Faxi - 01.12.1976, Blaðsíða 41
Söngfuglinn minn er floginn
á burt í bláinn,
og blómin sem glóðu hnigin
í gljúpan svörð.
Er regnskúrir haustsins
falla á fölgræn stráin
þau fagna ei lengur,
en drúpa að votri jörð.
Sumar er liðið, haustið
við hús þitt stansað,
hamingjuvonin fjötruð
við rökkvað hvel.
Samt ef þú spyrð, þá
eigi þér verður ansað.
— örlög þíns lífs, við
fæðingu búið hel.
Úrsvalir vindar blása
að barmi þínum,
og bera þér fregn að runnið
sé gróskuskeið.
En vorþrána flestir bera
í brjóstum sínum
og birtu sem innra fellur
á gengna leið.
Jóhann Jónsson
Þrátt fyrir að afli sé nú vel unninn,
þá má enn bæta við fullnýtingu hans.
Það þarf að vera skilningur og velvild
hjá öllum, sem standa að sjávarútvegi
að leysa hvert vandamál, sem upp kem-
ur hverju sini, án þess að landshluta-
orjur og pólitík skipi aðalsess þess.
lögð fram á fundi
um sjávarútveg Suðurnesjamanna
7. nóvember 1976
1. Taka ber niðurstöður fiskifræð-
inga, um ástand fiskistofna, af fyllstu
alvöru.
Allra ráða verður að leita til þess að
draga úr sókn í þorskstofninn og þá
fyrst og fremst með því að beina flotan-
um í veiðar á öðrum fiski.
2. Tryggja verður að allur sjávarafli
sé nýttur sem allra bezt, og koma verð-
ur tafarlaust í veg fyrir að verðmætum
eins og lifur, hrognum og svokölluðum
úrgangsfiski sé hent í sjóinn.
3. Allt eftirlit með veiðum sé gert
virkara en verið hefur, og tryggt að
settum reglum um veiðar og veiðarfæri
sé stranglega framfylgt. Flotvörpuveið-
ar á þorski verði nú þegar bannaðar.
4. Nefnd skipuð aðilum frá veiðum,
vinnslu, Hafrannsóknarstofnun og Fiski-
félagi Islands, sé starfandi til ráðgjafar
fyryir sjávarútvegsráðuneytið, varðandi
reglugerðir o.fl., sem að fiskveiðum lýt-
ur.
5. Nú þegar verði gerðar ráðstafanir
til að létta af sjávarútveginum óbæri-
legum álögum, svo sem söluskatti og
tolli af vélum og tækjum til fiskvinnslu,
háum vöxtum og óhóflegum trygginga-
iðgjöldum o.fl.
6. Fundurinn krefst þess, að nú þeg-
ar verði þeirri öfugþróun snúið við, sem
hefur orðið í launamálum seinni ár. Fólk
í framleiðslugreinum ber sífellt minna
úr bitum miðað við opinbera starfs-
menn og þá sem vinna við framkvæmdir
á vegum þess opinbera.
Óðaverðbólga og dekur við hvers kon-
ar kröfuhópa, gera sífellt óraunhæfara,
að laun þeirra einna, er starfa við sjáv-
arútveginn séu miðuð við útflutnings-
verðmæti.
Fundurinn telur nauðsynlegt, að sjáv-
arútvegsfólkið í landinu, en þá er átt
við sjómenn, útvegsmenn, fiskverkend-
ur og verkafólkið í fiskvinnslunni,
myndi með sér órofasamstöðu um stór-
bætta aðstöðu sjávarútveginum til
handa svo hann verði fær um að greiða
hæstu fáanlegu laun á vinnumarkaði
launamanna.
7. Útvegsmenn og fiskverkendur á
Suðurnesjum hafa á undanförnum ár-
um lagt stóran skerf af mörkum í þeirri
uppbyggingu og framþróun, sem átt
hefur sér stað vítt og breitt um landið.
En það hefur valdið miklum erfið-
leikum að stefna ráðamanna, ásamt
framgöngu þingmanna um stefnuna í
svonefndri byggðaþróun, hefur ekki náð
til Suðurnesja. I því sambandi minnir
fundurinn á stöðvun lána úr byggða-
sjóði til skipakaupa og endurbóta á
fiskverkunarstöðvum Suðurnesjamanna
um langan tíma.
Þessi mismunun olli því, að Suður-
nesjamenn áttu vart kost á öðru en
kaupa notaða báta frá þeim stöðum,
sem notið höfðu fyrirgreiðslu sam-
kvæmt þessari svokölluðu byggðaþróun.
Þetta er ástæðan fyrir því, að á Suður-
nesjum er nú hæstur meðalaldur báta
í landinu.
Um árabil hafa Suðurnesjamenn,
möglunarlítið unað því, að vera settir
hjá varðandi uppbyggingu í sjávarút-
vegi.
Nú er svo komið, að rekstur veiða
og vinnslu á þessu svæði, er kominn í
algjört þrot.
Fundurinn beinir því þeirri eindregnu
áskorun til sjórnvalda, að þau nú þegar
geri ráðstafanir til þess að útvega fjár-
magn, svo sjávarútvegur Suðurnesja-
manna megi komast yfir þetta erfið-
leikatímabil, sem með rökum hefur ver-
ið sýnt fram á, að bitnar með meiri
þunga á þeim en öðrum landsmönnum.
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og
gæfuríks komandi árs.
Verzl. Þorstcinsbúð, Keflavík
FAXI — 41