Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 23
KYNNING − AUGLÝSING fyrirtækjaþjónusta31. ÁGÚST 2011 MIÐVIKUDAGUR 3 Selecta er leiðandi á sviði fyrirtækjaþjónustu í Evrópu, stofnað í Sviss árið 1953. Í dag nota yfir 6 milljónir manna þjónustu Selecta daglega í 24 löndum. Selecta á Íslandi er í dag hluti af fyrirtækja-þjónustu Innnes ehf. sem er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins og fylgir ströngum gæðakröfum bæði hvað varð- ar þjónustu og vöruframboð. Fyrirtækjaþjón- usta Innnes er í fararbroddi í sölu á fjölbreyttu úrvali matvöru fyrir mötuneyti, kaffihús, hótel, stofnanir og fleiru. Selecta á Íslandi býður heildarlausnir í drykkjum fyrir vinnustaði sem henta nær öllum aðstæðum. Hvort sem um er að ræða móttöku- svæði fyrir viðskiptavini, kaffi- og drykkjar- stöðvar á vinnusvæði, afkastamikinn vélbún- að fyrir stór mötuneyti eða litlar vélar fyrir hár- greiðslustofur þá hefur Selecta lausnina. Það fer eftir vinnustöðum hvaða lausnir henta. Boðið er upp á mjög breitt úrval í vél- búnaði og kaffitegundum fyrir vinnustaði. Allt frá rekstrarlega hagkvæmum lausnum að kaffi- húsagæðum og allt þar á milli. Auk þess býður Selecta mjög fjölbreytt úrval af tei, safa, gosdrykkjum og rekstrarvöru sem tilheyrir heitum drykkjum á vinnustað. Hægt er að velja um nokkrar lausnir í hreinu og fersku vatni fyrir vinnustaðinn. Selecta á Ís- landi býður kæla sem eru tengdir við vatns- lögn og bjóða kælt og kolsýrt vatn. Auk þess er boðið upp á brúsakæla í 19 lítra vatnsbrúsum sem henta vel þar sem langt er í vatnslögn eða slæm vatnslögn er á vinnustað. Selecta á Íslandi býður hágæðalausnir fyrir hótel, kaffi- og veitingahús. Fyrir afkastamik- il kaffi- og veitingahús eru í boði fullkomnar greipavélar frá Ítalíu auk fylgihluta og kennslu fyrir starfsfólk til að tryggja rétta meðhöndlun og rétt gæði á kaffinu. Fyrir minni veitingahús og hótel er boðið upp á fjölbreytt úrval af vélum sem henta starfseminni. Með gæði kaffisins að leiðarljósi eru bæði í boði lausnir sem krefjast kunnáttu af hálfu notanda og auk þess einfald- ari lausnir þar sem minni kunnáttu er krafist. Á morgunverðarhlaðborðið er tilvalið að skoða heildarlausn frá Selecta sem innifelur sjálfsafgreiðsluvélbúnað fyrir kaffi, vatn og djús auk tes, sykurs og annarrar rekstrarvöru sem til þarf. Auk þess hefur Selecta upp á að bjóða úrval matvöru fyrir gesti í morgunmat. Einn af lykilþáttum starfsemi Selecta er að þjónustufulltrúar þess heimsækja viðskiptavini reglulega og afgreiða pantanir beint úr bíln- um. Ef viðskiptavin vantar skyndilega kaffi og tengdar vörur þá er ávallt hægt að treysta því að sölumenn Selecta eru ekki langt undan og bregðast hratt og örugglega við. Selecta þjónustar og rekur sjálfsala fyrir heita og kalda drykki, sælgæti, snarl og samlokur í samstarfi við mörg fyrirtæki. Þar sem sjálfsalar Selecta eru staðsettir sjá þjónustumenn að öllu leyti um reksturinn. Á vefsíðunni www.selecta.is má kynna sér nánar þjónustu Selecta og fá tilboð í drykkjar- lausnir fyrir vinnustaði. Selecta býður fjölbreyttar lausnir Selecta á íslandi er hluti af fyrirtækjaþjónustu Innnes ehf. sem er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins. UMSAGNIR VIÐSKIPTAVINA „Ef ætti að taka saman í fáum línum upplifun okkar á þjónustu og vörum Selecta myndi ég segja, skjót og góð þjónusta, aldrei vandamál og flott vara!” Kristín Sjöfn og Jóhann Úlfars, Icelandair „Hér í HR erum við í tölu- verðum viðskiptum við Selecta og er þjónustan frá þeim til fyrirmyndar. Mjög gott að eiga við þá samskipti og alltaf eru öll mál leyst með hraði og gleði. Þannig að ég er mjög ánægð með þjónustuna frá Selecta.” Ýr Gunnlaugsdóttir, Háskólinn í Reykjavík „Framúrskarandi, traust og góð þjónusta.” Olga Ingólfsdóttir, KPMG á Íslandi S: 5 85 85 85 SELECTA FERSK UPPLIFUN Í HVERT SINN WWW.SELECTA.IS KAFFI ESPRESSO CAPPUCCINO LATTE

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.