Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1976, Síða 32

Faxi - 01.12.1976, Síða 32
allra vinsamlegast, þegar við lögðum leið okkar að Hátúni 4 í Keflavik, rúm- um fjórum árum eftir þennan atburð og inntum hana nánar að tildrögum þess að hún tók lagið fyrir þjóðhátíðar- gestina. Sungum annað lag en Júdasarnir „Við vinkonurnar stóðum fyrir neðan hljómsveitarpallinn og sungum eins hátt og röddin leyfði. Kannski höfum við eitthvað truflað „Judasana" sem voru að spila og syngja fyrir mannfjöldann. Við sungum nefnilega annað lag en þeir spiluðu. Allt í einu kallaði Maggi Kjart- ans til okkar; „Stelpur, viljið þið ekki RÆTT VIÐ RUT REGINALDS Söng í kápunni með ullarvettlinga á höndunnm INN Á FVRSTU PLÖTUNA „Vertu bara róleg góða mín,“ svaraði Kjartan Sigtryggsson lögregluþjónn þegar kona hans Rikey hringdi til hans á varðstofuna, áhyggjufull vegna þess að ein dóttirin hafði ekki skilað sér heim á réttum tíma, „hún er þessa stundina upp’ á pallinum að syngja með hljóm- sveitinni „Júdas" sem er að skemmta þjóðhátiðargestunum.” Kjartan er gamansamaur í eðli sínu, en Ríkey vissi hreint ekki hvort hún ætti að taka þessu sem spaugi. Gat það verið að telpan væri farin að troða upp með hljómsveit, gaula eitthvað fyrir fólkið sem var að njóta 17. júni hátíðar- haldanna? Öllu geta krakkar svo sem tekið upp á. Ríkey snaraði sér niður í bæ til að gá að telpunni. Þegar hún nálgaðist útisamkomusvæðið gat hún ekki heyrt betur, en að rödd dótturinnar ómaði um alla götuna. Kjartan hafði þá ekki verið að spauga, en hvernig gat telpunni komið annað eins í hug og þetta, að arka upp á pallinn og syngja fyrir hundruð manna, án foreldranna samþykkis. Hver var svo ónærgætinn að láta slíkt líðast, af þeim sem samkom- unni stjórnuðu? Þessar og margar fleiri spurningar flugu gegnum huga móður- innar, sem óttaðist að stelpan hefði orð- ið sér til minnkunar. En óttinn var ástæðulaus. Fólkið tók hinum unga og óvænta skemmtikrafti með fögnuði. En hvernig atvikaðist það að þessi litla hnáta, hún Rut, prílaði upp á pallinn og hóf upp raust sína með hljómsveitinni? Enginn getur svarað því gleggra en hún sjálf og það gerði hún FAXI — 32

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.