Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 38
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR26 Leikfélag í London ætlar að „hakka“ sig inn í talhólf sex einstaklinga og nota sem efnivið í jafnmörg frum- samin leikrit, sem verða flutt í lok september. Þetta kváðu vera fyrstu viðbrögð leikskáldanna við sím- hleranahneykslinu, sem reið götublaðinu News of the World að fullu fyrr í sumar. Vefútgáfa breska dagblaðsins Guardian greinir frá því að leikfélagið Theatre503 ætli að setja á svið sex frumsamin verk undir yfirheitinu „Hacked“. Leik- félagið hefur getið sér orð fyrir tilraunakennd verk með sterkri samfélagslegri skírskotun. Verkin verða byggð á skilaboðum í farsímum almennra borgara. Sex sjálfboðaliðar hafa samþykkt að veita leikfélag- inu aðgang að talskilaboðum sínum og heitið því að hvorki ritskoða né eyða nokkrum skilaboðum sem þeim berast. Blaðið hefur eftir Derek Bond, yfirleikstjóra verksins, að hugmyndin að því að gera leikrit um hleranahneykslið hafi kviknað strax í júlí þegar málið spurðist út. Í stað þess að gera sex örleikrit um hleranamálið hafi hópurinn viljað komast að rótum þess sem reitti fólk til reiði. „Þeir hleruðu ekki aðeins símann hjá frægðarfólki – þetta voru syrgjandi foreldrar, unglingar sem var saknað, allir. Hvað ef þetta hefði verið þú?“ Bond segir helsta úrlausnarefni leikskáldanna að geta í eyðurnar því oftar en ekki vanti samhengi skilaboð- anna. „Það kemur því til með að reyna á ímyndunar- afl þeirra en við sögðum þeim að hafa ekki áhyggjur af því að láta sannleikann spilla góðri sögu.“ 26 menning@frettabladid.is RUPERT MURDOCH Útgefandi News of the World átti í vök að verjast eftir að upp komst að blaðið hafði hlerað síma fólks. Enskt leikfélag frumsýnir sex leikrit sem sækja innblástur í málið í lok september. Sex leikrit um hleranahneykslið 5. SEPTEMBER 19.00 Opnun Reykja- vík Dance Festival - BÍÓ PARADÍS 20.00 Dansstutt- myndir, Prógramm I - BÍÓ PARADÍS 6. SEPTEMBER 20.00 Dansstutt- myndir, Prógramm II - BÍÓ PARADÍS 7. SEPTEMBER 17.00 Opnun sviðs- listahluta - TJARNARBÍÓ 17.30 TANZ - TJARNARBÍÓ 19.00 What a Feeling!+ Heilaryk TJARNARBÍÓ 20.00 Dedication - KEX HOSTEL 8. SEPTEMBER 12.15 Nú nú - LISTASAFN REYKJA- VÍKUR 15.30 Lost Ballerina - LISTASAFN ÍSLANDS 20.00 Dedication - KEX HOSTEL 19.00 What a Feeling! + Heilaryk - TJARNARBÍÓ 21.00 TANZ TJARNARBÍÓ 22.00 Court 0.9144m - TJARNARBÍÓ 9. SEPTEMBER 18.00 Dedication - KEX HOSTEL 19.00 Cosas + Retrograde - TJARNARBÍÓ 20.30 Belinda og Gyða + Vorblótið - TJARNARBÍÓ 22.00 Court 0.9144m– - TJARNARBÍÓ 10. SEPTEMBER 13.00/14.15/16.00 ” > a flock of us > ” - HAFNARHÚSIÐ 13.30/15.15 Lost Ballerina – Listasafn Íslands 17.00 Nú nú - HAFNARHÚSIÐ 15.00 Dansstutt- myndir, Prógramm III - BÍÓ PARADÍS 19.00 Cosas + Retrograde - TJARNARBÍÓ 20.30 Belinda og Gyða + Vorblótið - TJARNARBÍÓ 21.00 Club 0.569412 - BAKKUS 22.00 Tripping North - TJARNARBÍÓ 23.00 PARTÝ - TJARNARBÍÓ 11. SEPTEMBER 13.00 Námskeið með Mechtild Tellman - DANSVERKSTÆÐIÐ 16.00 Pallborðsum- ræður - KEX HOSTEL DANSHÁTÍÐ Í HEILA VIKU Danshátíðinni Reykjavík Dance Festival hefur vaxið fiskur um hrygg síðan hún var fyrst haldin árið 2002. Í ár verða fjórtán dansverk sýnd auk þess sem dans- stuttmyndir verða á dag- skrá, námskeið fyrir sviðs- listamenn og umræður. „Reykjavík Dance Festival er einn af hápunktunum í íslenska dans- samfélaginu og í raun eini vett- vangurinn fyrir sjálfstætt starf- andi danshópa og danshöfunda,“ segir Ásgerður G. Gunnarsdótt- ir, verkefnastjóri hátíðarinnar. Danshátíðin verður sett næsta mánudag í Bíó Paradís og að lok- inni setningu verða sýndar nokkr- ar dansstuttmyndir. „Við bryddum upp á þeirri nýj- ung í ár að sýna dansmyndir, en þær koma víða að, frá Frakklandi, Mósambík og Kanada svo eitthvað sé nefnt.“ Auk myndasýninganna í Bíó Paradís verða vídeóinnsetn- ingar þar, í Tjarnarbíói, á Dans- verkstæðinu og á Kex Hosteli alla vikuna. Á miðvikudag hefst sviðslista- hluti Reykjavík Dance Festival í Tjarnarbíói. Þar verða þrjú verk sýnd en það fjórða á Kex Hosteli. „Við breiðum úr okkur í miðbæn- um, sýnum í Tjarnarbíói, Lista- safni Reykjavíkur og Listasafni Íslands og Kex Hosteli,“ segir Ásgerður, en alls verða fjórtán dansverk sýnd á hátíðinni í ár. „Meðal íslenskra danshöfunda sem eiga verk í ár má nefna Láru Stefánsdóttur, Helenu Jónsdótt- ur, Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Steinunni Ketilsdóttur. Mörg verk- anna eru síðan samstarfsverkefni íslenskra og erlendra dansara,“ segir Ásgerður og bætir við að mikill áhugi sé á hátíðinni erlendis meðal þeirra sem fylgist með sam- tímadansi. „Svo má þess geta að við fáum góða erlenda gesti á hátíðina, dansarann og danskennarann Inaki Azpillaga og menningar- stjórnandann Mechtild Tellman sem verða með námskeið hér í næstu viku. Hægt er að kaupa armband á 9.900 sem gildir á alla viðburði hátíðarinnar en einnig er hægt að kaupa sig inn á staka viðburði. sigridur@frettabladid.is DANSAÐ UM ALLAN BÆ RAVEN Danshópurinn Raven, sem fram kemur á hátíðinni, var við æfingar í gær. Hann skipa frá vinstri Brogan Davison, Hrafn- hildur Einarsdóttir, Martina Francone, Eszter Göncz og Clara Folenius. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Bar hátíðarinnar er á Kex Hostel. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.reykjavikdancefestival.is Hrollvekjan Ég man þig eftir Yrsu Sig- urðardóttur er mest selda bókin það sem af er ári, samkvæmt uppsöfnuðum met- sölulista bókaversl- ana. Af tíu mest seldu bókum ársins eru tvær íslenskar skáld- sögur, fimm lífsstíls- og uppskriftabækur og þrír þýddir reyf- arar. Bæði Þorbjörg Hafsteinsdóttir og Friðrika Hjördís Geirsdóttir eiga tvær bækur á listanum yfir tíu mest seldu bækur ársins. Yrsa mest seld á árinu YRSA SIGURÐARDÓTTIR Ég man þig og Ljósa eftir Kristínu Steinsdóttur eru einu íslensku skáldsögurnar á listanum yfir tíu mest seldu bækurnar það sem af er ári. Báðar komu þær út í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG MEST SELDU BÆKURNAR ÞAÐ SEM AF ÁRI 1 Ég man þig - Yrsa Sigurðardóttir 2 10 árum yngri á 10 vikum - Þorbjörg Hafsteinsdóttir 3 Djöflastjarnan - Jo Nesbø 4 Bollakökur Rikku - Friðrika Hjördís Geirsdóttir 5 Betri næring – betra líf - Kolbrún Björnsdóttir 6 Ljósa - Kristín Steinsdóttir 7 Léttir réttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir 8 Mundu mig, ég man þig - Dorothy Koomson 9 Morð og möndlulykt - Camilla Läckberg 10 Matur sem yngir og eflir - Þorbjörg Hafsteinsdóttir Afsláttar- dagur Rauðarárstígur 10 105 Reykjavík Sími: 562 4082 Yggdrasill verslun er staðsett við Hlemm www.yggdrasill.is Landsins mesta úrval af lífrænum vörum 10% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM Starfsemi HL stöðvarinnar í Reykjavík hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 5. september. Vinsamlega staðfestið þátttöku í síma 561 8002 eða á hlstodin@simnet.is. HL STÖÐIN HL STÖÐIN Endurhæfingarstöð hjarta- og lungnasjúklinga Hátúni 14 – 105 Reykjavík – Sími 561 8002 NÝ LJÓÐABÓK EFTIR EYÞÓR ÁRNASON Ljóðabókin Svo ég komi aftur að ágústmyrkrinu eftir Eyþór Árnason kom út í gær á vegum Uppheima. Eyþór vakti athygli þegar hann steig fram á vettvang skáldskaparins með sinni fyrstu bók, Hundgá úr annarri sveit, haustið 2009 og hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir. Svo ég komi aftur að ágústmyrkrinu er 90 blaðsíður að lengd.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.