Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.08.2011, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 11.08.2011, Qupperneq 56
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR40 FÓTBOLTI Keppnistímabilið í ensku úrvalsdeildinni hefst um helgina og eru tveir íslenskir knatt- spyrnumenn á mála hjá liðum deildarinnar að þessu sinni. Annar þeirra er bakvörðurinn Grétar Rafn Steinsson sem leik- ur með Bolton Wanderers. Þar er hann löngu orðinn fastamaður og er nú að hefja sitt fjórða heila tímabil með liðinu. Grétar er 29 ára gamall og á langan feril að baki. Hann varð bæði Íslands- og bikarmeistari með ÍA áður en hann hélt til Sviss árið 2004. Þar lék hann með Young Boys í átján mánuði áður en hann samdi við AZ Alkmaar í Hollandi, þar sem hann var í tvö og hálft ár. Í janúar árið 2008 keypti Gary Megson, þáverandi stjóri Bolton, Grétar Rafn til félagsins fyrir 3,5 milljónir punda. Í dag er hann mjög ánægður hjá félaginu en segir að fyrstu árin undir stjórn Megsons hafi verið mjög skrítin. Sá nánast eftir félagaskiptunum „Ég sá nánast eftir því að hafa farið til Bolton. En eftir að Owen Coyle var ráðinn sá ég aftur ljósið og síðan þá hef ég notið þess mjög að spila hér. Hjá Bolton er komið mjög vel fram við leikmenn og vel hugsað um okkur. Það er þekkt að leikmenn hjá Bolton eiga það til að vera lengi hjá félaginu. Hér er mjög gott æfingasvæði, frábær völlur og við erum með lið sem er vel samkeppnishæft í ensku úrvalsdeildinni,“ segir Grétar. Bolton endaði í fjórtánda sæti deildarinnar á síðasta tímabili en eftir að það vann 2-1 sigur á Arsenal í lok apríl datt allur botn úr leik liðsins sem tapaði síðustu fimm leikjum sínum á tímabilinu. „Þegar lið eru búin að tryggja veru sína í deildinni þarf lítið til að það hægist verulega um. Vonandi náum við að halda dampi aðeins lengur í ár og setja meiri pressu á átta efstu lið deildarinnar,“ segir Grétar Rafn sem telur Bolton vera með lið sem geti gert góða hluti í vetur. Tvö fótbrot „Við erum með virkilega sterkt byrjunarlið og höfum spilað ágæt- lega á undirbúningstímabilinu. Hins vegar höfum við misst mikið af leikmönnum og ekki enn tek- ist að fylla í þau skörð. Þess fyrir utan fótbrotnuðu tveir leikmenn á dögunum og vorum við ekki nema þrettán á æfingu í dag,“ segir hann en viðtalið var tekið á mánudaginn síðastliðinn. „Við fáum líklega tvo leikmenn í þess- ari viku og svo notum við yngri leikmenn til að fylla í hópinn.“ Hann segir erfitt fyrir lið eins og Bolton að keppa við stóru liðin á leikmannamarkaðnum. „Deildin er sífellt að verða sterkari og hefur aldrei verið sterkari en nú frá því að ég kom til Englands. Hér geta bestu liðin keypt að vild og minni liðin bítast svo um stóru bitana sem stóru liðin vilja ekki. Mark- aðurinn ber þess merki að stóru liðin eru undir mikilli pressu að standa sig og vinna titla. Því eru háar upphæðir greiddar fyrir leikmenn. Það er mikið undir og verður mjög spennandi að fylgj- ast með markaðnum þar til lokað verður fyrir félagaskipti um mán- aðamótin.“ United með besta liðið Um toppbaráttu deildarinnar segir hann ljóst að Manchester United, núverandi Englandsmeist- ari, sé með besta liðið. „Það sönn- uðu United-menn á síðasta tíma- bili og undirstrikuðu í leiknum um Samfélagsskjöldinn um síðustu helgi,“ segir Grétar en þá vann United 3-2 sigur á grönnum sínum í City eftir að hafa verið 2-0 undir hálfleik. „Það býr mikil geta í liðinu en í þessum leik sýndu leikmenn hversu gott hugarfar þeir eru með. Það þarf rétta hugarfarið til að vinna upp slíka forystu frekar en knattspyrnulega getu,“ segir Grétar. „Svo verður gaman að fylgjast með Liverpool sem hefur mikið keypt og spurning hvort eyðslan skili einhverju. Maður veit svo aldrei hvað gerist hjá Arsenal og þá helst hvort félagið ætli loks- ins að kaupa einhverja leikmenn. Chelsea er stórt spurningarmerki og svo er það Manchester City sem getur keypt að vild. Það er gríðar- lega mikið í húfi fyrir öll þessi lið.“ Á lokaári samningsins Grétar er á lokaári samnings síns hjá Bolton en er ekki byrjaður að ræða við félagið um nýjan samn- ing. „Aðalmálið fyrir liðið nú er að bæta við sig leikmönnum en ekki gera nýja samninga við leikmenn sem eru fyrir hjá félaginu. Fram- haldið kemur svo bara í ljós.“ eirikur@frettabladid.is Deildin hefur aldrei verið sterkari Grétar Rafn Steinsson er að hefja sitt fjórða heila keppnistímabil með Bolton í ensku úrvalsdeildinni. Hann segir Bolton með sterkt byrjunarlið en að félagið þurfi fleiri leikmenn. Grétari líður mjög vel hjá Bolton. Í SVIÐSLJÓSINU Grétar Rafn Steinsson í leik gegn Manchester United á Old Trafford í mars síðastliðnum. Hér er hann í baráttu við annan bakvörð, hinn franska Patrice Evra. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES Aðeins tveir Íslendingar spila í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið en engu að síður verður Íslendingaslagur strax í fyrstu umferð þegar nýliðar QPR taka á móti Bolton. Heiðar Helguson leikur með QPR en Grétar Rafn Steinsson með Bolton. Grétar Rafn gekk til liðs við Bolton í janúar 2008 en þá var Heiðar einmitt á mála hjá Bolton. „Hann átti mjög stóran þátt í því að ég ákvað að semja við Bolton á sínum tíma,“ segir Grétar Rafn. „Hann var svo mjög óheppinn með meiðsli á sínum tíma með félaginu en stóð sig alltaf mjög vel þegar hann gat spilað.“ Heiðar leikur sem sóknarmaður en Grétar sem varnarmaður. Það er því líklegt að þeir muni eitthvað kljást fái þeir báðir að spila. „Leikmennirnir þekkja hann mjög vel og við munum hafa góðar gætur á honum svo hann eyðileggi ekki daginn fyrir okkur. Ég get lofað því að hann fær ekkert ókeypis hjá mér,“ segir hann í gamansömum tón. Íslendingaslagur í fyrstu umferð FÓTBOLTI Ármann Smári Björnsson hefur verið samningslaus síðan hann yfirgaf Hartlepool í lok síð- ustu leiktíðar. Ármann Smári hefur varið stórum hluta sumars- ins hér á landi, æft sjálfur og hald- ið sér í standi. Hornfirðingurinn var einn fjöl- margra sem fóru frá Hartlepool í maí. „Það kom nýr þjálfari sem var með sínar áherslur. Einhverjum líkaði það ekki og aðrir vildu fara því þeir voru ekkert að fá að spila hjá honum. Menn eru víst í þessu til þess,“ segir Ármann Smári sem segir nýja þjálfarann hafa fengið til sín tíu leikmenn sem hafi spilað undir hans stjórn áður. „Ég sá fljótlega eftir að hann tók við að ég væri ekki að passa í myndina hjá honum. Ég fékk bara þá hugmynd að finna mér nýtt félag.“ Sú spurning hlýtur að vakna hvort félög í Pepsi-deildinni hefðu ekki getað notast við krafta Ármanns Smára í sumar. Eyja- menn og Valsarar hafa átt í fram- herjavandræðum en ekkert félag stendur jafnilla og Fram sem hefur aðeins skorað sjö mörk í fjórtán leikjum. „Það var óvenju rólegt,“ segir Ármann Smári spurður hvort íslensku félögin hafi reynt að fá hann til sín. Hann hafi enn hug á því að spila úti og sé að skoða sig um þar. Ármann Smári fór á dögunum til Svíþjóðar og æfði með Jónasi Guðna Sævarssyni og félögum í Halmstad. Félagið er í slæmum málum í deildinni, vermir botn- sætið og virðist stefna í fall hjá félaginu. „Ég var þar í fjóra daga en æfði bara tvisvar. Það var frí hjá þeim og svo stuttu síðar skiptu þeir um þjálfara. Ég hef ekki heyrt neitt frá þeim,“ segir Ármann Smári sem hefur gert allt klárt í Eng- landi fyrir væntanlegan flutning. Hvert svo sem hann verður. „Ég er búinn að pakka dótinu mínu í geymslugám. Það er klárt hvert sem ég fer. Það þarf bara að finna heimilisfang á gáminn,“ segir Ármann léttur. Ólafur Garðarsson, umboðsmað- ur kappans, segist aðallega horfa til Norðurlandanna, Englands og Skotlands eftir nýju félagi. Ármann Smári segist myndu skoða allt sem kæmi upp en viðurkennir að aðstæður séu breyttar nú þegar hann sé kominn á fertugsaldurinn. „Þegar maður er komin með tvö börn og fjölskyldu þarf maður að skoða betur hvert maður vill fara,“ sagði Hornfirðingurinn geðþekki. - - ktd Ármann Smári Björnsson nýtur veðurblíðunnar á Íslandi meðan hann leitar sér að nýju félagi erlendis: Þarf bara að finna heimilisfang á gáminn LANDSLIÐSMAÐUR Ármann Smári spilaði síðast landsleik í 2-1 tapi gegn Skotum í apríl 2009. NORDIC PHOTOS/AFP KÖRFUBOLTI Sigurjón Örn Lárus- son hefur ákveðið að snúa aftur heim í Stjörnuna og spila með liðinu í Iceland Express-deildinni í vetur. Sigurjón hefur búið í Vest- mannaeyjum undanfarin fjög- ur ár en lék þar á undan með Stjörnuliðinu frá stofnun körfu- boltadeildarinnar 1993. Svo skemmtilega vill til að Sigurjón mun nú spila á nýjan leik með tvíburabróður sínum, Guðjóni Hrafni Lárussyni, sem hefur leikið einn í Garðabænum undan- farin ár. - óój Liðstyrkur til Stjörnunnar: Tvíburarnir sameinast á ný GUÐJÓN HRAFN LÁRUSSON Spilar á ný við hlið bróður síns. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI Hafþór Ingi Gunnars- son, fyrirliði Skallagríms, hefur ákveðið að spila með nágrönnun- um í Snæfelli í Iceland Express- deild karla í vetur en hann snýr þar með aftur í Hólminn eftir sjö ára fjarveru. Hafþór spilaði eitt tímabil með Snæfelli 2003-2004 og tók þá þátt í því að vinna fyrsta titil félagsins þegar Snæfell varð deildarmeistari. Hafþór var með 6,8 stig á 22,8 mínútum í leik þetta sögulega tímabil hjá Hólmurum. - óój Snæfellingar styrkja sig: Hafþór Ingi fer í Hólminn HAFÞÓR INGI GUNNARSSON Hefur farið í lokaúrslitin með bæði Snæfelli og Skallagrími. FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjóns- son mun ekki spila með Hudders- field í ensku C-deildinni í vetur en hann er að reyna að losna frá félaginu. Jóhannes Karl var í viðtali við vefsíðuna fótbolti.net í gær þar sem hann segir það líklegt að hann spili með Skagamönnum í Pepsi-deildinni næsta sumar. „Maður veit aldrei hvað verður en eins og málin standa núna eru allar líkur á að við séum að koma heim og mig persónulega langar að spila fyrir Skagann,“ sagði Jóhannes Karl í viðtalinu. - óój Jóhannes Karl Guðjónsson: Spilar líklega með ÍA 2012 JÓHANNES KARL Spilaði með ÍA í meistaraleik Steina Gísla á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR BJARKI HALLDÓRSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.