Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 28
KYNNING − AUGLÝSINGfyrirtækjaþjónusta MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 20118 GOTT VINNUUMHVERFI SKIPTIR MÁLI Afköst í vinnu eru vafalaust mun meiri hjá fólki sem líður vel í vinnuumhverfi sínu en því sem líður illa. Því er nauðsynlegt fyrir vinnuveit- endur að skoða vel hvernig best megi hlúa að starfsmönnum sínum. Hávaði Ef hávaði á vinnustað er verulegur er gott að fá mats- mann til að mæla hávaðann til að sjá hvort hann er innan marka. Mikill og viðvarandi hávaði getur skaðað heyrn og auk þess aukið á streitu. Til eru ágætar lausnir til að minnka hávaða, til dæmis að útvega starfsmönnum eyrnahlífar og láta starfsmenn skiptast á að vinna á hávaðasömum hlutum vinnusvæðisins. Loftræsting Ferskt loft er afar mikilvægt. Bæði fyrir betri öndun, til að koma í veg fyrir of mikinn hita og til að tryggja minni mengun í loftinu. Hiti Gott er að koma fyrir hitamælum á vinnusvæðum til að fylgjast með hvort vinnu- umhverfið er of heitt eða kalt. Þegar unnið er í köldu umhverfi ættu starfsmenn að fá viðeig- andi hlífðarklæðnað frá vinnuveit- endum. Lýsing Lýsing er mikil- vægari en margir halda. Blikk- andi flúorljós geta ært óstöð- ugan, of dimm ljós geta reynt um of á augun og of björt lýsing veldur sumum höfuðverk. Streita Margvíslega streituvalda er að finna í vinnuumhverfi fólks. Streita getur orðið vegna álags, vinnuhraða, endurtekninga og tilbreytingarleysis. Streitu- valdar eru persónubundnir en vinnuveitendur skyldu vera vakandi fyrir þeim og leysa úr ef möguleiki er. B R Ú Ð U H E I M A R B O R G A R N E S I B R Ú Ð U H E I M A R B O R G A R N E S I Skúlagata 17 Borgarnesi Sími 530 5000 bruduheimar.is G E R Ð U D A G I N N E F T I R M I N N I L E G A N ! Brúðuheimar bjóða upp á frábæra aðstöðu til að taka á móti stórum sem smáum hópum. Ævintýralegt umhverfi við sjóinn gerir daginn að eftirminnilegri upplifun. Við setjum saman þína dagskrá, s.s. leiksýningu, leiðsögn um safnið, gönguferðir og fræðslu. Fallegur veitingastaður við sjávarströndina með útiverönd og góð fundaraðstaða. Hafðu samband í síma 530 5000 eða á hildur@bruduheimar.is og við setjum saman ævintýrið þitt! BRÚÐUHEIMAR eru staðsettir á sérstökum stað í Borgarnesi sem ber heitið Englendingavík. Húsin þjónuðu á árum áður Kaupfélagi Borgfirðinga en voru búin að standa auð í langan tíma. Þau hafa nú öll verið endurnýjuð af mikilli natni. BERND OGRODNIK brúðugerðameistari hefur til fjölda ára glatt Íslendinga með leiksýningum sínum, bæði fyrir börn og fullorðna. Meðal sýninga hans eru Umbreyting, Pétur og úlfurinn, Einar Áskell og nú síðast Gilitrutt. G E R Ð U D A G I N N E F T I R M I N N I L E G A N ! Brúðuheimar bjóða upp á frábæra aðstöðu til að taka á móti stórum sem smáum hópum. Ævintýralegt umhverfi við sjóinn gerir daginn að eftirminnilegri upplifun. Við setjum saman þína dagskrá, s.s. leiksýningu, leiðsögn um safnið, gönguferðir og fræðslu. Fallegur veitingastaður við sjávarströndina með útiverönd og góð fundaraðstaða. Hafðu samband í síma 530 5000 eða á hildur@bruduheimar.is og við setjum saman ævintýrið þitt! HVATAFERÐIR OG HÓPEFLI Góð samstaða og andi meðal starfsfólks eru mestu verðmæti fyrirtækja. Því skal huga að því að viðhalda andanum með ýmsum hætti. Til dæmis eru teiti tilvalin til að lyfta skapinu en einnig er hægt að gera margt annað þar sem ekki er haft vín um hönd. Til dæmis eru golfmót fyrirtækja ávallt vinsæl en einnig má skipu- leggja veiðiferðir, hestaferðir eða jafnvel skella öllum hópnum í magadans. Ýmis fyrirtæki bjóða upp á hópefli og hvata- ferðir. Hópefli er notað til að auka samheldni innan hóps, bæta traust og fá vinnufélaga til að upplifa hver annan í nýju ljósi. Þá er gjarnan fléttað saman samvinnuþrautum og fyrir- lestrum. Hvataferðir eru einnig vinsælar. Tilgangurinn er sá sami, að auka þekkingu, skemmta starfsfólki og byggja upp liðsheild.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.