Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1989, Síða 23

Faxi - 01.04.1989, Síða 23
Vid húsabmtin á Vegamótum. Þar sem Kristján A. Jónsson og Njáll Benediktsson Hér sér ypr Úskálasíkid og heim að Útskálakirkju. standa var áður vegurinn út að Útskálakirkju. ólfur 5 ára. Þar eru einnig Þorleif Halldórsdóttir vinnukona 19 ára, Ólafur Gíslason vinnumaður 18 ára, Þórður Tbitsson sjómaður 50 ára og Sigurður Filippusson sjó- maður 30 ára. Þá höldum við í vestur og komum að grasbýlinu Suður-Gerðar, sem er eignaijörð. Þar býr Sveinn Magnús- son sjómaður og smiður 55 ára og kona hans Eyvör Snorradóttir 54 ára, börn þeirra eru Theodóra 15 ára, Guðmundur 12 ára og Þorgrím- ur 11 ára. Einnig eru þar Guðlaug Illugadóttir vinnukona 17 ára, Hall- dór Stefánsson sjómaður 59 ára og Vigdi's Tómasdóttir saumakona 32 ára. Næst höldum við í norð-austur og komum að Norður-Gerðum, sem er eignaijörð, 1/3 úr Gerðalandi. Þar býr ekkjan Guðrún Þórarinsdóttir 76 ára og stundar hún sjávarútveg. Aðrir á bænum eru Eyjólfur Am- bjömsson vinnumaður 39 ára, Guð- rún Magnúsdóttir vinnukona 37 ára, Halldóra Bjömsdóttir vinnu- kona 35 ára, Sæmundur Agúst Sæmundsson tökubam 6 ára, Magnús Jónsson sjómaður 28 ára, Friðrik Hansson sjómaður 24 ára, Eyjólfur Þorsteinsson lausamaður 27 ára og Sveinn Bjamason lausa- maður 26 ára. Það má geta þess að Ami Ámason keypti Norður-Gerða af Guðrúnu Þórarinsdóttur. Árið 1980-býr Ámi Ámason þá 23 ára og kona hans Guðrún Ingjaldsdóttir þá 26 ára í Hrúðunesi í Leirn. Þá em þau búin að eignast son, Þorstein sem er 5 ára. Þorsteinn varð síðar duglegur húsasmiður með fleiru, hann bjó lengst af í Keflavík og er kominn frá honum merkur ætt- stofh. Þá komum við að tómthúsbýli hjá Norður-Gerðum. Þar býr Þorsteinn Amason snikkari og sjómaður, 34 ára og kona hans Ólöf Sveinsdóttir 34 ára, einnig Sigríður Guðmunds- dóttir vinnukona 26 ára, Sigmund- ur Sveinsson vinnumaður 20 ára, Sveinn Þorsteinsson vinnumaður 36 ára og Jón Ásmundsson sjó- maður 25 ára. Við höldum áfram í norð-austur niður á sjávarkampinn og út eftir honum. Þar komum við að býlinu Gerðabakka, sem er tómthús en þar em kartöflugarðar og fólkið þar lifir af sjávarafla. Þar búa Geir Guð- mundsson sjómaður 46 ára og kona hans Ingunn Vigfúsdóttir 29 ára, einnig Jakob Sigurðsson sjómaður 35 ára, Guðrún Jósefma Sæmunds- dóttir vinnukona 31 árs, Guðjón Jónsson tökubarn 1 árs, Kristín Guðmimdsdóttir húskona 36 ára og Salome Ingibjörg Magnúsdóttir 10 ára dóttir Kristínar. Nú höldum við áffam út bakka og komum að þéttbýliskjama sem stóð á sjávarkampinum fýrir neðan Út- skálasíki í landi Útskála. Þar vom fjórir bæir sem allir hétu sémöfh- um, en vom kallaðir í Görðunum. Úr fjörunni neðan við Útskála. I’ar sem (jaran er nú var áður fyrr allt grasi gróið. Úr rústum fyrsta skólahússins t Garði. Þetta hús lét séra Sigurður Sfvertssen hyggja 1873. Það reyndist sfðan hvorki halda vindi né vatni og var skólinn fljótlega fluttur annað. FAXI 139

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.