Faxi - 01.12.1976, Síða 39
EINAR KRISTINSSON
Hlutdeild Suðurnesja
fer vaxandi
Flest útgerðarfyrirtæki eru að mestu
rekin fyrir lánsfé og er vaxtabyrðin
þeim algjörlega ofviða.
Ég tók með mér skýrslu um síðustu
veðsetningu hjá því fyrirtæki sem ég
veiti forstöðu. Þar er um framleiðslu að
ræða frá 21. til 31. október síðastliðinn.
Það sem veðsett er;
Freðfiskur fyrir 4.454.000
Skreið 488.000
Saltfiskur 202.000
Freðsíld 422.00
Seðlabankalán samt. 5.566.000
Viðskiptabankal. 28% 1.558.000
Samtals 7.124.000
Keyptur afli í þessa framleiðslu var
kr. 6.808.210.
Er þá mismunur á keyptum afla og
afurðalán kr. 316.000 — umbúðir eru
teknar af veðsetningu kr. 407.000.
Vinnulaun við framleiðslu úr þessum
afla voru kr. 1.7000.000. Vantar þá
kr. 1.791.000 til að hægt sé að greiða
afla og vinnulaun.
Eins og á þessu sést er útilokað að
halda rekstrinum gangandi nema með
óeðlilegum skuldum við viðskiptamenn.
Það hefur áreiðanlega einhverntíma
verið sett á laggirnar nefnd, sem hefur
haft óverðugra verkefni en að rannsaka
hvernig hægt er að halda svona rekstri
gangandi.
Mér er það sönn ánægja að sjá al-
þingismenn Reykjaneskjördæmis hér á
þesum fundi, því að sennilega vita þeir
ekkert um þá erfiðleika sem við erum
að reyna að skýra frá um ástandið hjá
sjávarútveginum á Suðurnesjum, — að
minnsta kosti hef ég ekki orðið var
við, að þeir hefðu miklar áhyggjur af
ástandinu.
Benedikt Jónsson
Þar sem mér hefur verið falið að hafa
framsögu hér á þessum fundi um ástand
og horfur í fiskvinnslu á Suðurnesjum,
þá vil ég hefja mál mitt á saltfiskfram-
leiðslunni.
Árið 1975 voru 60 saltfiskverkendur
hér á Suðurnesjum, sem verkuðu um 17
þúsund tonn af saltfiski. Þar af voru
2000 tonn af fullverkuðum fiski og rúm-
lega 1.200 tonn af ufsaflökum. Heildar-
framleiðsla landsmanna nam um 44.000
tonnum og varð því hlutdeild Suður-
nesja 32%. Árið 1975 náði framleiðslan
að komast í 48% af heildarframleiðsl-
unni. Hér sést glöggt, hversu þorskafli
hefur minnkað hin síðari ár.
Saltfiskurinn hefur ekki náð því verði
sem hann var í 1974 og er það um
121/2% lægra í dag miðað við banda-
ríkjadollar. Þrátt fyrir þessa lækkun
hefur tekist. að halda uppi arðbærum
rekstri á þorSkfiskframleiðslunni, þann-
ig að hún getur staðið við allar skuld-
bindingar, sem hún verður að taka á
sig á hverjum tíma. Þessu ber að þakka
að allir framleiðendur hvar sem er á
landinu hafa sömu hagsmuna að gæta,
og með samheldni hefur þeim tekist cð
tryggja rekstrarafkomu í þessari grein.
Árið 1968 var saltfiskurinn tekinn inn
í Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins, og er
inneign saltfiskdeildar nú um 2,7 millj.
Ef til kæmu einhverjar verðsveiflur á
næsta ári, þá ætti saltfiskurinn að geta
haldið sínum hlut í fiskvinnslunni. Full-
verkaður saltfiskur hefur síðustu tvö
árin átt við mikla erfiðleika að etja og
hefur þar verið um hallarekstur að
ræða. Hlutdeild Suðurnesja í verkuðum
saltfiski hefur farið vaxandi á undan-
förnum árum og var komin upp í 72,4%
af þurrfiskframleiðslu landsmanna.
Árið 1976 hófst að nýju skreiðarverk
un í stórum stíl eftir áralangt hlé vegna
markaðserfiðleika í Nígeríu, en þá
höfðu gamlar birgðir af skreið legið hér
um árabil og skapað framleiðendum
mikla erfiðleika, en afskipanir til ítalíu
höfðu gengið eðlilega. Árið 1975 var
framleiðslumagn um 1.200 tonn og gekk
sala og útflutningur framleiðslunnar
mjög vel.. Var þá einnig hægt að af-
setja allar gamlar birgðir á góðu verði,
þannig að útlit fyrir skreiðarverkun á
þessu ári var mjög gott. Þetta nýttu
framleiðendur sér, sem sést best á því,
að á vetrarvertíð 1976 voru framleidd
2.700 tonn af skreið, en 1975 tæp 700
tonn. Þar sem skreiðarverkun hafði svo
til legið niðri um árabil, þá þurftu fram-
leiðendur að endurnýja og byggja upp
hjalla, þar sem eðlileg endurnýjun og
viðhald hafði legið niðri um árabil. Þessi
endurnýjun var fjárfrek og framleiðend-
ur lögðu sig alla fram til þess að koma
hjöllum upp. Þá var talið að andvirði
skreiðar kæmu óskert til framleiðenda.
Því kom það flatt upp á menn, þegar
skreiðin var tekin inn í Verðjöfnunar-
sjóð s.l. vor, en ekki var reiknað með
því fyrr en á árinu 1977. Slíkar ákvarð-
anir þarf að taka í byrjun vertíðar, en
ekki í vertíðarlok, eins og þarna gerð-
ist.
Sölur í ár gengu eðlilega framan af
árinu, en nú er svo komið að innflytj-
endur í Nígeríu hafa ekki tilskilin leyfi
og hefur því innflutningur þangað legið
niðri um tíma. Eðlileg afskipun hefur
átt sér stað til ítalíu. Nígeríu-markað-
urinn mun skýrast á næstu vikum, þeg-
ar fulltrúar framleiðenda koma þaðan
aftur, en þeir fóru til Nígeríu út af
FAXI — 39