Faxi - 01.12.1976, Page 58
Þarna er verðugt verkefni fyrir mat-
vælafræðinga og annað menntað fólk
á þeim sviðum. Spærlingurinn heldur
sig í hafsvæðinu milli Skotlands og ís-
lands. Oft höfum við rekist á hann fyrir
austan í nótina, geysimikið magn, og
einnig kemur hann í togveiðafæri allt
árið. Þarna eigum við í Seli. Menn kalla
spærlinginn skítfisk, bræðslufisk, en
gæti hann ekki komið að góðu gagni
í matvælahringrásinni? Orðið góð nær-
ing handa skepnum sem við étum kjötið
af, þótt auðvitað væri hentugast að geta
nýtt hann beint.“
Ofveiði og misheppnað klak
olli síldarleysinu.
Að framan sagði Eggert að síldar-
stofninn væri vaxandi, svo að beinast
liggur við að spyrja hann nánar um
þann fisk, sem einu sinni var kallaður
silfur hafsins, — af hverju hvarf hann,
réttir hann við, getum við sótt í hann
án ofveiði? Þarna komum við ekki að
tómum kofanum.
„Síldin hvarf vegna ofveiði og ytri
skilyrða í sjónum. Austfjarðarsíldin og
sú sem var fyrir norðaustan, færðist
sífellt austar og austar út í hafið, og
gekk því minna að landinu vegna ytri
skilyrða í sjónum. Árgangarnir voru
sterkir,sem gengið var í miskunnarlaust,
bæði við og Norðmenn, svo og Rússar,
en þeir voru ekki margir. Útslagið á
því að hún hvarf kom frá Norðmönn-
um, þeir drápu ungviðið á fyrstu tveim-
ur árunum, tveggja ára síld, þurrkuðu
hana upp við Norður-Noreg. Ofan á
þetta bættist svo að klakið mistókst við
Noreg í nokkur ár, vegna óhagstæðra
skilyrða í sjónum. Stofninn er samt
ekki útdauður. Hann er að rétta við
aftur, en tíminn leiðir í ljós hve sterkur
hann verður. Algert bann er nú við því
að veiða þennan norsk-íslenska stofn,
sem gengur eftir vetrarhrygninguna við
norsku ströndina hingað til íslands í
ætisleit og við vorum að veiða á sumrin
fyrir norðan, þessi stóra fallega síld.“
Kemur norðurlandssíldin aftur?
Hvort síldin kemur aftur í sinni
gömlu mynd, í vaðandi torfum, fyrir
Norðurlandi, eins og á gömlu góðu dög-
unum, er erfitt að spá. En ef við
fjöllum svolítið nánar um síldina, þá er
fjögurra ára síld orðin um 30 cm. og
þá síld ættum við að geta veitt hér við
land, en styrkleiki stofnsins fer auð-
vitað eftir því hvernig klakið hefur tek-
ist við Noreg. Þar í landi er mikið deilt
um stærð norsk-íslenska stofnsins.
Kunnugir halda því fram, að stofninn
sé sterkari en fiskifræðingarnir ætla,
enda er mjög erfitt að ákvarða stærð-
ina, því síldin er dreifð. Margir halda
því fram, að síldin sé öðrum fiskum
viðkvæmari fyrir breyttum skilyrðum
í sjónum, — um það vil ég ekki fjöl-
yrða, en það er ekkert öðru vísi með
síldina og önnur kvikindi, hún sækir
þangað sem ætið er, fer á sínar hefð-
bundnu hrygningarstöðvar og dreifir
sér síðan.“
Til manneldis, en ekki bræðslu.
,,Við ísland gengur síldin frá suð-
austur-horninu austan úr bugtum, —
íslenski stofninn, þar sem hún heldur
sig á veturna, og að suðvesturhorninu,
aðallega í Faxaflóa, út af Garðskaga
og Ssndgerði, þar sem hún hygnir. Að
því búnu þokast hún austur aftur og
heldur sig yfir veturinn mest í Meðal-
landsbug og Mýrarbug, við Hrollaugs-
eyjar að Ingólfseyjar. Togararnir hafa
orðið varir við síldina út af fætinum,
sem kallað er, við Reyðarfjarðardýpið,
þar á kantinum í troll, sem var loðið
af stórsild. Þar gæti verið um norsk-
ísl. stofninn að ræða; þetta var á þeim
árstíma og á þeim slóðum sem síldin
hélt sig, — á þeim stað sem kallaður
var „rauða torgið", — syðst á því,.
Undir ströngu eftirliti, eins og verið
hefur, ætti ekkert að vera því til fyrir-
stöðu að mikil síld verði hér við land,
en þá verðum við líka að nýta hana til
manneldis; mér finnst ekki til greina
koma að veiða hana í bræðslu.“
Tvö hundruð mílurnar og trollin.
Friðun, fiskvernd og landhelgin eru
orð sem tíðum hafa heyrst koma af
vörum fólks á undanförnum mánuðum.
Varla er hægt að Ijúka svo rabbi við
Edda, án þess að drepa örlítið á þessa
þætti.
„Tvö hundruð mílurnar hafa þegar
sannað mikilvægi sitt; það kom strax
fram á meðan á þorskastríðinu stóð.
Bretarnir héldu sig þá mikið fyrir aust-
an, eins og menn muna, en þá jókst
aflinn stórlega fyrir vestan og hefur
verið með mesta móti. Ástandið fyrir
austan var hins vegar hörmulegt, enda
drápu þeir hvern einasta titt sem þeir
komust í færi við út af norð-austur og
austurlandinu. Hvað okkur sjálfa áhrær-
ir, þá verðum við að fara gætilega með
veiðitækin á uppeldis- og hrigningar-
svæðunum. T.d. eins og með dragnót-
ina. Hún er mjög umdeild, en ef það er
hægt að drepa kolann eingöngu án þess
að spilla lífríkinu eða ungviðinu, er
ekkert við því að segja, en sannanlega
hefur Faxaflóa verið mikil bölvun að >
dragnótinni. Þegar hún var allsráðandi
þurrkaði hún svo til allan fisk í flóanum,
en þegar hún hefur verið leyfð af og til
eftir friðun, koma alltaf dauðir kaflar.
Samt má ekki ætla að Faxaflói sé eina
uppeldistsöðin. Fiskurinn gengur sólar-
sælis kringum landið eftir hrigninguna
við suðvesturlandið, og berst með haf-
straumum inn í firði og voga á leiðinni.
Mér sýnist fiskgengd vera mikil í Faxa-
flóa, það sýnir aflinn sem smábátarnir
komu með að landi í sumar.“
Skuttorgararnir hafa komið
að miklu gagni.
„Fyrst við erum búnir að fá 200 mil-
urnar svo gott sem viðurkenndar, er
togaraflotinn ekki of stór. Skuttogar-
arnir hafa sýnt að þeirra var full þörf.
Atvinnulífið hefur dafnað mjög mikið
út um landið með komu þeirra, sérstak-
lega þeim stöðum sem áttu í erfiðleik-
um eftir að síldin hvarf. Deila má kann-
ski um stærðir þeirra og hagkvæmni,
en ég er andvígur þeim hugsunarhætti,
sem er áberandi í okkar þjóðfélagi, að
vera á móti þeim atvinnugreinum eða
tækjum sem aðrir reka eða eiga. Ég
hef aldrei hugsað mér að gerast tog-
araeigandi eða skipstjóri, en mér finnst
gott til þess að vita, að þeir koma að
miklu gagni í þjóðarbúskapnum.“
Kröfuharðari á veiðarfæri
á eigin útgerð en annarra.
Eggert hefur lifað hin ýmsu skeið í
útgerð. Verið skipstjóri hjá öðrum, en
nú á hann Gísla Árna að hálfu leyti,
hvort hlutskiptið finnst honum betra?
„Ég hef aldrei verið neitt annað en
sjómaður, þótt ég eigi helminginn í ^
bátnum, og ég hugsa ávallt eins og sjó-
maður en ekki sem útgerðarmaður.
Kannski hef ég skaðast á því peninga-
lega, en ég hugsa ekki um slíkt. Eftir
að ég eignaðist hlut í bátnum, hef ég
verið mun frakkari í veiðarfærakaupun-
um og viljað meira til hlutanna en áður,
þegar ég var skipstjóri hjá öðrum. Ég
sanka þessu að mér, alveg öfugt við þá
FAXI — 58