef tölvan er mikið heima og alltaf
í sambandi. „Þá ertu ekki að hlaða
upp á nýtt og nýtt. Ef maður gerir
það myndast ákveðin mótstaða í
rafhlöðunni,“ segir Hjörvar.
Toshiba-tölvur eru
vinsælastar hjá ELKO
ELKO er stærsta rafvöruverslun landsins og selur margar tegundir fartölva. ELKO er
með viðskiptasamning við raftækjakeðjuna Dixons sem rekur meðal annars Elkjop í
Noregi. Með þátttöku í þessari raftækjakeðju er stuðlað að lágu fartölvuverði á Íslandi.
Hjörvar Freyr Hjörvarsson með Toshiba-tölvuna sem hann mælir með fyrir skólafólk.
MYND/STEFÁN
O KR.
ÚT Á LAND
FARTÖLVUR
Á FRÁBÆRU VERÐI
ELKO ENDURGREIÐIR 2 TÖLVUR! *
Símsala 575 8115