Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 21

Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 21
SKÓLAR Á SUÐUR- NESJUM Skemmtunin var tvískipt, fyrst fyr- ir 6 ára nemendur og nemendur 1. og 2. bekkjar og síðan fyrir nem- endur 3.-5. bekkjar. Skemmtiat- riði voru sýnd í Félagsbíói. Að lok- inni þeirri sýningu var farið í íþróttahús skólans og þar dansað. Einnig var félagsaðstaða skólans opin og voru þar til staðar ýmis leik- tæki og myndband. 9. Umsjón Umsjón með félagsstarfinu er í höndum kennara skólans. 10. Leiktœki Nokkuð er til af leiktækjum og voru kaup í vetur í lágmarki. Nauð- synlegt er að yfirfara leiktækin, taka úr umferð þau sem eru úr sér gengin og kaupa önnur í staðinn. 11. Sjoppan Eins og að undanfömu var sjoppa rekin á vegum skólans. Nokkrir nemendur 5. bekkjar sáu alfarið um afgreiðslu í sjoppunni og aðstoð- uðu jafnframt við uppsetningu leik- tækja, miðasölu og tiltekt. Var frammistaða þessara nemenda und- antekningarlaust frábær og kunn- um við þeim bestu þakkir íyrir. Af rekstri sjoppunnar var nokkur ágóði og rann hann óskiptur í rekst- ur félagsstarfsins. 12. Heimsókn frá Ríkisútvarpinu Eréttamaður frá bamaútvarpi RUV kom í heimsókn þann dag sem tombólan var haldin. Tékin vom viðtöl við nemendur, kennara og gesti þar sem fjallað var um félags- starfið í skólanum og var því síðan útvarpað í tvígang. Myllubakkaskóli í dag Einsogáður hefurkomiðfram, þá eru nemendur Myllubakkaskóla í dag samtals 787. Þeir eru á aldrin- um 6—11 ára og skiptast í 36 bekkj- ardeildir. Alls em kennslustofur 19 og 6 sérkennslustofur. íþrótta- kennsla fer fram í íþróttasal skólans og í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Sund er kennt í Sundhöll Keflavík- ur. Skóli á stærð við Myllubakka- skóla er nokkuð stór vinnustaður. Alls starfa viö skólann 55 manns. Skólastjóri er Vilhjámur Ketilsson og yfirkennari er Kristján A. Jóns- son. Kennarar em 35 alls, þar af 9 í hlutastarfi. Við húsvörslu og eftirlit starfa þrír og þrír starfsmenn starfa við fþróttahúsið. Þá em starfandi við skólann hjúkmnarfræðingur, skólaritari og matráðsskona og níu manns sér um ræstingu og ganga- vörslu. Formaður skólanefndar er Vilhjálmur Ketilsson, skólastjóri. Þóniís Iwmódsdóttir, formudur skólu- ntjndur. Þórdís Þormóðsdóttir. Við skólann starfar Foreldra- og kennarafélag sem stofnað var 1976 og er núver- andi formaður Steinunn Njálsdótt- ir. HH/KAJ. Hefur eitthvað breyst eða... Þegar rætt er um breytingar sem átt hafa sér stað í skólanum nú hin síðari ár, koma þeir sem þar vinna dags daglega ekki alltaf fljótlega auga á þær. Sumt sem tekið hefur verið upp virðist svo sjálfsagt eftir að það hefst að mönnum finnst það alltaf hafa verið þannig. Nokkur dæmi er hægt að nefna um þetta. Það em ekki ýkja mörg ár síðan handmenntakennsla, saumar og smíðar tengdust aðeins öðru kyninu. Það var ekki talið álitlegt að stelpa væri að smíða eða strákur að sauma. Sama má segja um þroskahefta, þeir voru ekki inni í myndinni að sækja skóla í heimahéraði og það em þeir heldur ekki ennþá í öllum skólum, því miður. Kristjún A. Jónsson, yprkennuri. Steinunn Njálsdóttir, formaður For- eldra- og kennarafélagsins. Stundaskrár nemenda þekkja all- ir foreldrar, ekki hvað sízt frá eigin skólagöngu og enn þann dag í dag em þær gerðar. En kennslan fer kannske ekki alveg í einu og öllu eftir því sem á henni stendur heldur skiptir hún tímunum niður á ein- stakar greinar. Stundaskráin er nú að verða einungis vinnuskýrsla kennarans. Kennarar og nemendur gera sér nú orðið vinnuáætlanir viku eða í sumum tilfellum lengri áætlun fram í tímann. Þar er gert ráð fyrir ákveðinni vinnu ýmist í skóla eða heima við. Þetta starf þarfnast mikillar skipulagningar. Þá má og einnig taka sem dæmi alla undirbúningsvinnu og skipu- lagningu skólastarfs kennara. Nú finnst kennumm sjálfsagt í upphafi skólaárs að skipuleggja starf sitt út skólaárið með endurskoðun og enn frekari skipulagningu um áramót. Jafnhliða þessu vinna kennarar saman í árgangahópum og skipu- leggja þessa vinnu sína oft á tíðum í smáatriðum. Öllum finnst núorðið eölilegt að vinna á þennan hátt og nýir kennarar halda að þannig hafi þetta alltaf verið. En kennarar með lengri kennslureynslu þekkja dæmi um annað. Það var til að þegar kennarar fóm úr skólum á vorin að þeir höfðu ekki hugmynd um hvað samkennarar þeirra höfðu aðhafst eða kennt um veturinn. Kennslan var þeirra einkamál. Með aukinni þátttöku kennara í námskeiðum breyttist þessi hugs- unarháttur og menn urðu opnari fyrir allri samvinnu. Þá fóm kenn- arar að opna skrifborðsskúffumar hver fyrir öðmm og hættu að safna einungis fyrir sjálfa sig. Þeir komust að því að þeir áttu sameiginlegt áhugamál kennsluna. Þetta varð til þss að sameiginlegir verkefnabank- ar fyrir alla árganga vom gerðir, verkefni sem allir ganga í, allir safna í og nota. Fylgifiskur alls náms í skólastarf- inu, sem verður æ viðameira í eldri deildum gmnnskólans er tóm- stunda- og félagsstarfið. Hér í Kefla- vík var riðið á vaðið með það hvað varðar mikla samvinnu milli skól- ans og bæjaryfirvalda. Ýmsir skólar og bæjarfélög hafa horfið í sama far hvað varðar allt skipulag þessa ftjálsa tíma nemenda. Breytingin er sú að skólahúsnæðið er miklu meira notað til þessa þáttar en áður tíðkaðist. Að loknum skóladegi tek- ur við félagsstarf í skólum. Þar er frjáls mæting, ekkert skyldufag, en skipulagt starf sem skilar áreiðan- lega mörgum ekki síðri árangri en ýmsar námsgreinar gera. Bókasöfn í skólum þekktust lítt eða ekki fyrir 1970. í dag þykir sjálfsagt að í hverjum skóla skuli vera bókasafn. Við eigum því láni að fagna að hafa óvenjugóð bókasöfn í skólunum hér í Keflavík. Ad þeim hefur verið hlúð í gegnum tíðina. Nemendur fá ágæta tilsögn og kennslu á bókasafni, þar sem upp- bygging, röðun safnsins og notkun þess er rækilega kynnt fyrir þeim. Þar er kennt hvernig skuli unnið og leitað eftir upplýsingum í bókum og öðrum gögnum sem þar er að finna. Sem lokaorð í þessari stuttu grein vil ég nota hluta úr bæn kennarans, sem mér finnst lýsa best þeim breyt- ingum sem eru að verða, munu verða eða eru orðnar í skólastarfi. En þar segir: Hjálpa mér að hjálpa þessum bömum, svo að lærdómur þeirra sé ekki bara sá að leggja eitthvað á minnið, heldur miklu fremur að nota vit skilning og sjálfstæði. Vilhjálmur Ketilsson. FAXl 137

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.