Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 25
KYNNING − AUGLÝSING fyrirtækjaþjónusta31. ÁGÚST 2011 MIÐVIKUDAGUR 5
Þjónusta við fyrirtæki þarf að vera persónuleg og það er okkar hlutverk að laga okkur
að þörfum þeirra. Okkar sérstaða
hefur falist í sérsniðnum fjarskipta-
lausnum fyrir fyrirtæki af öllum
stærðum og okkur er mikið í mun
að standa okkur vel,“ segir Jóhann
Másson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækjasviðs Vodafone. Hann segir
hlutdeild Vodafone á fyrirtækja-
markaði hafa vaxið jafnt og þétt
undanfarin ár og staðan sé mjög
sterk. „Mörg af stærstu fyrirtækjum
og stofnunum landsins hafa valið
okkur; orkufyrirtæki, bankar, trygg-
inga- og olíufélög, smásölurisar og
sex af sjö stærstu sveitarfélögum
landsins svo dæmi séu nefnd. Okkur
þykir vænt um að mikilvægar stofn-
anir í samfélaginu treysti okkur fyrir
svo mikilvægum þætti í sinni starf-
seminni,“ bætir hann við.
Krónísk sjálfsskoðun
Jóhann segir það skipta miklu máli,
að fyrirtæki sem þjónusta önnur
haldi sér á tánum og sofni aldrei
á verðinum. „Samkeppnin á fjar-
skiptamarkaðnum er hörð og ef við
stöndum okkur ekki, þá er viðbú-
ið að viðskiptavinirnir leiti annað.
Við getum ekki leyft okkur neina
sjálfumgleði og þurfum stöðugt að
skoða okkar vinnulag í þeim tilgangi
að bæta þjónustuna. Með krónískri
sjálfsskoðun og vilja til að gera allt-
af betur getum við eignast ánægð-
ustu viðskiptavini á Íslandi og það
er markmiðið sem drífur okkur
áfram,” segir Jóhann. „Liður í því
er að bjóða þjónustu í takt við þarfir
viðkomandi viðskiptavinar óháð at-
vinnugrein og stærð“
Tækifæri í breyttum aðstæðum
Rekstrarumhverfi fyrirtækja á Ís-
landi hefur um margt verið erf-
itt á undanförnum árum. Jóhann
segir þá staðreynd koma fram með
ýmsum hætti. „Fyrirtæki leggja nú
meira upp úr því en áður að fjar-
skiptakostnaðurinn sé gegnsær og
starfsmenn þeirra geti ekki stofn-
að til óvænts kostnaðar. Við höfum
komið til móts við þær þarfir með
því að bjóða fast verð fyrir tiltekna
þjónustu, þar sem notkun er inni-
falin í föstu mánaðarlegu gjaldi. Það
hefur mælst vel fyrir, auk þess sem
við aðstoðum fyrirtæki við að hag-
ræða með öðrum hætti. Við reyn-
um að finna hagkvæmustu þjón-
ustuleiðina fyrir hvert og eitt þeirra
og getum boðið margvíslegar lausn-
ir. Til dæmis hafa stór og smá fyrir-
tæki hætt rekstri á eigin símstöðv-
um og falið okkur að annast þá
hlið rekstrarins gegnum svokallað
Símaský Vodafone. Þar er í rauninni
um að ræða hýsta stafræna símstöð
(online), sem er rekin í okkar kerf-
um og viðskiptavinurinn þarf ekki
að fjárfesta í dýrum búnaði með til-
fallandi rekstrarkostnaði.“
Traust er forsenda fyrir góðu við-
skiptasambandi
Jóhann segir mikilvægt að sýna
frumkvæði í þjónustu við fyrirtæki,
í stað þess að bíða eftir því að þau
hafi samband. „Við lítum svo á að
það sé sameiginlegur hagur okkar
og viðskiptavina að þeir fái góða
þjónustu á sanngjörnu verði, að
viðskiptin séu gagnsæ og fyrirtæki
noti þær þjónustuleiðir sem henta
þeim best. Þannig skapast heilbrigt
og gott viðskiptasamband sem báðir
aðilar njóta góðs af til langs tíma.“
Frumkvæði og umhyggja
fyrir viðskiptavinum
Vodafone leggur sig fram um að veita góða þjónustu á fyrirtækjamarkaðnum enda samkeppnin hörð. Á meðal viðskiptavina Vodafone eru mörg af
stærstu fyrirtækjum landsins og sveitarfélög.
Jóhann segir mikilvægt að sýna frumkvæði í þjónustu við fyrirtæki, í stað
þess að bíða eftir því að þau hafi samband. MYND/GVA
Vodafone veitir fyrirtækjum og einstaklingum alhliða f jarskiptaþjónustu. Um
6.500 fyrirtæki um allt land eru í
viðskiptum við Vodafone. Þeirra á
meðal eru allir helstu neyðar- og
viðbragðsaðilar landsins; Neyðar-
línan, Landsbjörg, Landspítalinn,
Landhelgisgæslan og fleiri.
Tíu af tuttugu stærstu fyrirtækj-
um landsins hafa valið Vodafone
og sex af sjö stærstu sveitarfélög-
unum. Jóhann Másson, fram-
kvæmdastjóri hjá Vodafone, segir
þá staðreynd tala sínu máli um
getu og þjónustulund Vodafone.
Fyrirtækið hefur mikla reynslu
af að sérsníða lausnir fyrir stærri
fyrirtæki og nýtir þá þekkingu við
að byggja upp þjónustuleiðir fyrir
minni fyrirtæki.
Vodafone einfaldar hlutina
með hagkvæmum og öruggum
lausnum fyrir hvert fyrirtæki.
Með réttri nálgun og markvissri
ráðgjöf fyrir-tækjasviðs Voda-
fone gætir þú mögulega lækkað
fjarskiptakostnað þíns fyrirtæk-
is verulega.
Hafðu samband við fyrirtækja-
þjónustu Vodafone í síma 599-
9500 eða sendu póst á firma@
vodafone.is og Vodafone finnur
lausn sem hentar þínu fyrirtæki.
Vodafone: þar sem
fagmennirnir versla
Um 6.500 fyrirtæki um allt land eru í viðskiptum við Vodafone. Þeirra á meðal eru
allir helstu neyðar- og viðbragðsaðilar landsins.